Krefjumst þess að hinir háu verði dregnir til ábyrgðar
Wednesday, October 8th, 2008Ísland rambar á barmi gjaldþrots. Það er ljóst að hugmyndakerfi kapítalismans og frjálshyggjunnar eru fallin. Staða Íslands og álfunnar allrar sannar að ekkert hagkerfi þolir óhefta þenslu. Það er einnig ljóst að það hávaxna fólk sem hingað til hefur haldið um stjórnartaumana er ekki hæft til starfans.
Fjarvera lágvaxinna í efnahagsmálum hefur lengi verið áberandi, enda hafa áherslur lágvaxinna ekki þótt eftirsóknarverðar. Áhættumeðvitund, áherslur á langtímaávinning og samfélagslegan ávinning og gagnsæi þóttu of hamlandi viðhorf á útrásartíma. Hástemmd áhættusækni, oft kennd við víkinga, með skammtímaávinning fyrir einstaklinga að markmiði var það sem gilti. Þessi sömu gildi hafa nú valdið versta efnahagsástandi í manna minnum.
Lágvaxtarfélag Íslands krefst þess að valdhafar landsins dragi hlutaðeigandi til ábyrgðar vegna núverandi stöðu efnahagsmála. Til þess að raunhæf lausn finnist á vandanum þarf að greina og fjalla um orsakirnar. Aðeins útfrá ítarlegri könnun á orsök og afleiðingu er hægt að finna rétt svör.
Þörfin fyrir að uppfylla alþjóðasamninga um samþættingu líkamshæðarsjónarmiða hefur aldrei verið meiri. Forræði hinna hástemmdu gilda með gróðasjónarmið, fífldirfsku, eiginhagsmunasemi að leiðarljósi verður að linna enda eru þau komin í þrot. Sú uppbygging sem framundan er verður að vera á forsendum og forræði beggja hliða hæðarkúrvunnar. Virk þátttaka hinna lágvöxnu og lágstemmdra gilda er forsenda þess að uppbyggingin geti orðið okkur öllum og komandi kynslóðum til heilla.
Reynslan sýnir að þau ríki sem notið hafa leiðsagnar lágvaxinna í uppbyggingu eftir samfélagslegt hrun, standa betur en önnur. Í ljósi ofangreinds krefst Lágvaxtarfélag Íslands þess að stjórnvöld og þjóðin öll opni fyrir nýja hugmyndafræði, áhættumeðvitaða stjórnunarhætti og skipi nýtt fólk til stefnumótunar, jafnt háa sem lága.
