Archive for the ‘Ýmislegt’ Category

Átta megapixla skúbb

Tuesday, September 30th, 2008

Fréttin á Vísi.is, „Landsbankamenn á kvöldfundi í forsætisráðuneytinu“ er svo mikið skúbb að fréttamyndin af Björgólfi Thor að brokka glaðhlakkalega út úr Stjórnarráðinu er 3504×2336 punktar (fjórir vænir tölvuskjáir) að stærð, 764 kílóbæt. Mátti ekki minna vera.

Hálfbærni

Saturday, June 28th, 2008

Í Fiskifréttum Viðskiptablaðsins í gær er fjallað um kröfur evrópskra sjómanna á hendur ESB:

„Í fyrsta lagi er farið fram á styrki sem leiði til að minnsta kosti 40% lækkunar á eldsneytiskostnaði [...] eina leiðin til þess að fiskveiðar í Evrópu geti orðið sjálfbærar sé að eldsneytisverð verði lækkað.“

(Ath. ekki „lækki“ heldur „verði lækkað.“)

Með þessari túlkun getur líka mánaðargamall systursonur minn „staðið á eigin fótum“ ef mamma hans heldur nógu vel undir handarkrikana á honum …

RSK bregður á leik

Wednesday, March 26th, 2008

RSK í stuði

Jæjajá.

Finnst þér hlutabréfaviðskipti vera skrípaleikur í dag?

Wednesday, February 27th, 2008

Kauptækifæri í Softis

Jafnvel þótt Softis hefði meikað það og gert alla ríka væri þetta jafnfyndið. Rúðustrikaða grafið án ása er skemmtilegt, en „the money quote“:

Dæmi um velgengni hluthafa:

Vitað er um mann sem seldi bifreið sína til að kaupa sér hlutabréf í félaginu og daginn eftir átti hann andvirði tveggja bifreiða.

Þarf frekari vitnanna við?

Árnaður

Monday, December 31st, 2007

Flugeldar

Mitt eigið net árnar lesendum öllum — eða eftir atvikum báðum — heilla á nýju ári og þakkar fyrir samvistirnar, á neti og í návígi, á liðnum árum.

Nei, í alvöru?

Tuesday, May 29th, 2007

Óhæft undir matvæli

Vaxandi hlutdeild þvagláts í listsköpun

Friday, May 11th, 2007

Stórvaxin strengjadúkka með rafmagnskapla grædda aftan í mænuna nam staðar við Dómkirkjuna, settist á hækjur sér og mé, hélt svo leiðar sinnar.

Þúsund menn, konur og börn horfðu á þvaglátið glaðvær á svip.

Velkomin á listahátíð.

Skríður til skarar gegn hryðjuverkum

Saturday, April 7th, 2007

Interrogation room

„Tengist þú einhverjum hryðjuverkasamtökum eða er einhver í fjölskyldu þinni viðriðinn slík samtök?“

Nei, þessi spurning er ekki á spjaldi sem þarf að fylla út til að komast inn í Bandaríkin (þar eru þó svipaðar spurningar), hún er alíslensk, ein þeirra spurninga sem bankar þurfa víst að leggja fyrir nýja viðskiptavini til þess að uppfylla nýtilkomin lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Auðvitað heldur enginn að illskan verði sigruð með því að spyrja átján ára Selfyssing þessarar spurningar. En sumir virðast halda í þá von að hryðjuverkamaðurinn jánki þessu kannski í ógáti.

„Jaá… nei, ég meina nei, hreint ekki! Æi, fari það kolað, þið sneruð á mig!“

Baráttuna fyrir betri og öruggari heimi setur niður við svona vitleysu.

Bráðabirgðalög í vændum?

Monday, April 2nd, 2007

Bráðabirgðalög í vændum?

Rétt áðan ók fyrirmennalest inn Kirkjustrætið á móti einstefnu með blikkljós og ábúðarmikla lögreglumenn að skima eftir morðingjum og mótmælendum. Borðalagður maður steig út og gekk inn í Alþingishúsið.

Ætli þetta sé ekki forstjóri Alcan, mættur til að smella bráðabirgðalögum á Hafnarfjörð?

Loksins fæ ég að skúbba eitthvað!

Kysst á vöndinn

Friday, March 30th, 2007
Fasces

Kennslukönnun fer fram í lok hvers misseris í Háskóla Íslands. Í henni meta nemendur frammistöðu kennara og högun námskeiða.

Niðurstöðurnar eru sýndar kennara og skorarformanni — en ekki nemendum. Þeir sjá enga samantekt, enga greiningu; könnunin hverfur út í tómið frá þeirra sjónarhóli. Fyrir vinnuna við gæðaeftirlit HÍ uppskera þeir ekkert nema þátttöku í happdrætti þar sem verðlaunin eru … aukinn prentkvóti. Í fyllstu alvöru.

Framfarir mannkyns fær hins vegar ekkert stöðvað: formenn nemendafélaganna í verkfræðideild hafa nú fengið að sjá niðurstöður kennslukönnunar í fyrsta sinn. Stjórn VIR, félags rafmagnsverkfræðinema, brást óðara við og heiðraði í dag þá tvo kennara sem komu best út í fyrravor og fyrrahaust.

Blásnauðir nemendurnir splæstu viðurkenningarskjali, blómvendi og dýrindis rauðvínsflösku á Önnu Soffíu Hauksdóttur prófessor … og stundakennara nokkurn, sem þó er alræmdur fyrir miskunnarlaust verkefnaálag.

Blómin eru fögur, flaskan fríð, og kæti mín greinilega hæverskunni yfirsterkari. :-)


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.