Mitt eigið net » Tölv og gagn

Lega gossprungunnar á Fimmvörðuhálsi
Eldgosið á Fimmvörðuhálsi hefur fengið mikla athygli, en nákvæm gögn og myndræn framsetning á staðsetningu gossprungunnar eru vandfundin.

Ég rakst þó á tölur um lengd og legu gossprungunnar í þessari frétt á ruv.is, og sú staðsetning virðist ríma vel við hitamynd úr gervitungli á vef Jarðvísindastofnunar. Þessi staðsetning og stefna sprungunnar virðist líka passa vel við myndirnar úr TF-SIF í kvöld — mér finnst þó eins og myndirnar séu ekki teknar eins mikið að ofan (undir eins stóru horni frá jörðu) og hæð þyrlunnar gefur til kynna, en sjálfsagt er lítið að marka hvað auganu sýnist um það. Þessi staðsetning er því líklega þokkaleg ágiskun.

Ég setti saman í Google Earth eftirfarandi:

þessa ætluðu legu gossprungunnar (ég slumpaði á 750m lengd þar sem RÚV sagði 0,5-1km).

staðsetningar Baldvinsskála og Bása (slumpað út frá myndgögnum í Google Earth)

tvo GPS-slóða (slóði 1 og slóði 2) sem ferðamenn hafa sett inn á Wikiloc-vefinn

uppgefna staðsetningu þyrlunnar TF-SIF þegar myndirnar þrjár á vef Landhelgisgæslunnar voru teknar í kvöld

Gossprungan virðist ná rakleitt yfir gönguleiðina um Fimmvörðuháls, á Bröttufönn.

Hér er KMZ-skrá fyrir Google Earth með þessum gögnum í, og fyrir neðan er yfirlitsmynd af þeim, og nærmynd þar sem sést hvernig sprungan liggur yfir gönguleiðina.

Á myndunum kemur fram höfundarréttur Google o.fl. á kortagögnum.

Njótið vel, og endilega látið mig vita ef eitthvað má betur fara.

Uppfært 22. mars kl. 10:46 — bætti við tveimur myndum hér fyrir neðan með slumpi mínu á tilgátu sigsig (fjólublárri) um staðsetninguna, og línu (gulri) á milli vesturodda Morinsheiðar og Baldvinsskála, sem mér sýnist sprungan liggja á skv. myndum Jarðvísindastofnunar. Línan styður enn frekar staðsetninguna skv. ruv.is, en síðari myndin sýnir svæðið frá nyrsta sjónarhorni þyrlunnar, og út frá henni og þyrlumyndinni sýnist mér stefna sprungunnar liggja u.þ.b. mitt á milli minnar ágiskunar og myndar sigsig. Að auki virðist sprungan á ljósmyndum liggja rétt fyrir sunnan brúnina, ekki yfir hana eins og þessi teikning mín gefur til kynna að hún geri.

(Ættu ekki annars stofnanir og fjölmiðlar að birta þetta með allri þeirri nákvæmni sem þeim er möguleg?)

X-Hvað — lóð á hvaða vogarskálar?
Þrymur Sveinsson og Borgar Þór Einarsson skrifa um X-Hvað-prófið og telja það vinstrisinnað, Samfylkingin og VG komi óeðlilega oft best út.

Könnum það. Mögulegar samsetningar svara í prófinu eru aðeins 511 = 48.828.125 talsins. Það er ekki neitt neitt. Ég renndi snöggvast í gegnum þær allar og tók saman hve oft hver flokkur „vann.“ (1)

Ég útbjó forrit til að keyra prófið hratt; stigaútreikningurinn kemur fram í viðauka í skjali Bifrastarnema. (2)

Niðurstöðurnar voru þessar: (3)

Sjálfstæðisflokkur vann

9.863.828 sinnum, eða í

20,2% tilfella,

og fékk að meðaltali

30,0% stuðning.

Framsóknarflokkur vann

9.383.533 sinnum, eða í

19,2% tilfella,

og fékk að meðaltali

30,0% stuðning.

Samfylkingin vann

9.753.252 sinnum, eða í

20,0% tilfella,

og fékk að meðaltali

30,0% stuðning.

Vinstri græn unnu

11.731.274 sinnum, eða í

24,0% tilfella,

og fengu að meðaltali

30,0% stuðning.

Frjálslyndi flokkurinn vann

8.690.555 sinnum, eða í

17,8% tilfella,

og fékk að meðaltali

30,0% stuðning.

Íslandshreyfingin vann

7.711.475 sinnum, eða í

15,8% tilfella,

og fékk að meðaltali

30,0% stuðning.

Í niðurstöðunum kemur sannarlega fram dálítil slagsíða til vinstri, þó ekki meiri en svo að Sjálfstæðisflokkur vinnur pínulítið oftar en Samfylkingin. Einbeittur brotavilji er varla fyrir hendi.

Heldur hallar á undirmálsflokkana tvo (þið vitið, þessa sem ganga út á að senda ýmist stóriðju eða lélega rúmenska harmónikkuleikara út í hafsauga). Þeir fá minnsta „fylgið“ í þessu prófi; þó er það margfalt meira fylgi en þeir mega vænta á kjördag.

Það er bráðskemmtilegt að formanni Sambands ungra sjálfstæðismanna þyki „ekki vera nokkur leið að taka prófið án þess að út úr því komi að maður eigi helst samleið með Samfylkingunni eða VG.“ Prófið er ofurlítið hlutdrægt en engan veginn nóg til að skýra þessa miklu erfiðleika. Kannski er formaður SUS bara á rangri hillu!

(1) Auðvitað er þessi greining óvísindaleg; raunveruleg svör eru varla jafndreifð yfir mengi mögulegra svara. Til dæmis eru væntanlega frekar fáir á móti bæði stóriðju og útlendingum og jafnframt hlynntir einkavæðingu heilbrigðisgeirans og ríkisstofnana, skólagjöldum í ríkisreknum háskólum, kvótakerfinu, og Evrópusambandsaðild. Samt vega svo ólíkleg svör jafnt á við öll önnur í þessari óformlegu tilraun minni. Þetta er nú líka bara til gamans gert.

(2) Ég þurfti að giska dálítið í eyður; viðaukinn hefur ekki verið uppfærður þegar elleftu spurningunni og Íslandshreyfingunni var bætt við. En þetta ætti að vera nærri lagi.

(3) Já, þessar prósentutölur eru meira en 100% samtals. Þegar tveir flokkar eru jafnir með flest stig teljast báðir vinna.

X-Hvað?
Kosningar fara í hönd. Við reynum öll eftir bestu getu að hrista af okkur áhrif auglýsingastofanna og einbeita okkur að málefnunum. Eitt örsnöggt skref í þá átt er að renna í gegnum prófið X-Hvað sem nemendur á Bifröst hafa útbúið.

Prófið samanstendur af 11 fullyrðingum sem þú lýsir þig samþykkan eða ósamþykkan. Í staðinn færð þú prósentutölur sem lýsa samsvöruninni á milli afstöðu þinnar og stefnu hvers flokks (skv. túlkun prófhöfunda á stefnu flokkanna).

Þetta er ágætur liður í því að endurskoða hvort kjörþokkafulli frambjóðandinn ætti virkilega að fá atkvæðið. Prófaðu!

Tónlystauki
Tónlist er lykilatriði í því að gera vörur lokkandi. Þetta gleymist gjarnan þegar um hugbúnað er að ræða.

Kynningar á hinni prýðilegu (og gjaldfrjálsu) CustomizeGoogle-viðbót við Firefox eru ekki því marki brenndar. Hér er almenn kynning og hér kynning á nýrri virkni.

Ég fræddist ekki verulega af þessum myndskeiðum. En ég held ég verði glaður í hjartanu í allan dag.

Ekkert liggur nú á
Vefbúð/vöruskrá ÁTVR liggur niðri vegna uppfærslu á tölvukerfi okkar. Uppfærslunni lýkur í byrjun júní.

— vinbud.is

Seiseijá, það er nú lágmark að loka í einn og hálfan mánuð. Má ekki minna vera.

Súkkulaðivefir í molum
Nú líður að því að velja heimilinu frjósemishátíðaregg. Ég væri ekki ég ef internetið kæmi ekki við sögu í því vali.

Vefir súkkulaðifyrirtækjanna eru almennt í molum. Það er kannski viðeigandi.

Ásýnd Góu-Lindu á vefnum

Á vef Nóa Síríī er reyndar vörulisti yfir páskaegg, en upplýsingar um hverja tegund eru af skornum skammti og ekki er traustvekjandi að sjá „©2006 Nói Síríus“ í horninu. Vonandi er súkkulaðið nýlegra.

Vefur Góu-Lindu er eins og gammétið hræ. Þar gapa eyðurnar við okkur eins og tóftir í hauskúpu. Ókjörin reynast vera sett saman í Microsoft Word; slíkir vefir eru undantekningalítið andvana fæddir.

Vefur Mónu svarar ekki einu sinni. Það er kannski vegna þess að Freyja keypti Mónu. En …

… vefur Freyju (©2004) virkar en segir ekkert um páskaegg; tengir bara á hinn stjarfaklofa vef Mónu.

Loks er lélegt að þeir tveir vefir sem eru með lífsmarki, hjá erkikeppinautunum Nóa Síríō og Freyju, nota nákvæmlega sama vef-íkonið . Vefirnir eru nefnilega báðir gerðir af sömu vefstofunni, Design EuropA … sem notar einmitt þetta sama íkon á eigin vef. Aldeilis flott.

Þetta er vefhliðstæða þess að ganga um í Kvosinni með buxurnar á hælunum.

Ég gæti þurft að velja eggið í búð! That’s so 1994.