Archive for the ‘Heyrt og hlerað’ Category

Kristilegt hugarfar í hnotskurn?

Sunday, January 28th, 2007

gleðifrétt barst á mbl.is að islamstrúaður arabi hefði tekið sæti í ríkisstjórn Ísraels. Spurning hvorum guðinum ætti að þakka fyrir þá mildi; líklega báðum (eða vera dipló og segja þá einn og hinn sama).

Á þessa frétt skrifar Skúli G. Jensson athugasemd, svohljóðandi:

Ég sé Palestínumenn gera það sama!

Þetta er munurinn á Ísraelsmönnum og Palestínumönnum í hnotskurn.

Athuga ber að hér virðist ekki borið saman eðli stjórnmálaástandsins í Palestínu og í Ísrael — heldur eðli fólksins í Palestínu og Ísrael.

Oj.

En auðvitað væri ósanngjarnt af mér að kalla þetta „kristilegt hugarfar í hnotskurn,“ fyrir það eitt að menn virðast vera því hlutdrægari stuðningsmenn Ísraels sem þeir eru meira kristnir.

Um kristilegt hugarfar þurfum við nefnilega ekki að ráðfæra okkur við milliliði; við getum lesið hvernig Kristur sjálfur sýndi hug sinn í orði og verki. Í því skyni er sígild fræðsla að rifja upp Matteus 15:22-28 — ekki vegna þess að sú saga sé dæmigerð, heldur einmitt vegna þess að hún er sagan sem gleymdist að fegra:

22Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, herra, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda.“

23En hann svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: „Láttu hana fara, hún eltir oss með hrópum.“

24Hann mælti: „Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt.“

25Konan kom, laut honum og sagði: „Herra, hjálpa þú mér!“

26Hann svaraði: „Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.“

27Hún sagði: „Satt er það, herra, þó eta hundarnir mola þá, sem falla af borðum húsbænda þeirra.“

28Þá mælti Jesús við hana: „Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt.“ Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu.

Kannski hefur arabinn kallað ríkisstjórnarsætið „mola sem féll af borðum húsbænda hans“ af Ísraelsætt … og uppskorið miskunn með semískum semingi fyrir þá undirgefni, eins og kanverska konan?

Auðvitað þýðir þetta ekki að kristilegt hugarfar sé ljótt. Það er bara ekkert betra en hvert annað hugarfar.

Gyðingar og kristnir eru ekkert verri en annað fólk … en það verður brakandi blíða í Neðra þann dag sem ég samþykki að þeir séu betri.

Og sjálfsagt meinti Skúli þetta ekki eins og það hljómaði. Ég er hins vegar hræddur um að Kristi hafi verið fúlasta alvara, honum fannst kanverska konan léleg og óverðug fyrir það eitt að vera kanversk … en hann var nú líka breyskur, mennskur maður, og barn síns tíma. Og Skúli er þá Kristi fremri að þessu leyti — hann kæmi ekki svona fram við útlending fyrir það eitt að vera útlendingur! Enda nýtur Skúli, og við öll, tvö þúsund ára framþróunar mannlegrar hugsunar síðan Kristur var uppi.

Ný nálgun: sláumst í hópinn

Thursday, January 11th, 2007
Félagsskapur Atla

Atli virðist vera í prýðilegum félagsskap á blogg.is (sem ekki skyldi rugla saman við hið feigðarföla blog.is)

Æi, þurfti nú Atli Harðarson að koma og eyðileggja allt.

Ég er mjög gramur út í hann núna.

Það er vegna þess að ég neyðist til að tengilblogga í annað skiptið á nokkrum klukkutímum … og viðurkenna að þetta er bara assvíti skemmtilegt innlegg hjá honum.

(Og ekki vanþörf á skemmtuninni eftir kvöldstund með Chernobyl-börnum.)

„A.m.k. lærir enginn gagnrýna hugsun af því einu að meðtaka klisjur um gildi hennar“ — gullið. Ég fer að sofa skælbrosandi.

Ég hef bara tvennt við pistil hans að athuga:

  1. Atli hefur varla verið neitt meira dæmigert barn þá en hann er dæmigerður fullorðinn maður nú. Það er varasamt að draga ályktanir um fólk almennt af því hvað áhrif innræting í barnaskóla hafði (eða hafði ekki) á Atla Harðarson.
  2. Þessir tveir áróðursmenn voru kommúnisti og kirkjufrú. Eitt af því sem kommúnistum er sérstaklega í nöp við er kirkjur. Og það er oft gagnkvæmt, a.m.k. tók hann fram að svo var í tilfelli þessarar prestsfrúar. Kannski er meinhollt og þroskandi að láta toga í hægri handlegginn ef — og aðeins ef — jafnfast er togað í þann vinstri.

Niðurstaða síðara atriðisins liggur ljós fyrir, bláköld og ógnvænleg: mótvægi.

Við þurfum að draga þá nauðuga viljuga inn í barnaskólana okkar: múslimana, búddistana, Bahá’í-fólkið (sem verður líklega að þvinga til trúboðs með hörðu, þar sem þau banna sér það sjálf), framsóknarmennina, og — Guð sé oss næstur — Gunnar Þorsteinsson. Og guðleysingjana, vitanlega. Helst einhverja vel valda ofstækismenn úr hverjum flokki til að hræða líftóruna úr börnunum svo að þau drattist til að mynda sér skráp og eigin skoðanir. Hver sá heilaþvegill sem fer heim um eftirmiðdag án þess að ókvæðisorð ungra innblásinna hugsuða hafi dunið á honum skal telja sig hafa brugðist þann daginn.

We have a mission, ladies and gentlemen.

Fórnarlömb hinna fáu

Wednesday, January 10th, 2007

Ég fæst hér sjaldan við tengla- og tilvitnanablogg en allt á sér undantekningar (líka sú regla, en það er önnur saga).

Sverrir Jakobsson hefur lagst með Stefáni Pálssyni (eins gott að klára þessa setningu strax) á þær verðugu árar að koma Moggablogginu um kring með formælingum í lok hverrar færslu. Nokkrir þarlendir bloggfuglar hafa hnýtt í þetta athæfi og það finnst Sverri fyndið

enda hlýtur það að teljast saga til næsta bæjar að tveir einstaklingar nái að leggja fjölmennasta netsamfélag landsins í einelti. Er Moggabloggið óðum að verða kúgaðasti meirihlutahópur landsins – að Þjóðkirkjunni frátaldri.

Megi Moggabloggsaðsókn réna niður í messumætingu!

In the flesh

Wednesday, January 10th, 2007

Íslendingur röltir með tvo erlenda gesti eftir Austurvelli, í einkennisbúningi fjármálageirans og fínum frökkum, napurt í veðri.

Íslendingur: „And this is the parliament building, where the MPs make laws that the president will sign …“

Erlendingur: „Have you seen him?“

Íslendingur: „What?“

Erlendingur: „Have you seen the president?“

Íslendingur: „Oh yeah. The president of Iceland? Everybody has seen him. I’ve seen him naked!“

Eru ekki einhver viðurlög við svona tali um holdgert einingartákn þjóðarinnar?


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.