Archive for the ‘Orð og mál’ Category

Kennimark hinna sókratísku

Thursday, June 19th, 2008
Sókrates

Sókrates beitti gjarnan nafngiftum á borð við „fasista“ og „talibana“ til að vanda sérstaklega til rökræðu sinnar.

Tilgáta: Hvar sem orðið „fasismi“ sést í fyrirsögn pistils veit það á vel ígrundaða og réttsýna ritsmíð, sem getur af sér ekki síður frjósama og vandaða umræðu. Þar dregur enginn taum fastmótaðra skoðana á kostnað málefnalegrar greiningar, heldur kappkostar hver og einn að meðtaka inntakið í innleggjum mótpenna sinna, bræða með sér hvort þeir hafi mögulega nokkuð til síns máls, svara þeim gagnort og án þarflauss kvabbs, og allra síst láta upplifun sína á persónu, framkomu eða ritstíl nokkurs andstæðings þvælast fyrir sókninni að kjarna málsins. Menn draga fram það besta hver í öðrum og hafa allir sóma af. Svona vönduð netspjöll eru réttnefnd skoðanaskipti vegna þess hve algengt er að þátttakendur láti sannfærast af gæðum mótrakanna og skipti um skoðun.

Hliðartilgáta: Svipað gæðamerki er orðið „talíbani“.

Laustengd tilgáta: Hver sá sem vekur athygli á málvillum og fljótræðis-stafsetningu andmælenda sinna í opinberri umræðu gerir það einatt af stökustu hjálpsemi og góðvild, allsendis yfirlætislaust og síður en svo til að koma á þá ómálefnalegu höggi. Hann verður maður að meiri fyrir viðvikið.

Abbababb

Monday, April 21st, 2008

Forsíða e-konnúmistans

Stundum tekst forsíðuhönnuðum alveg sérstaklega vel upp.

Þessi mynd gæti bara ekki verið betri.

Það rann upp fyrir öðrum hvorum okkar bræðranna (man ekki hvorum) að Berlusconi, sem hefur líkt sjálfum sér við bæði Napóleon og Jesú í sömu vikunni, er eins og Zaphod Beeblebrox með færri höfuð.

(Þeir sem ekki þekkja Zaphod Beeblebrox verða bara að fara á mis.)

Lærði nýtt orð í dag

Sunday, April 13th, 2008

Ég get ekki ábyrgst að ég hafi ekki einhvern tíma gerst sekur um kynþokkafordóma.

Davíð veiði rísbjörn

Thursday, April 10th, 2008

Björn með engan kaupáhuga

Í fyrirsögn í Vegvísi Landsbankans:

Hrísgrjónaverð rís

Því alveg ótengt, í Viðskiptablaðinu Markaðnum í morgun:

… að til standi að egna gildrur fyrir spákaupmenn sem tekið hafi stöðu gegn íslensku efnahagslífi, svokallaðar bjarnargildrur, væntanlega með vísun í bandaríska fjárfestingarbankann Bear Stearns.

Úbbs. Bjarnargildrur heita eftir björnum (e. bears), þeim sem veðja á verðlækkanir á mörkunum. Það er neyðarlegt að þeim sem skrifa um fjármálamarkaði í Viðskiptablaðið Markaðinn sé það ekki ljóst. Þessi orðnotkun er alkunna í geiranum.

Bankinn heitir (eða hét) einfaldlega eftir stofnendunum Joseph Bear og Robert Stearns. Heitin „bull“ og „bear“ á bjartsýnum og svartsýnum fjárfestum eru a.m.k. 140 árum eldri en Bear Stearns.

Ég eignaði í fyrstu Viðskiptablaðinu þessa bommertu. Það var mín bommerta, þetta var víst Markaðurinn að villa á sér heimildir með laxableika pappírnum.

„Skýjaborgir … reistar á sandi“

Sunday, January 27th, 2008

Töff texti í Pressu!

Svo heyrði ég þessa fyrirsögn hafða eftir einhverju blaðinu: „Leki skaut upp kollinum á Íþöku.“

Æði.

Óvart með ráðum gert?

Wednesday, August 29th, 2007

Á mbl.is:

„Meinafræðingur í Vín heldur því fram að læknir Beethovens hafi ráðið tónskáldinu bana með því að setja óvart of stóran skammt af blýi út í lyf sem Beethoven tók.“

Er hægt að ráða manni bana … óvart?

Af aflþynnum og álþykkju

Tuesday, August 21st, 2007

Nokkrar orðskýringar:

Þynna
Þunn filma (foil) úr einhverju efni.
Álþynna
Það sem Becromal framleiðir, þunn filma úr áli. Eins konar þunnur og vandaður álpappír.
Þéttir (capacitor)
Íhlutur í rafrásum, yfirleitt búinn til úr upprúlluðum þynnum (oft álþynnum), svona eins og samlokur eru búnar til úr brauði (oft heilhveitibrauði). Becromal framleiðir ekki þétta.
Aflþéttir (power capacitor)
Tiltekin gerð af þétti sem ekki hefur komið sérstaklega við sögu í umræðunni. Álþynnurnar frá Becromal má nota í slíka þétta en líka í aðrar tegundir þétta. Þannig hafa þynnurnar ekkert sérstakt með afl að gera þótt til séu þéttar sem heita aflþéttar. Eins förum við ekki að kalla allt brauð „heilsubakstur“ bara af því að Sómi framleiðir samloku sem heitir Heilsubiti.
Aflþynna
Bullorð, líklegast soðið saman til að þurfa ekki að nota grýluorðið „ál“ vegna útbreiddrar álþykkju.

Nú hefur ráðherra þó bitið á jaxlinn og tekið upp orðið „álþynna“ á vef sínum. Hann heldur samt enn að það sé íslenskun á „capacitor,“ þrátt fyrir ítrekaðar leiðréttingar á hans eigin vef og víðar. Þetta er hliðstætt því að halda fast í þá skoðun að „brauðsneið“ sé firnagott nýyrði yfir „sandwich“ — bara af því að maður er ekki alveg með á hreinu hvað „sandwich“ er.

Aflþynnuhátækni

Thursday, August 16th, 2007

Iðnaðarráðherra fjallar á netmiðli sínum um fyrirtækið Becromal, sem:

framleiðir það sem við höfum kallað aflþynnur. Það er íslenskun á útlenska orðinu “capacitor”. Aflþynnur eru rafhúðaðar álþynnur sem eru notaðar í rafþéttaiðnaði.

Ef ráðherra hefði leitað til Orðanefndar RVFÍ hefði hann vitað að íslenskun orðsins „capacitor“ er „þéttir“ og hefur verið það áratugum saman. Margir þéttar eru smíðaðir úr þessari framleiðsluvöru Becromal, sem er að sönnu þunn en hefur lítið með afl að gera (þótt þéttar úr svona þynnum séu meðal annars notaðir í aflgjafa).

Annars er óþarft að leita langt yfir skammt að heiti þessarar vöru: á vef fyrirtækisins heitir hún „aluminium foil.“ Þá uppfinningu hafa Íslendingar þekkt áratugum saman og kallað álpappír. Sá álpappír sem er notaður í þétta er væntanlega þynnri og vandaðri og dýrari. Hann er nú samt álpappír.

Það þótti kannski ekki hljóma nógu svalt og hátæknilegt?

„Ekki er vitað hvað manninum gekk til“

Saturday, July 21st, 2007

Mætti ekki bara nema þennan frasa á brott úr frasaforða fréttamanna?

Martröð á Dalvík

Wednesday, June 27th, 2007

Martröð á Dalvík

Í Reykjavík er gata meðfram sjó sem heitir Sæbraut.

Svo er þar önnur gata meðfram sjó sem heitir Ægisíða (með einu essi).

Á Dalvík er hins vegar gata meðfram sjó sem heitir … Martröð.

Prik fyrir það!


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.