Óvart með ráðum gert?

August 29th, 2007

Á mbl.is:

„Meinafræðingur í Vín heldur því fram að læknir Beethovens hafi ráðið tónskáldinu bana með því að setja óvart of stóran skammt af blýi út í lyf sem Beethoven tók.“

Er hægt að ráða manni bana … óvart?

Þetta þykir mér vel gert

August 22nd, 2007

Örvænting eftir Josh Sommers

Áttavilltir upprennandi alheimsleiðtogar

August 21st, 2007

Sum okkar skilja ekkert nema sjá það í tölum eða á grafi, ekki heldur stjórnmálaskoðanir. Þess vegna eru til alls kyns spurningalistar til að reyna að staðsetja okkur í litrófi stjórnmálanna, t.d. The World’s Smallest Political Quiz og The Political Compass.

Algengt þema í þessum kerfum er að skila tvívíðri niðurstöðu, skipt í efnahagsmál og einstaklingsmál. Til dæmis skilar The Political Compass bæði láréttri og lóðréttri staðsetningu á grafi. Lárétta hnitið (vinstri/hægri) táknar stjórnlyndi eða frjálslyndi í málefnum atvinnulífs og hagkerfis (t.d. „finnst þér að skattar eigi að vera mjög háir og félagsaðstoð mjög sterk?“), en lóðrétta hnitið (upp/niður) táknar stjórnlyndi eða frjálslyndi í málefnum félagsmála og einkalífs (t.d. „finnst þér að ríkið eigi að setja reglur um leyfilega kynhegðun fullorðins fólks?“).

Á lárétta ásnum finnst gott og velviljað fólk langleiðina út á báða kanta. En enginn ætti að láta góma sig ofarlega á þessu grafi. Þeir sem vilja að ríkið stjórni einkalífi fólks sem allra mest eru ekki með öllum mjalla. Neðan miðjunnar er ég í góðum félagsskap, með mannvinunum Gandhi og Friedman og Nelson Mandela. Hinum megin eru Stalín og Hitler. Og Thatcher. Og reyndar flestallir stjórnmálamenn.

Ekki er algengt að stjórnmálamenn taki svona próf sjálfviljugir — a.m.k. ekki þannig að þeir gefi upp niðurstöðuna. Forsprakkar The Political Compass rýna því í opinber ummæli og rit og þingatkvæði og embættisfærslur þekktra stjórnmálamanna til að staðsetja þá á þessum kompási. Nú hafa þeir leikið þann leik með hina þekktari frambjóðendur í forkosningunum til embættis Bandaríkjaforseta í ár.

Niðurstaðan er skýr: frambjóðendurnir eru næstum allir í efri hægri fjórðungnum á grafinu. Aðeins tveir smokra sér niður fyrir miðju. Annar þeirra er Mike Gravel, sá sem gaf út þessa stórfurðulegu mállausu kosningaauglýsingu þar sem hann starir þögull í myndavélina í rúma mínútu, ranglar síðan spölkorn frá, tekur upp stóran stein og hendir út í vatn, og gengur svo á brott.

Ganga má út frá því sem vísu að næsti Bandaríkjaforseti verði lóðréttur nágranni Stalíns á efri helmingi hins pólitíska kompáss. Það er víst ekkert nýtt.

Af aflþynnum og álþykkju

August 21st, 2007

Nokkrar orðskýringar:

Þynna
Þunn filma (foil) úr einhverju efni.
Álþynna
Það sem Becromal framleiðir, þunn filma úr áli. Eins konar þunnur og vandaður álpappír.
Þéttir (capacitor)
Íhlutur í rafrásum, yfirleitt búinn til úr upprúlluðum þynnum (oft álþynnum), svona eins og samlokur eru búnar til úr brauði (oft heilhveitibrauði). Becromal framleiðir ekki þétta.
Aflþéttir (power capacitor)
Tiltekin gerð af þétti sem ekki hefur komið sérstaklega við sögu í umræðunni. Álþynnurnar frá Becromal má nota í slíka þétta en líka í aðrar tegundir þétta. Þannig hafa þynnurnar ekkert sérstakt með afl að gera þótt til séu þéttar sem heita aflþéttar. Eins förum við ekki að kalla allt brauð „heilsubakstur“ bara af því að Sómi framleiðir samloku sem heitir Heilsubiti.
Aflþynna
Bullorð, líklegast soðið saman til að þurfa ekki að nota grýluorðið „ál“ vegna útbreiddrar álþykkju.

Nú hefur ráðherra þó bitið á jaxlinn og tekið upp orðið „álþynna“ á vef sínum. Hann heldur samt enn að það sé íslenskun á „capacitor,“ þrátt fyrir ítrekaðar leiðréttingar á hans eigin vef og víðar. Þetta er hliðstætt því að halda fast í þá skoðun að „brauðsneið“ sé firnagott nýyrði yfir „sandwich“ — bara af því að maður er ekki alveg með á hreinu hvað „sandwich“ er.

Og samt tekur fólk sig hátíðlega

August 17th, 2007

Aflþynnuhátækni

August 16th, 2007

Iðnaðarráðherra fjallar á netmiðli sínum um fyrirtækið Becromal, sem:

framleiðir það sem við höfum kallað aflþynnur. Það er íslenskun á útlenska orðinu “capacitor”. Aflþynnur eru rafhúðaðar álþynnur sem eru notaðar í rafþéttaiðnaði.

Ef ráðherra hefði leitað til Orðanefndar RVFÍ hefði hann vitað að íslenskun orðsins „capacitor“ er „þéttir“ og hefur verið það áratugum saman. Margir þéttar eru smíðaðir úr þessari framleiðsluvöru Becromal, sem er að sönnu þunn en hefur lítið með afl að gera (þótt þéttar úr svona þynnum séu meðal annars notaðir í aflgjafa).

Annars er óþarft að leita langt yfir skammt að heiti þessarar vöru: á vef fyrirtækisins heitir hún „aluminium foil.“ Þá uppfinningu hafa Íslendingar þekkt áratugum saman og kallað álpappír. Sá álpappír sem er notaður í þétta er væntanlega þynnri og vandaðri og dýrari. Hann er nú samt álpappír.

Það þótti kannski ekki hljóma nógu svalt og hátæknilegt?

„Ekki er vitað hvað manninum gekk til“

July 21st, 2007

Mætti ekki bara nema þennan frasa á brott úr frasaforða fréttamanna?

Til sölu: ungbarnaskór, ónotaðir

July 21st, 2007

For sale: baby shoes, never worn.

Þessi örsaga er sögð vera eftir Ernest Hemingway. Hann er sagður hafa samið hana til að vinna tíu dollara veðmál á barnum. Og hann er sagður hafa kallað hana besta verk sitt.

Allt er þetta sjálfsagt ósatt. En góð er hún samt.

Eykst misskiptingin?

July 15th, 2007

Afar ríkir menn

[Séð í baksýnisspegli: þetta var með því lakara sem ég hef skrifað og fyrirsögnin sérstaklega léleg — sjá athugasemdirnar. „Misskipting“ er of óljóst orð til að svona einföld spurning sé til neins. Það eina sem þessi gögn hrekja er sú missýn að hinir örfáu allra ríkustu eigi persónulega stærri sneið af heimskökunni á okkar dögum en áður fyrr. Ég stend við þá skoðun að beiskjan yfir auðævum þeirra sé fánýt og forsendusnauð. Málið er hins vegar að þetta er einhver minnst verðuga spurningin sem hægt er að spyrja um misskiptingu auðs. Það er hinn endi þess skala sem vert er að skoða.]

Margir missa svefn yfir því að misskipting auðs hafi vaxið upp úr öllu valdi undanfarið, ekki vegna þess að fleiri manneskjur búi við örbirgð en áður, heldur vegna þess að þorri auðsins hafi safnast á færri hendur en nokkru sinni fyrr. Áhyggjurnar virðast oft byggjast á því að horfa á þá allra ríkustu og fitja upp á nefið og hnussa og segja „nú dámar mér ekki.“

(Hvenær dámar svosem nokkrum manni?)

New York Times birti í dag samantekt um 30 ríkustu Bandaríkjamenn allra tíma, þar sem ríkidæmi þeirra er núvirt sem hlutfall af þjóðarframleiðslu.

Tveir þeirra eru á lífi, Bill Gates (í fimmta sæti) og Warren Buffett. Sam Walton stofnandi WalMart dó árið 1992, allir hinir voru dánir fyrir 1950.

Þeir fjórir allra ríkustu voru fæddir 1750, 1763, 1794 og 1839.

Málið er flóknara, auðvitað, en þetta rennir a.m.k. ekki stoðum undir þá hugmynd að auðævin safnist á færri hendur nú en áður.

(Hins vegar safnast sjálfsagt fátæktin á fleiri hendur en áður — enda fólksfjölgun miklu hraðari í fátækum samfélögum en ríkum, og auðmyndun miklu hraðari í þróuðum samfélögum en í ríkjum þar sem allar grunnstoðir eru í kaldakoli. Okkur hættir bara til að ofmeta orsakasamhengið á milli auðsöfnunar hinna fáu og fátæktar hinna mörgu. Börn í Afríku svelta ekki við það að hlutabréfin þeirra Gates og Buffetts hækki í verði. Það svíður bara að sjá hvort tveggja gerast samtímis. Gates og Buffett eru að vinna í þessu af heilindum.)

Þessir mógúlar eiga reyndar eitt sameiginlegt: þeir eru allir með Y-litning. Full ástæða er til að rannsaka hlutverk þessa erfðaþáttar í auðsöfnun.

Góður og ódýr cappuccino á Starbucks?

July 9th, 2007

Starbucks — of stórt

Þetta verð ég að prófa næst þegar ég slysast inn á Starbucks-stað. Leyndarmálið er víst að biðja um „short cappuccino,“ sem sést hvergi á verðlistum eða í auglýsingum. Fyrir þann leynifrasa fær maður ekki þennan leiðinda dunk af velgdri og ófreyddri mjólk heldur raunverulegan cappuccino, með jafnmiklu kaffi, betra bragði og áferð — og á lægra verði.

Ég trúi því þegar ég tek á því.

En hvers vegna er þessi vara leyndó? Starbucks segir að það sé vegna plássleysis á töflunni (!) en greinin skýrir þetta sem „markaðshlutun“ (e. market segmentation). Þeir sem hafa ekki ánetjast góðum cappuccino vilja einfaldlega fá stóran kaffidrykk; þeim þætti asnalegt að borga 11% minna og fá 33% minni drykk. Og uppskrúfuð cappuccino-snobbhænsn eins og ég koma hvort eð er ekki á Starbucks — nema kannski ef þau hafa heyrt af short cappuccino og gangast upp í að „vita um leyndóið.“

Ætli það sé ekki með svona markaðsklókindum sem Starbucks hefur náð að þrjátíufaldast að markaðsvirði síðustu 15 árin?


Bad Behavior has blocked 98 access attempts in the last 7 days.