Archive for the ‘Úbbs’ Category

What, me worry?

Monday, September 29th, 2008

Forsíða Glitnis í dag:

Þarf ég að hafa áhyggjur?

Davíð veiði rísbjörn

Thursday, April 10th, 2008

Björn með engan kaupáhuga

Í fyrirsögn í Vegvísi Landsbankans:

Hrísgrjónaverð rís

Því alveg ótengt, í Viðskiptablaðinu Markaðnum í morgun:

… að til standi að egna gildrur fyrir spákaupmenn sem tekið hafi stöðu gegn íslensku efnahagslífi, svokallaðar bjarnargildrur, væntanlega með vísun í bandaríska fjárfestingarbankann Bear Stearns.

Úbbs. Bjarnargildrur heita eftir björnum (e. bears), þeim sem veðja á verðlækkanir á mörkunum. Það er neyðarlegt að þeim sem skrifa um fjármálamarkaði í Viðskiptablaðið Markaðinn sé það ekki ljóst. Þessi orðnotkun er alkunna í geiranum.

Bankinn heitir (eða hét) einfaldlega eftir stofnendunum Joseph Bear og Robert Stearns. Heitin „bull“ og „bear“ á bjartsýnum og svartsýnum fjárfestum eru a.m.k. 140 árum eldri en Bear Stearns.

Ég eignaði í fyrstu Viðskiptablaðinu þessa bommertu. Það var mín bommerta, þetta var víst Markaðurinn að villa á sér heimildir með laxableika pappírnum.

Þróun holdafars(ans)

Saturday, December 15th, 2007

Haldið þið að við séum eitthvað skárri?

Munar nokkuð nema fáeinum árum?

Dimmir yfir dalnum

Wednesday, October 3rd, 2007

Ég gekk eitt sinn í skóla í Kísildal. Fannst hann fínn.

Fyrir tveimur vikum var skipaður nýr „distinguished visiting fellow“ við Hoover-stofnunina við þennan skóla.

Slíka upphefð hlýtur varla nokkur maður nema vera virtur menntamaður og/eða afreksmaður á sviði sínu.

Þessi nýi andans jöfur heitir Donald Rumsfeld.

Aldeilis distinguished.

Systkinakærleikur

Friday, June 22nd, 2007

Húskarlinn

Systir mín:

„Ha, hefurðu ekki horft á House? Það er sko ekta fyrir þig, hann er svo ótrúlega vondur og sarkastískur og …“

Jæjajá.

Krabbi í neytendapakkningum

Monday, June 11th, 2007

Lungnakrabbi

Ættingi sem mér þykir vænt um framsendi mér (og fjörutíuogfjórum öðrum) keðjubréf þess efnis að við þurfum að vara okkur á plasti í matarumbúðum til að fá ekki krabbamein.

Það er auðvitað bull eins og allt annað sem berst í tölvupósti.

Það merkilega er að þessi manneskja — sem nú hlýtur að vara sig á ótætis plastinu — reykir eins og hún eigi lífið að leysa og hefur gert það áratugum saman.

Hvað getur maður sagt?

Sálmarnir og talan 137

Thursday, May 17th, 2007

Í Sálmunum (þeim einu sönnu, í heilagri ritningu) er að finna skemmtilega tilviljun í sambandi við töluna 137.

Í versi 119:137 kemur nefnilega þetta fram:

137 Réttlátur ert þú, Drottinn,
og réttvísir dómar þínir.

… og í versi 137:9 birtist svo þessi réttvísi dómur:

9 Heill þeim er þrífur ungbörn þín
og slær þeim niður við stein.

Þarna er babýlónska þjóðin ávörpuð; hún hafði sannarlega (eins og fleiri) komið illa fram við Ísraelsmenn. Babýlónsk ungbörn gátu auðvitað bara sjálfum sér um kennt, að hafa valið sér slíka óþokka fyrir foreldra.

Ekki er öll Biblían svona ljót, en hún er greinilega ekki algóð heldur. Þó segja sumir hana óskeikult Guðs orð og grundvöll siðferðisvitundar okkar.

Til allrar hamingju er það ekki lestur á Biblíunni sem ákvarðar siðferðisvitund okkar, heldur öfugt: siðferðisvitundin ákvarðar hvernig við lesum Biblíuna. Suma hluta hennar metum við að verðleikum, því að þeir samrýmast siðferðiskennd okkar. Aðrir hlutar — eins og ofangreint dæmi — misbjóða þessari siðferðiskennd; þá hluta ýmist leiðum við hjá okkur eða fordæmum, allt eftir því hvort við afneitum eða viðurkennum að bókin sé verk breyskra, mennskra höfunda, óritstýrð af almættinu.

Erum við virkilega svona miklar smásálir?

Tuesday, April 10th, 2007

Skrípósprengja

Uwe E. Reinhardt hefur beðið Íslendinga afsökunar á háðsgrein sinni í garð Bandaríkjanna. Af því að við vældum svo mikið.

Ísland var notað í þessari grein einmitt vegna þess að öllum er ljóst að Ísland væri einhver fáránlegasti blettur jarðarkringlunnar fyrir Bandaríkjamenn að ráðast á. Þetta er augljóst.

Og að öðru leyti snýst grein hans alls ekki um Ísland.

Óháð því hvort þetta háð þykir fyndið er grátlega smásálarlegt af Íslendingum að reka upp ramakvein yfir því.

Þarna urðu margir þjóðinni til skammar — ekki bara hvolpsgreyið með innantómu drápshótunina.

Get a grip, people.

Súkkulaðivefir í molum

Tuesday, April 3rd, 2007

Nú líður að því að velja heimilinu frjósemishátíðaregg. Ég væri ekki ég ef internetið kæmi ekki við sögu í því vali.

Vefir súkkulaðifyrirtækjanna eru almennt í molum. Það er kannski viðeigandi.

Ásýnd Góu-Lindu á vefnum

Ásýnd Góu-Lindu á vefnum

  • Á vef Nóa Síríī er reyndar vörulisti yfir páskaegg, en upplýsingar um hverja tegund eru af skornum skammti og ekki er traustvekjandi að sjá „©2006 Nói Síríus“ í horninu. Vonandi er súkkulaðið nýlegra.
  • Vefur Góu-Lindu er eins og gammétið hræ. Þar gapa eyðurnar við okkur eins og tóftir í hauskúpu. Ókjörin reynast vera sett saman í Microsoft Word; slíkir vefir eru undantekningalítið andvana fæddir.
  • Vefur Mónu svarar ekki einu sinni. Það er kannski vegna þess að Freyja keypti Mónu. En …
  • … vefur Freyju (©2004) virkar en segir ekkert um páskaegg; tengir bara á hinn stjarfaklofa vef Mónu.

Loks er lélegt að þeir tveir vefir sem eru með lífsmarki, hjá erkikeppinautunum Nóa Síríō og Freyju, nota nákvæmlega sama vef-íkonið Freyja eða Nói?. Vefirnir eru nefnilega báðir gerðir af sömu vefstofunni, Design EuropA … sem notar einmitt þetta sama íkon á eigin vef. Aldeilis flott.

Þetta er vefhliðstæða þess að ganga um í Kvosinni með buxurnar á hælunum.

Ég gæti þurft að velja eggið í búð! That’s so 1994.

Möl er böl

Tuesday, March 20th, 2007
Rapunzel Früchte Müsli

Það var nær ófyrirgefanlegt af Rapunzel að setja stein í Früchte müsliið mitt.

Þetta er ljósleitt og grófkornótt djúpberg, gæti vel verið granít.

Til eru harðari efni; tannglerungur er ekki eitt þeirra.

Fátt er svo með öllu illt: eftir þrjá áratugi skal ég loks hlýða og tyggja hægar.


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.