Archive for the ‘Smartrass’ Category

Meissner og Maharishi

Sunday, April 1st, 2007
Maharishi Mahesh Yogi

Maharishi Mahesh Yogi

<háð>

Stofnun háskólans Maharishi University of Management í Iowa í Bandaríkjunum er eitt margra góðverka sem Maharishi Mahesh Yogi hefur unnið mannkyninu til heilla og heilsubótar.

Lýsingar námskeiða í stærðfræðideild þessa skóla gefa fyrirheit um spennandi nýjungar í túlkun stærðfræðinnar. Hér eru nokkur dæmi:

  • Infinity: From the Empty Set to the Boundless Universe of All Sets — Exploring the Full Range of Mathematics and Seeing its Source in Your Self
  • Maharishi Vedic Mathematics: Mathematical Structure and the Transcendental Source of Natural Law
  • Calculus 1: Derivatives as the Mathematics of Transcending, Used to Handle Changing Quantities
  • Calculus 2: Integrals as the Mathematics of Unification, Used to Handle Wholeness
  • Calculus 3: Unified Management of Change in All Possible Directions
  • Calculus 4: Locating Silence within Dynamism

Þessi jákvæði jógi hrinti af stað byltingu í varnarmálum nú í febrúar með vef sínum „Invincible Defence“. Þar lýsir hann hvernig útrýma megi hryðjuverkum fyrir fullt og allt, meðal annars með stóraukinni ástundun jógaflugs. Þetta er auðskýrt: jógaflugmenn eru í ofurleiðslu sem framkallar Maharishi-hrifin, á svipaðan hátt og ofurleiðni framkallar Meissner-hrifin. Rétt eins og ofurleiðandi efni býr yfir „invincible defence“ gegn segulsviði reisa ofurleiðslujógar órjúfanlegan varnarmúr þjóðar gegn hryðjuverkavá.

Vonandi meðtaka allir sannindi jógans með opnum huga, ótruflaðir af hinum alræmdu fordómum vísindanna.

</háð>

„Ég hélt því hvergi fram að þú hefðir sagt það. Gætirðu bent mér á hvar því er haldið fram?“

Thursday, March 22nd, 2007

Keisarinn er hvergi eins misskeggjaður og í umræðu um umræðu um trú.

Syrgir Alþingi sóðamót?

Friday, February 23rd, 2007

Tvær fyrirsagnir á mbl.is í dag, með 19 mínútna millibili:

13:52 Hætt við klámráðstefnu hér á landi
14:11 Þingflokkar Alþingis harma klámráðstefnu

Harma missinn, þá?

Meginþorri

Saturday, February 3rd, 2007
Meginþorri íslensku þjóðarinnar er haldinn núna-hneigð á háu stigi.
… eru með miklu hærri eða lægri laun en meginþorri hópsins.
Vafalaust er yður sú staðreynd kunn, að meginþorri ágætismanna heimsins er hvorki upprunninn úr stétt öreiga né auðkýfinga.
Ingibjörg Sólrún fullyrti annars vegar að meginþorri Íslendinga hefði sömu lífssýn og Samfylkingin en hefði ekki treyst þingflokknum…
Meginþorri þjóðarinnar vill stöðva frekari álversframkvæmdir, stórvirkjanir og umhverfisspjöll…
… og ítreka það, sem ég hef áður sagt, að meginþorri þeirra er síður en svo ofhaldinn…

Er semsagt til einhver aukaþorri?

Enn skemmtilegra: „allur meginþorri vísindamanna.“ Ekki bara meirihlutinn af meginþorranum. Hann allur!

Helber kúgun

Monday, January 29th, 2007

Af forsíðu sunnudagsmoggans:

Fótboltinn hefur alltaf haft forgang en nú stend ég frammi fyrir þeirri bláköldu staðreynd að ég fæ hærri laun sem verkfræðingur en sem atvinnumaður í knattspyrnu.

Já, nú er mælirinn fullur, réttlætiskenndin komin að þanmörkum. Hingað og ekki lengra.

Ef á þessu landi er einn einasti knattspyrnumaður á verkfræðingslaunum eða þaðan af verra … þá er það einum kúguðum knattspyrnumanni of mikið!

Það er bláköld staðreynd.

Hvenær ætlar þjóðin að hætta að níðast á þessu fólki?

Rífandi spretta í gúrkum

Thursday, January 25th, 2007

Á vinstri kantinum á mbl.is er kassi með fyrirsögninni „Helstu mál.“

Þetta líkar mér; það er vesen að lesa allar fréttir, og nógu illa nýti ég tíma minn þótt ég sói honum ekki líka í fréttir eins og „Talsverðar skemmdir þegar eldur kviknaði út frá tölvu.“

En í kassanum „Helstu mál“ eru núna tvö mál:

  • Saddam Hussein tekinn af lífi — síðasta frétt fyrir átta dögum
  • Byrgið — síðasta frétt fyrir fimm dögum, og svo ekkifrétt í morgun: „Byrgismál rannsakað áfram“

Það eru líklega góðar fréttir að það séu engar fréttir.

Eftir hverju skilgreinast annars „helstu mál?“ Er til dæmis smámál að N-Kóreumenn séu sagðir aðstoða Írana við undirbúning kjarnorkutilraunasprengingar neðanjarðar? Kannski er ekki hægt að flokka mál undir „helstu mál“ nema það sé hægt að flytja fleiri en eina frétt um þau. Og kannski er þessi frétt smámál einfaldlega vegna þess að heimildir um þetta giftusamlega milliríkjasamstarf eru … ja, skoðum bara:

Yfirvöld í Norður-Kórea eru að aðstoða Írana við undirbúning kjarnorkutilraunasprengingar neðanjarðar, samkvæmt heimildum breska blaðsins Daily Telegraph [...]. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz.

Ég las þetta þá af mbl.is, sem þýddi það af haaretz.com (beint undir auglýsingunni „Meet Jewish Singles Near You“), sem kópí-peistaði það upp af telegraph.co.uk, sem hafði það eftir … ónefndum heimildum.

Önnur frétt um þessar mundir er sú að óveður geisi í Evrópu „og hafa tveir látist í umferðarslysum í Þýskalandi.“

Ekki vil ég gera lítið úr dauðsföllum, en í framhjáhlaupi má geta þess að 4.569 manns dóu í umferðarslysum í Þýskalandi árið 2006 að desember frátöldum … þ.e. hátt í fjórtán á dag. Það var örugglega fjandi hvasst í Evrópu, en varla er ólán þessara tveggja vegfarenda til marks um það?

Sterkasti gúrkuvísirinn er þó þessi fyrirsögn á forsíðu pappírsmoggans: „Lögregla kölluð að heimili vegna deilna um tölvunotkun.“

Þegar ég var unglingur stóðu einmitt oft deilur um tölvunotkun mína. Sjaldan sigaði móðir mín þó lögreglunni á mig. Og aldrei lenti það á forsíðu Moggans.

Déjà vu í loftinu

Tuesday, January 2nd, 2007

„Ég ætla núna að tala um þau tækifæri sem við stöndum andspænis, tala um það sem liggur í loftinu [...] Stundum leynir það sér ekki að það liggur eitthvað í loftinu [...] Ég hef tvisvar orðið þess sterklega áskynja í pólitík að eitthvað lægi í loftinu. [...] Veturinn 1993-’94 lá líka eitthvað í loftinu. [...] Og núna liggur eitthvað í loftinu [...] En hvað er það sem liggur í loftinu? [...] Það sem liggur í loftinu er krafan um að gefa stjórnmálunum og stjórnmálaflokkunum nýtt inntak og nýja ímynd. [...] Þær hafa ekki náð að raungera það sem liggur í loftinu.“

Ingibjörg Sólrún í Borgarnesræðu fyrri, 2003

„Árið 2007 ber með sér vonir og væntingar um nýja tíma. Það liggur í loftinu að nú sé kominn tími til að breyta.“

Ingibjörg Sólrún í upphafi áramótaávarps síns í fyrradag

Ætlar hún alveg að gleyma jarðveginum?

Hvar eru Kam og Jafet?

Sunday, October 29th, 2006

„When the literary German dives into a sentence, that’s the last you’ll see of him until he emerges on the other side of the Atlantic with his verb in his mouth.“ — Mark Twain

Í Reykjavíkurbréfi Moggans í dag birtist þessi gullmoli (inndráttur og línuskiptingar eru mín sök):

Ef svo er hlýtur viðhorf þeirra,

sem við lok kalda stríðsins féllust á að fara sáttaleiðina en ekki uppgjörsleiðina gagnvart þeim,

sem ýmist gengu beint erinda Sovétríkjanna hér á Íslandi eða börðust markvisst gegn þeim

sem töldu nauðsynlegt að halda hér uppi vörnum gegn ásælni Sovétríkjanna,

sem leituðu stíft eftir miklum áhrifum hér innanlands,

að breytast.

Markaðsvæn heimsmynd

Friday, October 6th, 2006

Þetta er skemmtileg frétt:

Guðfræðingar hafa haft af því áhyggjur að hugtakið limbó valdi því fólki hugarangri og sálarangist sem syrgir börn sín. Sérfræðingar Páfagarð hafa því komist að þeirri niðurstöðu að öll börn sem deyja hljóti miskunn Guðs, burtséð frá því hvort þau voru skírð eða ekki í lifanda lífi. Benedikt XVI páfi mun að öllum líkindum staðfesta þetta í messu í dag.

Svona á þetta vera.

Það er ekki praktískt að hin eina sanna heimsmynd þurfi að vera meitluð í stein. Ef hún reynist ekki nógu viðkunnanleg eða markaðsvæn er bara að breyta og bæta — leggja málið fyrir sérfræðingana, fá fram málamiðlun, og tilkynna svo stefnubreytinguna í næstu messu. Kannski festa upp plaköt, „Verðlækkun á hugarró og sálarfriði.“ Negla þau á hurðina?

Batnandi kirkjum er best að lifa.

En fyrst endurskoðun er hvort eð er á döfinni: ég hef haft dálitlar áhyggjur af samkynhneigðum vinum mínum, og reyndar mér sjálfum líka með ótætis guðleysið mitt. Það er sko þetta með að þurfa endilega að brenna í helvíti. Ég er voða velmeinandi og hef mér fátt annað en guðsefann til sakar unnið (kannski laumast upp fyrir 90 nokkrum sinnum á landsbyggðinni), og ærlega sagt finnst mér þetta óþarflega harðneskjuleg málalok.

Mætti kannski fá þann dóm mildaðan í leiðinni?

Fjöldapóstur

Wednesday, August 30th, 2006
Fíngerður fjöldapóstur

Vandamálið við óumbeðinn fjöldapóst er að hann er oft svo fíngert settur fram og grípur ekki augað nógu vel.

Það er eins og athyglin mín þjóti alltaf eitthvert annað í stað þess að veita póstinum þann skerf af tíma mínum sem hann á heimtingu á.

Ég held að lausnin felist í því að nota fleiri leturstærðir, fleiri liti, og fleiri samsetningar af feitletrun, undirstrikun, og skáletrun.
Og óreglulegri línuskiptingar, færri bil
á milli efnisgreina, fleyri staffsetningarnýjungar, mislöng bil  á milli   orða, og umfram allt sem allra flest eru-ekki-allir-í-ztuði upphrópunarmerki!!!!!!!!!!

Og letrið Comic Sans MS og krúttlega broskallinn með kartöflunefið :o) ef þess er nokkur kostur.

Það er lykillinn.


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.