Lífsnautnamaðurinn
Friday, September 29th, 2006Aaahhh, heitir sokkar úr þurrkara. Þetta er lífið.
Aaahhh, heitir sokkar úr þurrkara. Þetta er lífið.
Elsku/Kæra/Kæri ________,
þú ert mér mjög kær og mér þykir vænt um þig og ég vil síst af öllu særa þig … en þú veist að ég vil ekki fá svona póst, er það ekki?
Flestir svona fjölpóstar hafa farið marga túra um netið og lent í boxinu mínu oftar en einu sinni … og fæstir kættu mig neitt að ráði í fyrsta skiptið, hvað þá það fimmta.
Auk þess framsenda margir póstinn ásamt öllum netföngum viðtakenda svo að hann inniheldur brátt fleiri hundruð netfanga, þar á meðal mitt, og fleytir þeim út um allan heim. Loks ratar hann til þeirra sem safna netföngum til að senda öllum heiminum ruslpóst með auglýsingum um typpastækkanir og klámvefi og viagra. Já, þeir safna markvisst netföngum úr svona pósti. Þeir kunna þér bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Betra er að setja netföngin í Bcc (blind carbon copy) svo að þau fylgi ekki póstinum áfram. Best er þó að framsenda ekki svona póst, eða a.m.k. bara til þeirra sem þú veist að vilja fá hann. Þú gætir líka opnað blogg og birt þetta þar, og þá gætu þeir lesið það sem sækjast eftir því.
Ég bið þig alltént að sleppa mér úr listanum framvegis. Án þess að meina neitt illt með því eða vilja móðga neinn. Ég veit að þér gengur gott eitt til, og kann að meta það. Þetta veitir mér bara ekki þá gleði sem þú vonaðir, og veldur skaða sem þú vissir ekki af.
(Þegar þú sendir þitt eigið frumsamda skemmtiefni vil ég hins vegar gjarnan fá það. En fyrir alla muni settu þá netfangið mitt í Bcc ef þú sendir það á fleiri um leið.)
Bestu kveðjur,
— ________
Notið að vild.

Úr Staksteinum í Mogganum í dag:
Hverjum dettur í hug, að þessi röggsami ráðherra hafi vísvitandi falið upplýsingar fyrir Alþingi?
Hvers vegna ætti hún að hafa haft áhuga á að leyna slíkum upplýsingum?
Það er hægt að ganga út frá því sem vísu, að íslenzkir ráðherrar leyna Alþingi ekki vísvitandi upplýsingum því að bæði þeir og aðrir bera djúpa virðingu fyrir Alþingi sem stofnun.
Æ hve ég er feginn að vita þetta. Ég sem hélt að einhver ástæða væri til að veita stjórnmálamönnum aðhald. Kjáni gat ég verið; ég gleymdi alveg að hugsa út í þetta með djúpu virðinguna. Og röggsemina!
Hvar værum við án svona djúpviturrar og hnífskarprar greiningar á þjóðmálunum og haukfránnar rannsóknarblaðamennsku?
Með borðsímanum mínum í vinnunni fékk ég lauflétta og töffaralega höfuðgræju sem gerir mér kleift að hanga í símanum handfrjálst.
Það rann upp fyrir mér að með þessari nýlundu hverfur veigamikill þáttur í annars þrotlausum þjáningum tilvistar minnar: að hringja í hin og þessi þjónustufyrirtæki og hlusta sífellt á „í augnablikinu eru allir þjónustufulltrúar uppteknir“ og bíða eftir því að símtalinu mínu verði „svarað í þeirri röð sem það barst.“
Núna sit ég bara með innihaldsrýra tónlist í eyrunum (eins og yfirleitt í vinnunni, núna kemur hún bara úr símtækinu) og get unnið vinnuna mína með báðum höndum án þess að fá hálsríg af því að halda á símtóli með kjálkabeininu. Fljótandi á rósrauðu skýi leiði ég símabiðina fullkomlega hjá mér þar til einhver svarar. Og þá finnst mér eins og ég hafi ekkert beðið yfirleitt … hvað þá að biðtíminn leggist svo mjög á sálina mína að ég þurfi að stofna til þingmáls og „spyrja hæstv. ráðherra neytendamála hvort að þetta sé eðlilegt.“
Svo segir fólk að tæknin bæti ekki líf okkar.
Deildin mín hefur dottið í dálitla sjósundsdillu undanfarið. Snæbjörn deildarstjóri átti í veðmáli við forstöðumanninn Viggó um megrun hins síðarnefnda; Viggó hafði staðið við sitt svo að fyrir Snæbirni lá að synda úr Nauthólsvík yfir í Kópavog, um 600 metra.
Þess ber að geta að Snæbjörn er kulvísasti maður á jarðríki. Hann kvartar undan köldum gusti ef einhver dæsir nálægt honum.
Hann hefur skellt sér í sjóinn nokkrum sinnum undanfarið til að herða sig upp fyrir sundið. Í síðustu viku brá ég mér með, og þá tók hann upp á því að efna loforðið … og tvöfalda það: hann synti til baka líka. Var u.þ.b. 45-50 mínútur að þessu. Sko strák.
Í þessu myndskeiði sést hann skríða upp úr sjónum eftir afrekið, drafandi og valtur á fótum. Hann gekk sýnilega ekki heill til skógar í fyrstu — okkur leist ekkert á blikuna — en rúmlega klukkustund síðar var hann mættur að styðja Pablo í Tom-Selleck-yfirvaraskeggskeppninni á skemmtistaðnum Sirkús. Nú, nokkrum dögum síðar, virðist hann ekki tiltakanlega skertur að neinu leyti.
Og í þessu myndskeiði sést ég fletta mig klæðum og leggjast til (mun styttra) sunds.
Ég tek eftir að á 45 sekúndum hvái ég (eða hvæ?) þrisvar „Hvað segirðu?“ Ég ætti kannski að hafa einhverjar áhyggjur af því.
Hvað um það, allir í sjóinn! Bætir, hressir kætir! Sjáið bara Snæbjörn.

Fyrst minnst var á tónik … það farsæla fyrirtæki Coca Cola hefur getið af sér sitthvað fleira en Coca Cola. Þar á meðal er gosdrykkurinn Beverly, sem inniheldur einmitt kínín eins og tónik.
Hér til hliðar sést hann Þórður bragða Beverly. Takið eftir örvæntingunni í svipnum.
Tónik er peanuts. Beverly er óskiljanlega vont.


Vinstra grafið er eins og Fréttablaðið birti það í gær, föstudag. Ha, lesa tvöfalt fleiri Fréttablaðið?
Takið eftir hve ásinn er gerður daufur og grár svo að sem fæstir taki eftir því að það er klippt neðan af honum. Samt er þess gætt að neðst sjáist litla hakið sem segir „þessi ás nær ekki niður í núll“ svo að ekki sé hægt að kalla grafið beinlínis ósatt.
Hægra grafið er eins og ég hefði birt það. Þar nær ásinn niður í núll og grafið gefur því rétta mynd af þeim hlutfallslega mun sem kemur fram í Gallup-könnuninni.
Þess vegna fæ ég seint vinnu við markaðssetningu. Ég hef svo óheilbrigðar hugmyndir um hreinskilni.

Ég sat á honum Sóloni í kvöld og saup rauðvín með ágætum Eistum, og þar var spiluð hraðtaktsdansútgáfa af laginu Breathe af tímamótaplötu Pink Floyd, Dark Side of the Moon.
… For long you live and high you fly
But only if you ride the tide
And balanced on the biggest wave
You race toward an early grave.
Í hröðum danstakti. Svaka stuð.
Ég meina’ða. Syd Barrett hefur ekki verið dáinn í viku. Má ekki leyfa honum að kasta lífsmæðinni í nokkra mánuði áður en hann þarf að fara að bisa við að hringsnúast í snemmbúinni gröf sinni?
Ég var að finna „tímarit“ ☺ yfir helstu atburði í sögu kristninnar, og annað fyrir sögu gyðingdóms, og enn eitt sem setur saman atburði úr sögu beggja.
Ritið má draga til og frá með músinni. Smella má á einstaka atburði til að lesa nánar um þá. Og leita má í gögnunum með því að slá inn texta í „Filter“ og „Highlight“ neðst.
Mér finnst þetta fremur flott framsetning, og skemmtileg leið til að fræðast.
Bad Behavior has blocked 43 access attempts in the last 7 days.