Archive for the ‘Orð og mál’ Category

Víxlarar!

Sunday, November 5th, 2006
Gróðinn

Er það ímyndun mín, eða nota fjölmiðlar kerfisbundið mismunandi orð yfir góða afkomu fyrirtækis? Mér finnst eins og hún heiti „hagnaður“ ef fyrirtækið er eitthvað gott og þóknanlegt eins og fiskimjölsverksmiðja, en „gróði“ ef fyrirtækið er eitthvað í eðli sínu ljótt og illgjarnt eins og t.d. banki.

Þessi greinarmunur er auðvitað óþarfur. Óháð atvinnugreinaflokkun er hagnaður hvarvetna til marks um siðleysi og síngirni. Að græða er að nurla saman peningum sem annars hefði mátt nota strax til góðra verka. Þetta sjá allir góðir menn.

Hvar eru Kam og Jafet?

Sunday, October 29th, 2006

„When the literary German dives into a sentence, that’s the last you’ll see of him until he emerges on the other side of the Atlantic with his verb in his mouth.“ — Mark Twain

Í Reykjavíkurbréfi Moggans í dag birtist þessi gullmoli (inndráttur og línuskiptingar eru mín sök):

Ef svo er hlýtur viðhorf þeirra,

sem við lok kalda stríðsins féllust á að fara sáttaleiðina en ekki uppgjörsleiðina gagnvart þeim,

sem ýmist gengu beint erinda Sovétríkjanna hér á Íslandi eða börðust markvisst gegn þeim

sem töldu nauðsynlegt að halda hér uppi vörnum gegn ásælni Sovétríkjanna,

sem leituðu stíft eftir miklum áhrifum hér innanlands,

að breytast.

34% hærri dánartíðni

Saturday, October 21st, 2006
Um hollustu reykinga.

Á Vísindavefnum er fjallað um mismunandi drápsgetu hinna ýmsu tóbaksgerða. Þar kemur fram meðal annars:

Niðurstöður rannsókna sýna að dánartíðni þeirra sem reykja vindla er 34% hærri en hjá þeim sem ekki reykja.

Og ég sem hélt að dánartíðni mannsins væri 100%, óháð reykingum.

Ég er ekki bara að snúa út úr (ekki bara). Hvað þýðir þetta eiginlega? Hvernig er þetta skilgreint?

„Tíðni“ þýðir fjöldi á tímaeiningu. Þetta er þá líklega fjöldi dauðsfalla á ári. Þýðir þetta að 34% fleiri vindlareykingamenn en reyklausir deyi á ári? Varla, því að vindlareykingamenn eru ekki svo margir. Þýðir þetta þá að ef 1% af reyklausa hluta þjóðarinnar deyr á ári, þá deyi 1,34% af vindlareykjandi hluta þjóðarinnar á ári? Eða eitthvað annað?

Ég er ekki að rengja töluna — ég gæti það ekki, því að ég skil ekki hvað hún þýðir. Er þetta augljóst, er það bara ég sem skil það ekki?

Málfarsleg fyrirmynd

Monday, October 16th, 2006
Kratarósin
  1. Það er varla tilviljun
  2. að þegar Össur fjallar um Jón Baldvin
  3. byrja fimm af ellefu paragröfum á:
  4. „í n-ta lagi“
  5. þar sem n er pósitíf heiltala.

Enskar þýðingar

Wednesday, October 4th, 2006

“Modern English is the Wal-Mart of languages: convenient, huge, hard to avoid, superficially friendly, and devouring all rivals in its eagerness to expand.”

— Mark Abley, journalist

Ég hélt dálitla kynningu í vinnunni í dag. Ég var hvattur til að hafa hana á íslensku en ekki ísl-ensku, þ.e. forðast að nota ensk heiti á hugtökunum sem um ræddi. Það getur verið erfitt þegar talað er um aðferðafræði í hugbúnaðargerð, en ég reyndi samt að fara eftir þessum tilmælum að mestu leyti.

Það var allt í lagi; ég þurfti bara að láta fljóta með enskar þýðingar á íslensku orðunum, svo að (hinir alíslensku) áheyrendur skildu hvað ég meinti.

Sá sem hvatti mig til hreintungustefnunnar mætti svo ekki sjálfur. Það var og.

Hinn flóðlýsti einvaldur

Friday, August 25th, 2006

Türkmenbaşı

Jón Björnsson glefsar í Grettlu

Sunday, August 20th, 2006

Jón Björnsson sér um pistilinn „Furður hversdagslegra fyrirbæra“ í þættinum Víðu og breiðu á RÚV á föstudögum. Í síðustu viku og þaráður gerir hann sér Grettis sögu að efniviði. Hér eru nokkrar glefsur:

[Grettir] var rauðhærður eins og Júdas Ískaríot, og freknóttur, en hvorugt þessa er talið gæfumerki. Enda er í Grettis sögu frá því sagt að snemma hafi hann orðið ódæll, sem á nútímamáli þýðir að hann sýndi andfélagslega hegðun og þrjóskuraskanir.

Ótal heimildir eru um hve illa stjúpmæður geta lagst í börn, og dugir að vísa til þeirra Mallhvítar og Öskubusku hvað það varðar. Það fór heldur ekki vel á með Þorbirni og stjúpmóður hans, hún krafsaði úr honum annað augað með leikfangi, en hann drap hana í staðinn.

Á þessum árum ræddu menn aldrei svo saman í fimm mínútur að þeir settu ekki fram klassísk spakmæli, og Þorbjörn sagði við þetta tækifæri „Sinnar stundar bíður hvat, og muntu ills bíða,“ sem þýðir „wait and see, you fucking bastard.“

Úr bátnum lagði hún þau álög á Gretti að hann skyldi eftir þetta vera öllum heillum horfinn, allri giftu og gæfu, allri vörn og visku, og allt þetta því meira sem hann lifði lengur.

Mönnum getur nú sárnað yfir minnu, og Grettir kastaði steini í kerlinguna og braut á henni lærlegginn, sennilega lærleggshálsinn, sem er viðkvæmur á eldri borgurum.

Þorbjörn fékk skömm í hattinn fyrir drápið á Gretti á Alþingi sumarið eftir, í fyrsta lagi af því að hann hafði beitt göldrum, og í öðru lagi af því að Grettir var varnarlaus og hálfdauður þegar Þorbjörn vann á honum. Þetta var nefnilega á þeim árum þegar Íslendingum þótti enn smánarlegt að sparka í liggjandi mann.

Þorbjörn endar í Miklagarði og Þorsteinn Ásmundarson fer eftir, hefnir hálfbróður síns (höggið „varð svo mikið að í jöxlum nam staðar“) …

… en af því að menn þarna syðra þekktu ekki aðdragandann og skildu ekki hversu brýnt réttlætismál þetta var, þá stungu þeir Þorsteini ofan í dýflissu og þar var bæði fámennt, fúlt og kalt, eins og segir í Grettis sögu.

Þarna sat nú Þorsteinn og leiddist en til að stytta sér stundir tók hann að syngja dægurlög þeirra tíma við raust, og gerði það bæði hátt og vel.

Söngurinn liðaðist út um rimla glugganna, eftir nærliggjandi götu, uns hann smaug inn í hlustirnar á göfugri garðshúsfreyju úr Miklagarði, sem var að koma úr búðarferð. Hún hét Spes. Það er latína og þýðir von, og hefur í sjálfu sér ekkert með það að gera hversu spes þessi kona var í reynd.

Ástin er óútreiknanleg og ákaflega órökrétt kennd, og söngurinn, líklega skær tenór með norskum framburði, kveikti óviðráðanlega ástarhrifningu í hjarta þessarar góðu konu — en þar hófst ástin í gamla daga áður en hún breiddist út til heilans og æxlunarfæranna.

Og svo segir frá snilldarbragði þeirra Spesar og Þorsteins, eiðgabbi sem Clinton hefði verið fullsæmdur af nálega þúsöld síðar:

Betlararæfill hímdi við vegbrúnina og bauð Spes að bera hana yfir pollinn, og það þáði hún. Það var varla að hann loftaði henni, og þegar hann var rétt kominn að landi, kirkjumegin pollsins, þá tók hann að skjögra undir henni. Það stóðst á endum að þegar hann gat kastað henni upp á bakkann var þrek hans þrotið, hann datt og slæmdi hendinni í fallinu alveg óvart uppundir kjólinn og, sem maður segir, beint í píkuna á henni.

(Spes gat þá í einlægni eiðsvarið fyrir biskupi að enginn karlmaður hefði hana saurgað annar en eiginmaður hennar … nema að vísu þessi betlararæfill sem óvart káfaði á henni fyrr um daginn fyrir allra augum. Sá var náttúrulega launfriðillinn Þorsteinn í dulargervi, og eiðurinn því tæknilega sannur. Guð og biskupinn kokgleyptu þetta báðir.)

Gufan er vanmetin. Grettis saga líka.

Formælingar

Sunday, August 6th, 2006

Jarðarber sem er ekki lengur jarðarber heldur hvítur hnoðri þarf að fara í ruslið, þótt það hafi einhvern tíma verið prýðilegasta jarðarber.

Orðið „formælandi“ sömuleiðis.

Orðengilsháttur

Wednesday, July 5th, 2006
Orðengill

Þrátt fyrir alþekkt ofurskipulag mitt á íbúð og eigum og lífinu öllu hef ég týnt bók sem ég vildi gjarnan finna núna. Hún heitir Orðengill og er safn Sverris Stormskers af nýstárlegum orðskýringum gamalla orða, t.d. „viðbjóður = timbursölumaður“ og „fantasía = dyravörður á skemmtistað.“

Ég er veikur fyrir svona barnaskap eins og Sverrir, og á meðan ég finn ekki bókina neyðist ég til að ástunda minn eigin orðengilshátt. Hér eru nokkrir englar:

Óþverri
Gnægtabrunnur, óþrjótandi auðlind
Forgjöf
Sinnuleysi, að gefa skít í hlutina
Undanrenna
Heigull, sá sem hleypst undan merkjum
Lærdómur
Fegurðarsamkeppni. Mögulega vaxtarræktarkeppni.

Vesalings íslenskunemarnir

Monday, July 3rd, 2006
James að borða brauð

Skyndilega rann á hann mataræði og hann fékk sér hungursneið af prestsbrauði.

Hvernig á nokkur maður að læra þetta mál?

Ég er ekki háttvís maður; er bæði illa kunnugur kveðskapartegundum og hef sjaldnast vit á að hátta á réttum tíma. Prófa að gera það núna með fyrra mótinu.

Myndin er notuð með leyfi höfundar.Mynd eftir James Neill. Sum réttindi áskilin.


Bad Behavior has blocked 43 access attempts in the last 7 days.