Archive for the ‘Pælingar’ Category

Helber kúgun

Monday, January 29th, 2007

Af forsíðu sunnudagsmoggans:

Fótboltinn hefur alltaf haft forgang en nú stend ég frammi fyrir þeirri bláköldu staðreynd að ég fæ hærri laun sem verkfræðingur en sem atvinnumaður í knattspyrnu.

Já, nú er mælirinn fullur, réttlætiskenndin komin að þanmörkum. Hingað og ekki lengra.

Ef á þessu landi er einn einasti knattspyrnumaður á verkfræðingslaunum eða þaðan af verra … þá er það einum kúguðum knattspyrnumanni of mikið!

Það er bláköld staðreynd.

Hvenær ætlar þjóðin að hætta að níðast á þessu fólki?

Kristilegt hugarfar í hnotskurn?

Sunday, January 28th, 2007

gleðifrétt barst á mbl.is að islamstrúaður arabi hefði tekið sæti í ríkisstjórn Ísraels. Spurning hvorum guðinum ætti að þakka fyrir þá mildi; líklega báðum (eða vera dipló og segja þá einn og hinn sama).

Á þessa frétt skrifar Skúli G. Jensson athugasemd, svohljóðandi:

Ég sé Palestínumenn gera það sama!

Þetta er munurinn á Ísraelsmönnum og Palestínumönnum í hnotskurn.

Athuga ber að hér virðist ekki borið saman eðli stjórnmálaástandsins í Palestínu og í Ísrael — heldur eðli fólksins í Palestínu og Ísrael.

Oj.

En auðvitað væri ósanngjarnt af mér að kalla þetta „kristilegt hugarfar í hnotskurn,“ fyrir það eitt að menn virðast vera því hlutdrægari stuðningsmenn Ísraels sem þeir eru meira kristnir.

Um kristilegt hugarfar þurfum við nefnilega ekki að ráðfæra okkur við milliliði; við getum lesið hvernig Kristur sjálfur sýndi hug sinn í orði og verki. Í því skyni er sígild fræðsla að rifja upp Matteus 15:22-28 — ekki vegna þess að sú saga sé dæmigerð, heldur einmitt vegna þess að hún er sagan sem gleymdist að fegra:

22Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, herra, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda.“

23En hann svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: „Láttu hana fara, hún eltir oss með hrópum.“

24Hann mælti: „Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt.“

25Konan kom, laut honum og sagði: „Herra, hjálpa þú mér!“

26Hann svaraði: „Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.“

27Hún sagði: „Satt er það, herra, þó eta hundarnir mola þá, sem falla af borðum húsbænda þeirra.“

28Þá mælti Jesús við hana: „Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt.“ Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu.

Kannski hefur arabinn kallað ríkisstjórnarsætið „mola sem féll af borðum húsbænda hans“ af Ísraelsætt … og uppskorið miskunn með semískum semingi fyrir þá undirgefni, eins og kanverska konan?

Auðvitað þýðir þetta ekki að kristilegt hugarfar sé ljótt. Það er bara ekkert betra en hvert annað hugarfar.

Gyðingar og kristnir eru ekkert verri en annað fólk … en það verður brakandi blíða í Neðra þann dag sem ég samþykki að þeir séu betri.

Og sjálfsagt meinti Skúli þetta ekki eins og það hljómaði. Ég er hins vegar hræddur um að Kristi hafi verið fúlasta alvara, honum fannst kanverska konan léleg og óverðug fyrir það eitt að vera kanversk … en hann var nú líka breyskur, mennskur maður, og barn síns tíma. Og Skúli er þá Kristi fremri að þessu leyti — hann kæmi ekki svona fram við útlending fyrir það eitt að vera útlendingur! Enda nýtur Skúli, og við öll, tvö þúsund ára framþróunar mannlegrar hugsunar síðan Kristur var uppi.

Frjálslyndi og frjálshyggja

Sunday, January 28th, 2007

Í huga sumra Bandaríkjamanna — einkum þeirra sem eru með orðið liberty á heilanum — er orðið liberal eitthvert versta skammaryrði sem ensk tunga býður upp á.

Orðið libertarian þýðir síðan allt annað, og þeir sem kalla sig libertarian gefa flestir lítið fyrir bæði liberals og hina liberty-hneigðu hatursmenn þeirra, og kasta atkvæðum sínum jafnvel í einhvern sérvitringaflokk með enn minna fylgi en Frjálslyndir eða Framsókn.

Vel á minnst, frjálslyndir. Á íslensku háttar ámóta skringilega um orðin „frjálshyggju“ og „frjálslyndi,“ en þessar tvær hneigðir rúmast illa í sama kollinum. Jafnvel ekki í sama vinahópnum, þegar um hastarleg tilfelli er að ræða. Frjálslyndum og frjálshyggnum lyndir oft (hygg ég) alveg bölvanlega saman, því að lyndir eru yfirleitt jafnaðarmenn, og hyggnir ójafnaðar.

Af orðanna hljóðan virðist helsti munurinn á frjálshyggju og frjálslyndi vera að frelsisástin tengist hyggjuviti í öðru en lundarfari í hinu. Enda er alkunna að orðanna hljóðan er sjaldnast brúkleg til skilningsauka.

Hitt er hins vegar morgunljóst: orðið frjálslyndi er á hraðri niðurleið — og tók einmitt væna dýfu í dag.

Við óskum öll Magnúsi Þór til hamingju með stýrimannsembættið á óásjálegri bátskænu sem marar í hálfu kafi. Nú þegar Baugsmálið er frá mega hinir raunverulegu máttarstólpar samfélagsins — aðflutta vinnuaflið — fara að vara sig!

Gandálfur og sauðfjárlögin

Friday, January 26th, 2007
Framfarir og Framsókn

Framfaramaðurinn Gandálfur og framsóknarforynjan X-Balrog.

Í Hringadróttinssögu er hádramatísk viðureign þar sem hetjan Gandálfur grái sundrar brúnni í Khazad-dûm undan skrímslinu Balrog, en í fallinu nær ófreskjan að krækja logandi svipu sinni um kné Gandálfs og þeyta honum með sér niður í botnlaust gljúfrið.

Þarna var ég virkilega óánægður með Tolkien. Af hverju þurfti hið illa endilega að fá að gera svona herfilegan óskunda í kveðjuskyni þegar því var sparkað út?

En að allt öðru. Nú hefur Guðni Ágústsson, sem er aaalveg að fara að hrapa úr brúnni og frá völdûm, komist upp með að krækja í 16,4 milljarða króna og þeyta þeim með sér niður í þá botnlausu hít, sauðfjárbransann, næstu átta árin.

Ef einhver skyldi fá þá flugu í höfuðið að þetta væri ekki markviss ráðagerð, þá gerir Guðni dúsunni upp nokkur „markmið“, þeirra á meðal:

„Að örva markaðsvitund bænda og afurðastöðva og halda jafnvægi milli framleiðslu og eftirspurnar“

örva markaðsvitund bænda með því að hafa þá á framfæri ríkissjóðs! Það er eins og að efla sjálfstæða hugsun fólks með því að halda fyrirlestra yfir því, eða stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að kalla út herinn, eða hvetja til holls mataræðis með því að gefa út frímiða á McDonalds — í átta ár!

Mörgum þykir hin skrautlega og málefnafælna orðræða Guðna skemmtileg. En þetta skemmtiatriði er of dýrt. Hvers vegna helst honum uppi, í miðju hrapinu ofan í gljúfrið í Khazad-dûm (þ.e. niður í stjórnarandstöðu), að draga fjárlög næstu tveggja kjörtímabila niður í þetta botnlausa og forneskjulega ríkisstyrkjagljúfur? Eru fjármála- og forsætisráðherra ekki menn til að segja nei? Vilja þeir þetta? Eða hefur Guðni eitthvert tak á þeim?

Vilji ríkið „halda“ jafnvægi á milli þeirra vinkvenna, framleiðslu og eftirspurnar, þá er til einföld og ódýr aðferð: að láta þær báðar í friði.

Rífandi spretta í gúrkum

Thursday, January 25th, 2007

Á vinstri kantinum á mbl.is er kassi með fyrirsögninni „Helstu mál.“

Þetta líkar mér; það er vesen að lesa allar fréttir, og nógu illa nýti ég tíma minn þótt ég sói honum ekki líka í fréttir eins og „Talsverðar skemmdir þegar eldur kviknaði út frá tölvu.“

En í kassanum „Helstu mál“ eru núna tvö mál:

  • Saddam Hussein tekinn af lífi — síðasta frétt fyrir átta dögum
  • Byrgið — síðasta frétt fyrir fimm dögum, og svo ekkifrétt í morgun: „Byrgismál rannsakað áfram“

Það eru líklega góðar fréttir að það séu engar fréttir.

Eftir hverju skilgreinast annars „helstu mál?“ Er til dæmis smámál að N-Kóreumenn séu sagðir aðstoða Írana við undirbúning kjarnorkutilraunasprengingar neðanjarðar? Kannski er ekki hægt að flokka mál undir „helstu mál“ nema það sé hægt að flytja fleiri en eina frétt um þau. Og kannski er þessi frétt smámál einfaldlega vegna þess að heimildir um þetta giftusamlega milliríkjasamstarf eru … ja, skoðum bara:

Yfirvöld í Norður-Kórea eru að aðstoða Írana við undirbúning kjarnorkutilraunasprengingar neðanjarðar, samkvæmt heimildum breska blaðsins Daily Telegraph [...]. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz.

Ég las þetta þá af mbl.is, sem þýddi það af haaretz.com (beint undir auglýsingunni „Meet Jewish Singles Near You“), sem kópí-peistaði það upp af telegraph.co.uk, sem hafði það eftir … ónefndum heimildum.

Önnur frétt um þessar mundir er sú að óveður geisi í Evrópu „og hafa tveir látist í umferðarslysum í Þýskalandi.“

Ekki vil ég gera lítið úr dauðsföllum, en í framhjáhlaupi má geta þess að 4.569 manns dóu í umferðarslysum í Þýskalandi árið 2006 að desember frátöldum … þ.e. hátt í fjórtán á dag. Það var örugglega fjandi hvasst í Evrópu, en varla er ólán þessara tveggja vegfarenda til marks um það?

Sterkasti gúrkuvísirinn er þó þessi fyrirsögn á forsíðu pappírsmoggans: „Lögregla kölluð að heimili vegna deilna um tölvunotkun.“

Þegar ég var unglingur stóðu einmitt oft deilur um tölvunotkun mína. Sjaldan sigaði móðir mín þó lögreglunni á mig. Og aldrei lenti það á forsíðu Moggans.

Mannfólkið skiptist í tvo hópa …

Tuesday, January 9th, 2007
Ourobouros

… þau sem eru með það á heilanum að mannfólkið skiptist í hópa, og okkur hin.

Og hópahausarnir halda að þeirra hópur sé betri en allir hinir.
Að því leyti (meðal annars) erum við hin betri en þeir.

Örspeki dagsins

Friday, January 5th, 2007

Því sterkari sem sannfæring er, því auðveldar framkallar hún sjálfhverfu og yfirlæti.

Mölur og ryð

Saturday, December 30th, 2006

Sennilega væri til hagsbóta fyrir andlegan þroska okkar og gildismat að mölur og ryð verkuðu tífalt hraðar.

Það væri hins vegar til baga í viðhaldi heimila og bíla.

Svona í meðallagi ótengt þessu: þegar starfsmenn Miklagljúfursþjóðgarðsins í Bandaríkjunum eru spurðir að aldri Miklagljúfurs (Grand Canyon), svara þeir „no comment.“ Þeir mega ekki gefa upp áætlaðan aldur þess. Hvers vegna ekki? Jú, vegna þess að það færi í taugarnar á sköpunartrúuðu fólki sem vill að Miklagljúfur hafi orðið til í Syndaflóðinu.

Þetta er ekki grín, og ekki tilviljun eða sérviska starfsmanna. Þetta er stefna ríkisstjórnar Bush. Meira um þetta hér.

Kvikmyndaógagnrýni

Wednesday, December 27th, 2006

Kátur um kvöldið.
Sá svo íslenska kvikmynd.
Hátta sorgmæddur.

Frelsi

Monday, December 25th, 2006

(Nei, þetta er ekki hægrihreintrúarpistill, hvað sem fyrirsögninni líður.)

Það er eitt sem einkennir fyrrihluta jóladags, umfram aðra daga: sú tilfinning að hafa raunverulegan frítíma, fleiri klukkutíma af honum, engin verk sem bíða, engar kröfur á tíma minn.

Ég get lesið bækur, skrifað einhverjar innantómar pælingar á netið, fiktað í arabískukennsluefninu mínu, framið eitthvert bull á píanóið, lesið aðeins meira, gleymt mér í einhverju dútli tímunum saman, og það er allt í lagi.

Þetta er auðvitað hrein blekking; það er fullt sem bíður. Nemendur mínir verða ekkert kátir að þurfa að bíða einum degi lengur eftir einkunnum sínum. Hugbúnaðurinn sem ég vinn að á að vera tilbúinn helst í bítið í gærmorgun. Íbúðin hefði afar gott af tiltekt, og ég þarf að gá að olíunni á bílnum og þrífa eldavélina. Og aðra daga ársins finn ég alveg frítíma við og við, jafnvel stundum í sama magni og í dag (sérstaklega ef ég fer fyrr á fætur).

En í dag, í tilefni vetrarsólstöðuhátíðar og fæðingar Krists árið 6 fyrir Krist, í mars, leyfði ég mér sjálfsblekkinguna. Og sannlega naut ég hennar.


Bad Behavior has blocked 20 access attempts in the last 7 days.