Archive for the ‘Ljós og mynd’ Category

Lega gossprungunnar á Fimmvörðuhálsi

Monday, March 22nd, 2010

Eldgosið á Fimmvörðuhálsi hefur fengið mikla athygli, en nákvæm gögn og myndræn framsetning á staðsetningu gossprungunnar eru vandfundin.

Ég rakst þó á tölur um lengd og legu gossprungunnar í þessari frétt á ruv.is, og sú staðsetning virðist ríma vel við hitamynd úr gervitungli á vef Jarðvísindastofnunar. Þessi staðsetning og stefna sprungunnar virðist líka passa vel við myndirnar úr TF-SIF í kvöld — mér finnst þó eins og myndirnar séu ekki teknar eins mikið að ofan (undir eins stóru horni frá jörðu) og hæð þyrlunnar gefur til kynna, en sjálfsagt er lítið að marka hvað auganu sýnist um það. Þessi staðsetning er því líklega þokkaleg ágiskun.

Ég setti saman í Google Earth eftirfarandi:

  • þessa ætluðu legu gossprungunnar (ég slumpaði á 750m lengd þar sem RÚV sagði 0,5-1km).
  • staðsetningar Baldvinsskála og Bása (slumpað út frá myndgögnum í Google Earth)
  • tvo GPS-slóða (slóði 1 og slóði 2) sem ferðamenn hafa sett inn á Wikiloc-vefinn
  • uppgefna staðsetningu þyrlunnar TF-SIF þegar myndirnar þrjár á vef Landhelgisgæslunnar voru teknar í kvöld

Gossprungan virðist ná rakleitt yfir gönguleiðina um Fimmvörðuháls, á Bröttufönn.

Hér er KMZ-skrá fyrir Google Earth með þessum gögnum í, og fyrir neðan er yfirlitsmynd af þeim, og nærmynd þar sem sést hvernig sprungan liggur yfir gönguleiðina.

Á myndunum kemur fram höfundarréttur Google o.fl. á kortagögnum.

Njótið vel, og endilega látið mig vita ef eitthvað má betur fara.

Uppfært 22. mars kl. 10:46 — bætti við tveimur myndum hér fyrir neðan með slumpi mínu á tilgátu sigsig (fjólublárri) um staðsetninguna, og línu (gulri) á milli vesturodda Morinsheiðar og Baldvinsskála, sem mér sýnist sprungan liggja á skv. myndum Jarðvísindastofnunar. Línan styður enn frekar staðsetninguna skv. ruv.is, en síðari myndin sýnir svæðið frá nyrsta sjónarhorni þyrlunnar, og út frá henni og þyrlumyndinni sýnist mér stefna sprungunnar liggja u.þ.b. mitt á milli minnar ágiskunar og myndar sigsig. Að auki virðist sprungan á ljósmyndum liggja rétt fyrir sunnan brúnina, ekki yfir hana eins og þessi teikning mín gefur til kynna að hún geri.

(Ættu ekki annars stofnanir og fjölmiðlar að birta þetta með allri þeirri nákvæmni sem þeim er möguleg?)

What, me worry?

Monday, September 29th, 2008

Forsíða Glitnis í dag:

Þarf ég að hafa áhyggjur?

Abbababb

Monday, April 21st, 2008

Forsíða e-konnúmistans

Stundum tekst forsíðuhönnuðum alveg sérstaklega vel upp.

Þessi mynd gæti bara ekki verið betri.

Það rann upp fyrir öðrum hvorum okkar bræðranna (man ekki hvorum) að Berlusconi, sem hefur líkt sjálfum sér við bæði Napóleon og Jesú í sömu vikunni, er eins og Zaphod Beeblebrox með færri höfuð.

(Þeir sem ekki þekkja Zaphod Beeblebrox verða bara að fara á mis.)

Þetta þykir mér vel gert

Wednesday, August 22nd, 2007

Örvænting eftir Josh Sommers

Stóra váið, trúarhvötin, og virðing

Saturday, May 19th, 2007

Norðurljós séð af jörðu

Norðurljós séð úr geimnum

Norðurljós séð af romko_chuk

Norðurljós séð af dphershman

Í nýjasta pistli Davíðs Þórs Jónssonar rekur hann á bráðfallegan hátt hvernig það atvikaðist að hann fór að trúa á Guð.

Sagan minnti mig á nótt eina að nýfengnu bílprófi þegar ég renndi upp að leiði afa míns og spilaði fyrir hann (þ.e. fyrir ímynd hans í höfði mínu) Tableaux-etýður Rachmaninovs úr bílgræjunum undir iðandi marglitum norðurljósum í frostköldu logni.

Þetta var ólíkt minna töffaralegt en nótt Davíðs Þórs, hann var háseti á línubáti frá Sandgerði, og ég einhver píanómélkisa. En eins og hann upplifði ég ljósadýrð á himni, frostlogn, algera kyrrð (á milli etýða), líf og dauða allt um kring, og ég fylltist allur einu heljarstóru „vái.“

Það er vandskýrt hvers vegna svona heljarstórt „vá“ fékk Davíð Þór og marga aðra til að trúa, en ekki mig. Sumir vilja skýra það með því að við þessi guðlausu berum minna skynbragð en aðrir á mikilfengleika heimsins, séum firrt og deyfð af tómhyggju og sálarleysi, blinduð af ískaldri og vonarsnauðri þoku. Óváfær.

Sú kenning er ósönn (í það minnsta um mig) og yfirlætisfull. Vonandi aðhyllist Davíð Þór hana ekki; hann bætti a.m.k. við þessum góðu orðum: „Ég áfellist engan sem er ekki sama sinnis.“

Það viðhorf líkar mér vel, en svo illa vildi til að varla kortéri áður hafði ég rekist inn á blogg hins harðbrjósta „Hnakkusar“ og hikstað þar á gamalli athugasemd eftir títtnefndan Davíð Þór:

„Mun nær væri því að telja trúleysi til úrkynjunar (óeðlilegheita), trúlaus maður sé svona eins og býfluga sem safnar ekki hunangi, ósyndur hvalur, ófleygur örn. Í ljósi þess tek ég undir með þér: Ætli eðlilegt fólk fái einhvern tíma að lifa í friði fyrir þessum aumingjum?“

Virða verður Davíð Þór til afsökunar að þetta var svar hans við pistli sem seint verður kallaður diplómatískur (fyrirsögnin „Trúarlúðar“ er það minnsta). Hnakkus leggur sig ekki í framkróka um að hafa alla góða, hvort sem hann skrifar um trúmál eða annað; kannski náði hann að kynda Davíð Þór upp í að oftjá hug sinn.

Þó líkti Davíð Þór guðleysi við náttúruleysi í Bakþankapistli mánuði síðar, varla enn í uppnámi eftir hnjóð Hnakkusar. Pistillinn fjallaði einmitt um flís í auga guðlausra: virðingarleysi sem stundum einkennir málflutning þeirra. Það kemur fyrir á bestu bæjum.

Mér þykir mikið í Davíð Þór spunnið og ekki líki ég lífssýn hans við fötlun. Mæli hann manna heilastur fyrir auðsýndri virðingu í allri umræðu — ég hvet hann bara rétt sisvona til að muna að hafa hana gagnkvæma.

Sólsetur yfir Reykjavík

Saturday, May 12th, 2007

Sólsetur í Reykjavík

Reykjavík í rökkurlitum

Friday, May 11th, 2007

Reykjavík í rökkurlitum


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.