„Ókei, þá er ég farinn!“
Monday, February 26th, 2007Tvær fyrirsagnir á mbl.is í gær, með 16 mínútna millibili:
13:14 Björk Vilhelmsdóttir gengin í Samfylkinguna 13:30 Jakob Frímann genginn úr Samfylkingunni
Var þetta eitthvað persónulegt?
Tvær fyrirsagnir á mbl.is í gær, með 16 mínútna millibili:
13:14 Björk Vilhelmsdóttir gengin í Samfylkinguna 13:30 Jakob Frímann genginn úr Samfylkingunni
Var þetta eitthvað persónulegt?
„… og okkar víglína er einfaldlega sú, að allt sem hægt er að stöðva og öll áform sem eru ekki þegar óafturkræf, þau verða stöðvuð [...] ég lít þannig á, að það væri meira og minna óaðgengilegt fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, að fara inn í ríkisstjórn við aðrar aðstæður en þær, að allt sem hægt væri að stöðva, yrði stöðvað.“
— Steingrímur J. Sigfússon í sunnudagsmogganum
Hér væri sanngjarnt að geta samhengis.
Sanngjarnt, en hreint ekki eins skemmtilegt.
Sú gleðifrétt barst á mbl.is að islamstrúaður arabi hefði tekið sæti í ríkisstjórn Ísraels. Spurning hvorum guðinum ætti að þakka fyrir þá mildi; líklega báðum (eða vera dipló og segja þá einn og hinn sama).
Á þessa frétt skrifar Skúli G. Jensson athugasemd, svohljóðandi:
Ég sé Palestínumenn gera það sama!
Þetta er munurinn á Ísraelsmönnum og Palestínumönnum í hnotskurn.
Athuga ber að hér virðist ekki borið saman eðli stjórnmálaástandsins í Palestínu og í Ísrael — heldur eðli fólksins í Palestínu og Ísrael.
Oj.
En auðvitað væri ósanngjarnt af mér að kalla þetta „kristilegt hugarfar í hnotskurn,“ fyrir það eitt að menn virðast vera því hlutdrægari stuðningsmenn Ísraels sem þeir eru meira kristnir.
Um kristilegt hugarfar þurfum við nefnilega ekki að ráðfæra okkur við milliliði; við getum lesið hvernig Kristur sjálfur sýndi hug sinn í orði og verki. Í því skyni er sígild fræðsla að rifja upp Matteus 15:22-28 — ekki vegna þess að sú saga sé dæmigerð, heldur einmitt vegna þess að hún er sagan sem gleymdist að fegra:
22Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, herra, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda.“
23En hann svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: „Láttu hana fara, hún eltir oss með hrópum.“
24Hann mælti: „Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt.“
25Konan kom, laut honum og sagði: „Herra, hjálpa þú mér!“
26Hann svaraði: „Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.“
27Hún sagði: „Satt er það, herra, þó eta hundarnir mola þá, sem falla af borðum húsbænda þeirra.“
28Þá mælti Jesús við hana: „Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt.“ Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu.
Kannski hefur arabinn kallað ríkisstjórnarsætið „mola sem féll af borðum húsbænda hans“ af Ísraelsætt … og uppskorið miskunn með semískum semingi fyrir þá undirgefni, eins og kanverska konan?
Auðvitað þýðir þetta ekki að kristilegt hugarfar sé ljótt. Það er bara ekkert betra en hvert annað hugarfar.
Gyðingar og kristnir eru ekkert verri en annað fólk … en það verður brakandi blíða í Neðra þann dag sem ég samþykki að þeir séu betri.
Og sjálfsagt meinti Skúli þetta ekki eins og það hljómaði. Ég er hins vegar hræddur um að Kristi hafi verið fúlasta alvara, honum fannst kanverska konan léleg og óverðug fyrir það eitt að vera kanversk … en hann var nú líka breyskur, mennskur maður, og barn síns tíma. Og Skúli er þá Kristi fremri að þessu leyti — hann kæmi ekki svona fram við útlending fyrir það eitt að vera útlendingur! Enda nýtur Skúli, og við öll, tvö þúsund ára framþróunar mannlegrar hugsunar síðan Kristur var uppi.
Þessi svaladrykkur á örugglega ekki að vera svona á litinn.
Mér finnst ég aldrei hafa almennilega nóg pláss í ísskápnum mínum og öðrum eldhússkápum. Það er ekki að ósekju. Í nótt fannst þar:
Ég skil ekki þessa tónikmergð. Ég drekk ekki neinn drykk með þeim óhroða í, og þaðan af síður tónikið sjálft. Og hef aldrei gert.
Útrunninn bjór er víst sjaldséður á flestum heimilum. En Corona er bara ódrekkandi gutl.
Þess má geta að eldhúsið mitt er mjög lítið, ísskápurinn fremur lítill, og matarskápurinn aðeins einn.
Læt þetta standa hér, mér til háðungar.
Úr frétt á mbl.is:
[...] þremenningunum mistókst að ná endurkjöri er þeir biðu lægri hlut fyrir Politburo, sem tilheyrir kommúnistaflokki Víetnam.
Hann hefur alveg dæmalausan kjörþokka þessi Politburo.
„Teljanleg mengi geta meira að segja haft mismunandi mikið óendanleg mök.“
— Baal þegar honum skrikaði freudískt fótur á tungu.
Jimmy Hoffa, ári áður „en að“ hann hvarf af yfirborði jarðar, eins og Mogginn orðar það.
Mogginn segir meistaralega frá endurnýjaðri leit að Jimmy Hoffa; lögreglumenn
leituðu í gær af líki hans, sem er fyrrum leiðtogi verkalýðsfélags vörubílstjóra [...]
Að leita af líki er sjálfsagt skárra en að leita á það.
En hitt er ólíkt merkilegra, með formennskuna. Það heyrir líklega til undantekninga að lík nái þvílíkum frama.
Kannski Geirfinnur finnist nálægt. Ekki leiðum að líkjast.
Ókei, ég skal hætta. Ég ætti að dauðskammast mín fyrir svona hræbillegt spé. Þetta eru grafalvarleg mál.
Fótur í munni
Spólum nú áfram til ársins 2006; ég er forritari í vefdeild Landsbankans og Skeggi er orðinn forstöðumaður annarrar hugbúnaðardeildar bankans, og á labbi þar á ég dálítil small-talk-orðaskipti við mann í þeirri deild sem þekkir mig samaogekkineitt. Í tal berst að ég hafi einhvern tíma verið í Decode, og ég segi „já, það vill svo til að Skeggi tók sætið mitt þegar ég fór. En ég var nú bara í sumardjobbi þarna.“
Lengra varð samtalið ekki, þar sem ég var á gangi með vinum mínum. Þeir bentu mér á hvernig þetta hljómaði.
Ég meinti auðvitað að Skeggi tók beinlínis stólinn sem ég sat á og borðið sem ég sat við — húsgögnin sjálf. En nú virðist ég hafa slysast til að gefa í skyn, við menn sem eru rétt að kynnast mér, að Skeggi hefði tekið við starfinu mínu … semsagt að hin vel metnu stjórnunarstörf hans hjá Decode hafi verið „iss, bara sumardjobb“ fyrir 22 ára háskólanemann mig.
Úbbs.
Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.