Archive for the ‘Tölv og gagn’ Category

X-Hvað — lóð á hvaða vogarskálar?

Thursday, May 10th, 2007

Þrymur Sveinsson og Borgar Þór Einarsson skrifa um X-Hvað-prófið og telja það vinstrisinnað, Samfylkingin og VG komi óeðlilega oft best út.

Könnum það. Mögulegar samsetningar svara í prófinu eru aðeins 511 = 48.828.125 talsins. Það er ekki neitt neitt. Ég renndi snöggvast í gegnum þær allar og tók saman hve oft hver flokkur „vann.“ (1)

Ég útbjó forrit til að keyra prófið hratt; stigaútreikningurinn kemur fram í viðauka í skjali Bifrastarnema. (2)

Niðurstöðurnar voru þessar: (3)

Sjálfstæðisflokkur vann 9.863.828 sinnum, eða í 20,2% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.
Framsóknarflokkur vann 9.383.533 sinnum, eða í 19,2% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.
Samfylkingin vann 9.753.252 sinnum, eða í 20,0% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.
Vinstri græn unnu 11.731.274 sinnum, eða í 24,0% tilfella, og fengu að meðaltali 30,0% stuðning.
Frjálslyndi flokkurinn vann 8.690.555 sinnum, eða í 17,8% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.
Íslandshreyfingin vann 7.711.475 sinnum, eða í 15,8% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.

Í niðurstöðunum kemur sannarlega fram dálítil slagsíða til vinstri, þó ekki meiri en svo að Sjálfstæðisflokkur vinnur pínulítið oftar en Samfylkingin. Einbeittur brotavilji er varla fyrir hendi.

Heldur hallar á undirmálsflokkana tvo (þið vitið, þessa sem ganga út á að senda ýmist stóriðju eða lélega rúmenska harmónikkuleikara út í hafsauga). Þeir fá minnsta „fylgið“ í þessu prófi; þó er það margfalt meira fylgi en þeir mega vænta á kjördag.

Það er bráðskemmtilegt að formanni Sambands ungra sjálfstæðismanna þyki „ekki vera nokkur leið að taka prófið án þess að út úr því komi að maður eigi helst samleið með Samfylkingunni eða VG.“ Prófið er ofurlítið hlutdrægt en engan veginn nóg til að skýra þessa miklu erfiðleika. Kannski er formaður SUS bara á rangri hillu!


(1) Auðvitað er þessi greining óvísindaleg; raunveruleg svör eru varla jafndreifð yfir mengi mögulegra svara. Til dæmis eru væntanlega frekar fáir á móti bæði stóriðju og útlendingum og jafnframt hlynntir einkavæðingu heilbrigðisgeirans og ríkisstofnana, skólagjöldum í ríkisreknum háskólum, kvótakerfinu, og Evrópusambandsaðild. Samt vega svo ólíkleg svör jafnt á við öll önnur í þessari óformlegu tilraun minni. Þetta er nú líka bara til gamans gert.

(2) Ég þurfti að giska dálítið í eyður; viðaukinn hefur ekki verið uppfærður þegar elleftu spurningunni og Íslandshreyfingunni var bætt við. En þetta ætti að vera nærri lagi.

(3) Já, þessar prósentutölur eru meira en 100% samtals. Þegar tveir flokkar eru jafnir með flest stig teljast báðir vinna.

X-Hvað?

Monday, May 7th, 2007

Kosningar fara í hönd. Við reynum öll eftir bestu getu að hrista af okkur áhrif auglýsingastofanna og einbeita okkur að málefnunum. Eitt örsnöggt skref í þá átt er að renna í gegnum prófið X-Hvað sem nemendur á Bifröst hafa útbúið.

Prófið samanstendur af 11 fullyrðingum sem þú lýsir þig samþykkan eða ósamþykkan. Í staðinn færð þú prósentutölur sem lýsa samsvöruninni á milli afstöðu þinnar og stefnu hvers flokks (skv. túlkun prófhöfunda á stefnu flokkanna).

Þetta er ágætur liður í því að endurskoða hvort kjörþokkafulli frambjóðandinn ætti virkilega að fá atkvæðið. Prófaðu!

Tónlystauki

Friday, April 27th, 2007

Tónlist er lykilatriði í því að gera vörur lokkandi. Þetta gleymist gjarnan þegar um hugbúnað er að ræða.

Kynningar á hinni prýðilegu (og gjaldfrjálsu) CustomizeGoogle-viðbót við Firefox eru ekki því marki brenndar. Hér er almenn kynning og hér kynning á nýrri virkni.

Ég fræddist ekki verulega af þessum myndskeiðum. En ég held ég verði glaður í hjartanu í allan dag.

Ekkert liggur nú á

Sunday, April 22nd, 2007

Vefbúð/vöruskrá ÁTVR liggur niðri vegna uppfærslu á tölvukerfi okkar. Uppfærslunni lýkur í byrjun júní.

vinbud.is

Seiseijá, það er nú lágmark að loka í einn og hálfan mánuð. Má ekki minna vera.

Súkkulaðivefir í molum

Tuesday, April 3rd, 2007

Nú líður að því að velja heimilinu frjósemishátíðaregg. Ég væri ekki ég ef internetið kæmi ekki við sögu í því vali.

Vefir súkkulaðifyrirtækjanna eru almennt í molum. Það er kannski viðeigandi.

Ásýnd Góu-Lindu á vefnum

Ásýnd Góu-Lindu á vefnum

  • Á vef Nóa Síríī er reyndar vörulisti yfir páskaegg, en upplýsingar um hverja tegund eru af skornum skammti og ekki er traustvekjandi að sjá „©2006 Nói Síríus“ í horninu. Vonandi er súkkulaðið nýlegra.
  • Vefur Góu-Lindu er eins og gammétið hræ. Þar gapa eyðurnar við okkur eins og tóftir í hauskúpu. Ókjörin reynast vera sett saman í Microsoft Word; slíkir vefir eru undantekningalítið andvana fæddir.
  • Vefur Mónu svarar ekki einu sinni. Það er kannski vegna þess að Freyja keypti Mónu. En …
  • … vefur Freyju (©2004) virkar en segir ekkert um páskaegg; tengir bara á hinn stjarfaklofa vef Mónu.

Loks er lélegt að þeir tveir vefir sem eru með lífsmarki, hjá erkikeppinautunum Nóa Síríō og Freyju, nota nákvæmlega sama vef-íkonið Freyja eða Nói?. Vefirnir eru nefnilega báðir gerðir af sömu vefstofunni, Design EuropA … sem notar einmitt þetta sama íkon á eigin vef. Aldeilis flott.

Þetta er vefhliðstæða þess að ganga um í Kvosinni með buxurnar á hælunum.

Ég gæti þurft að velja eggið í búð! That’s so 1994.


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.