Mitt eigið net » Háð
Krefjumst þess að hinir háu verði dregnir til ábyrgðar
Ísland rambar á barmi gjaldþrots. Það er ljóst að hugmyndakerfi kapítalismans og frjálshyggjunnar eru fallin. Staða Íslands og álfunnar allrar sannar að ekkert hagkerfi þolir óhefta þenslu. Það er einnig ljóst að það hávaxna fólk sem hingað til hefur haldið um stjórnartaumana er ekki hæft til starfans.
Fjarvera lágvaxinna í efnahagsmálum hefur lengi verið áberandi, enda hafa áherslur lágvaxinna ekki þótt eftirsóknarverðar. Áhættumeðvitund, áherslur á langtímaávinning og samfélagslegan ávinning og gagnsæi þóttu of hamlandi viðhorf á útrásartíma. Hástemmd áhættusækni, oft kennd við víkinga, með skammtímaávinning fyrir einstaklinga að markmiði var það sem gilti. Þessi sömu gildi hafa nú valdið versta efnahagsástandi í manna minnum.
Lágvaxtarfélag Íslands krefst þess að valdhafar landsins dragi hlutaðeigandi til ábyrgðar vegna núverandi stöðu efnahagsmála. Til þess að raunhæf lausn finnist á vandanum þarf að greina og fjalla um orsakirnar. Aðeins útfrá ítarlegri könnun á orsök og afleiðingu er hægt að finna rétt svör.
Þörfin fyrir að uppfylla alþjóðasamninga um samþættingu líkamshæðarsjónarmiða hefur aldrei verið meiri. Forræði hinna hástemmdu gilda með gróðasjónarmið, fífldirfsku, eiginhagsmunasemi að leiðarljósi verður að linna enda eru þau komin í þrot. Sú uppbygging sem framundan er verður að vera á forsendum og forræði beggja hliða hæðarkúrvunnar. Virk þátttaka hinna lágvöxnu og lágstemmdra gilda er forsenda þess að uppbyggingin geti orðið okkur öllum og komandi kynslóðum til heilla.
Reynslan sýnir að þau ríki sem notið hafa leiðsagnar lágvaxinna í uppbyggingu eftir samfélagslegt hrun, standa betur en önnur. Í ljósi ofangreinds krefst Lágvaxtarfélag Íslands þess að stjórnvöld og þjóðin öll opni fyrir nýja hugmyndafræði, áhættumeðvitaða stjórnunarhætti og skipi nýtt fólk til stefnumótunar, jafnt háa sem lága.
[Fyrirmynd]
Kennimark hinna sókratísku
Sókrates beitti gjarnan nafngiftum á borð við „fasista“ og „talibana“ til að vanda sérstaklega til rökræðu sinnar.
Tilgáta:  Hvar sem orðið „fasismi“ sést í fyrirsögn pistils veit það á vel ígrundaða og réttsýna ritsmíð, sem getur af sér ekki síður frjósama og vandaða umræðu. Þar dregur enginn taum fastmótaðra skoðana á kostnað málefnalegrar greiningar, heldur kappkostar hver og einn að meðtaka inntakið í innleggjum mótpenna sinna, bræða með sér hvort þeir hafi mögulega nokkuð til síns máls, svara þeim gagnort og án þarflauss kvabbs, og allra síst láta upplifun sína á persónu, framkomu eða ritstíl nokkurs andstæðings þvælast fyrir sókninni að kjarna málsins. Menn draga fram það besta hver í öðrum og hafa allir sóma af. Svona vönduð netspjöll eru réttnefnd skoðanaskipti vegna þess hve algengt er að þátttakendur láti sannfærast af gæðum mótrakanna og skipti um skoðun, og umræðurnar leiða undantekningalítið til skynsamlegrar og farsællar niðurstöðu.
Hliðartilgáta:  Svipað gæðamerki er orðið „talíbani“.
Laustengd tilgáta:  Hver sá sem vekur athygli á málvillum og fljótræðis-stafsetningu andmælenda sinna í opinberri umræðu gerir það einatt af stökustu hjálpsemi og góðvild, allsendis yfirlætislaust og síður en svo til að koma á þá ómálefnalegu höggi. Hann verður maður að meiri fyrir viðvikið.
Viðurstyggð eyðingarinnar
Menntamálaráðherra er að missa það. Nú stendur til að segja í lögum að starfshættir grunnskóla skuli mótast af:
„umburðarlyndi, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi.“
Frumvarpið hefur vitanlega tendrað bál illdeilna, enda hrein brjálsemi, hatrömm aðför að rótgrónum hefðum þessa lands.
Sem betur fer hafa réttsýnir menn sameinast um að skera upp herör gegn því að þessi ókjör megi verða að lögum.
Þeir sjá glöggt hvílíkt óheillaskref það yrði, að taka upp ofangreind siðgæðisviðmið.
Ég er ekki að skálda þetta upp.
Hroki trúleysingjanna
Í grein í Fréttablaðinu í gær sýnir Steindór Erlingsson af sér hinn dæmigerða hroka trúleysingjans, þar sem hann heldur því blákalt fram að trúlaust fólk sé jafngott og annað fólk — jafnvel óvenjugott! „Trúleysingjar eru góðir nágrannar,“ segir hann í fyrirsögn.
Þá bábilju er auðvelt að hrekja, lið fyrir lið.
Steindór segir einhverja ótilgreinda spekinga hafa „ítrekað sýnt fram á fáránleika þess viðhorfs“ að trúleysi geti af sér siðblindu. Án nokkurra raka eða tilvísana dæmir hann viðhorfið „fáránlegt,“ eins og ekkert sé sjálfsagðara en að guðlaust fólk hafi siðferðiskennd. Sagan segir annað.
Lítum til dæmis á Sovétríkin sálugu og Kína og Þýskaland nasismans, þar sem trúnni var úthýst. Voru þetta góðir nágrannar? Hörmungar þessara ríkja stöfuðu vitaskuld ekki af útbreiddri örbirgð og valdtöku firrtra einræðisherra; þessir þættir voru aukaatriði við hliðina á afnámi messuhalds og kristinnar sálgæslu. Þetta sér hver maður sem rétt vill sjá.
Steindór líkir viðhorfinu í garð trúleysingja við „fordóma.“ En það sem byggir á traustum rökum og reynslu köllum við ekki fordóma. Sagan geymir mýmörg vel skjalfest dæmi um siðblindu og brjálsemi hinna guðlausu. Hverjir voru það sem pyntuðu fólk og brenndu á báli fyrir skoðanaágreining, fyrir nokkrum öldum? Myndu kristnir menn gera slíkt? Auðvitað ekki, en Rannsóknarréttur hinna trúlausu vílaði ekki þau vinnubrögð fyrir sér á meðan hann hafði völd til. Til allrar hamingju ruddu loks kristin gildi sér til rúms með upplýsingunni og bundu enda á hroðaverk trúvillinganna.
Næst tínir Steindór til skoðanakönnun sem sýnir eindregna andstöðu venjulegs fólks við trúleysingja — og lætur eins og hún mæli með trúleysi! Þetta er fásinna; könnunin sýnir berlega lýðræðislegan dóm yfir heiðingjunum — eða heldur Steindór kannski að þessi andúð sé sprottin upp úr engu? Nei, þessi dómur múgsins er óhrekjandi röksemd fyrir löstum trúleysingja, rétt eins og 80+% aðild Íslendinga að þjóðkirkjunni sannar á skotheldan hátt yfirburði þeirrar ágætu stofnunar.
Fleira er tínt til, svo sem lofræða einhvers „prófessors“ um trúleysingja. En er ekki alltaf hægt að finna einhvern hlutdrægan „fræðimann“ með klofna tungu sem talar í kross við veruleikann? Við látum ekki Steindór eða aðra gylla hinn andlega hafís guðleysisins fyrir okkur með sinni ísköldu og vonarsnauðu vísindaþoku.
Tökum af öll tvímæli. Trú er siður; trúleysi er siðleysi. Afneitun þess veruleika er bara fyrirsláttur þeirra sem í skásta falli vita ekki betur, en í versta falli ganga erinda hins illa.
Trúleysingjar eru ekki bara vondir nágrannar. Þeir eru vont fólk.
Meissner og Maharishi
Maharishi Mahesh Yogi
Stofnun háskólans Maharishi University of Management í Iowa í Bandaríkjunum er eitt margra góðverka sem Maharishi Mahesh Yogi hefur unnið mannkyninu til heilla og heilsubótar.
Lýsingar námskeiða í stærðfræðideild þessa skóla gefa fyrirheit um spennandi nýjungar í túlkun stærðfræðinnar. Hér eru nokkur dæmi:
Infinity:  From the Empty Set to the Boundless Universe of All Sets — Exploring the Full Range of Mathematics and Seeing its Source in Your Self
Maharishi Vedic Mathematics:  Mathematical Structure and the Transcendental Source of Natural Law
Calculus 1:  Derivatives as the Mathematics of Transcending, Used to Handle Changing Quantities
Calculus 2:  Integrals as the Mathematics of Unification, Used to Handle Wholeness
Calculus 3:  Unified Management of Change in All Possible Directions
Calculus 4:  Locating Silence within Dynamism
Þessi jákvæði jógi hrinti af stað byltingu í varnarmálum nú í febrúar með vef sínum „Invincible Defence“. Þar lýsir hann hvernig útrýma megi hryðjuverkum fyrir fullt og allt, meðal annars með stóraukinni ástundun jógaflugs. Þetta er auðskýrt: jógaflugmenn eru í ofurleiðslu sem framkallar Maharishi-hrifin, á svipaðan hátt og ofurleiðni framkallar Meissner-hrifin. Rétt eins og ofurleiðandi efni býr yfir „invincible defence“ gegn segulsviði reisa ofurleiðslujógar órjúfanlegan varnarmúr þjóðar gegn hryðjuverkavá.
Vonandi meðtaka allir sannindi jógans með opnum huga, ótruflaðir af hinum alræmdu fordómum vísindanna.