Archive for the ‘Gaman’ Category

51% hvorugkyns

Tuesday, April 24th, 2007

Úr Fréttablaðinu í dag:

Þrjátíu prósent þeirra sem leituðu liðsinnis spæjara voru konur, en 19 prósent karlmenn.

Helmingur viðskiptavina einkaspæjara er þá hvorki né. Það var og.

„Gætir kosið mig.“

Tuesday, April 24th, 2007
Sprækir ungliðar

Á sigurlistanum.is er gagnmerkt myndskeið þar sem ungir frambjóðendur eru töffaðir upp með því að sýna þá spila ballskák í takt við æsilega kvikmyndatónlist.

Myndmálinu væri betur sleppt. Á heilli mínútu er aðeins tvisvar skotið. Í hvorugt skiptið fer kúla niður. Ekkert gengur upp. Mínútuna nota frambjóðendurnir að mestu í að tala af andagift:

„Ertu að velta fyrir þér hvað þú eigir að kjósa? Gætir kosið mig.“

„Þetta er Róbert Marshall. Sprækur strákur.“

Þetta er auðvitað afskaplega töff.

Bætt við síðar sama dag: Myndskeiðið skemmtilega hefur því miður verið fjarlægt og bara eldri tvö myndskeiðin þeirra eru eftir. Ég er greinilega orðinn áhrifavaldur í ungliðastarfi Samfylkingarinnar.

Hvítliðarnir koma!

Friday, April 13th, 2007

Víggirðing í kringum Alþingishúsið

Veit einhver hvers vegna nú rís þriggja metra gaddavírsgirðing í kringum Alþingi? Er þetta eitthvert langdregið aprílgabb? Er þingmeirihlutinn að grípa til örþrifaráða?

Ég verð að fara að taka almennilega myndavél með í vinnuna. Það gengur ekki að skúbba alltaf um Alþingi með gsm-símanum.

The Awful Doctor Orlof

Wednesday, April 11th, 2007
Gritos en la noche plakat

Orlof læknir að störfum.

Kvikmyndin Gritos en la noche (á ensku The Awful Doctor Orlof) fjallar um framtakssama fjölskyldumanninn Orlof lækni. Orlof rænir fögrum konum til að flá þær og græða skinnið á skaðbrennda dóttur sína. Eins konar Hrói höttur hinna húðljótu.

Þessi pistill fjallar annars ekki um lækninn hjálpsama heldur um þann hornstein lögvarinna atvinnuréttinda okkar, orlofsréttinn.

Þeir sem vilja að vinna og bingó og önnur mannleg upplyfting sé bönnuð þennan eða hinn daginn bera því gjarnan við að annars „missum“ við þessa lögvörðu frídaga. Það vill auðvitað enginn.

Væri nokkur ofrausn að gefa okkur lausan tauminn til að verja þessum dögum að vild — með velþóknun valdstjórnarinnar — en fjölga að sama skapi lögbundnum orlofsdögum á ári? Þeir sem vildu frí á föstudaginn langa tækju sér það þá bara.

Sumir vilja reyndar ekki bara fá sjálfir frí á þessum degi, heldur tryggja frið sinn og ró með því að skikka aðra í frí samtímis. Koma mætti til móts við þá sanngjörnu kröfu með aukinni alþýðufræðslu um off-takkann á gemsanum (það er einmitt þjóðþrifamál hvort sem er).

Auknu orlofinu er síðan tilvalið að verja á hlýjum, rólegum stöðum, til dæmis á eynni Hýdru í Saronikos-flóa. Hýdra er kjörin fyrir afturhaldsmenn: þar eru engin farartæki á hjólum — og allt krökkt af ösnum. Óhætt er að mæla með gistingu á hinu krúttlega gistiheimili eyjarinnar … Orloff Hotel.

Makkinn flýgur. Rólega.

Monday, April 2nd, 2007
Ég: Er miðstærðin af MacBook komin í hús?
Apple-búðin: Nei, því miður.
Ég: Hvenær er von á henni?
Apple-búðin: Ja, hún fór af stað fyrir viku.
Ég: Ókei, hún situr þá í skipi einhvers staðar?
Apple-búðin: (hálfmóðguð) Neinei, ekki í skipi. Þær koma með flugi.
[augnabliksþögn]
Ég: Það er skratti rólegt flug.
Apple-búðin: Ja, þær koma nú alla leið frá Kína.

Eins gott að makkinn keyri hraðar en hann flýgur.

Meissner og Maharishi

Sunday, April 1st, 2007
Maharishi Mahesh Yogi

Maharishi Mahesh Yogi

<háð>

Stofnun háskólans Maharishi University of Management í Iowa í Bandaríkjunum er eitt margra góðverka sem Maharishi Mahesh Yogi hefur unnið mannkyninu til heilla og heilsubótar.

Lýsingar námskeiða í stærðfræðideild þessa skóla gefa fyrirheit um spennandi nýjungar í túlkun stærðfræðinnar. Hér eru nokkur dæmi:

  • Infinity: From the Empty Set to the Boundless Universe of All Sets — Exploring the Full Range of Mathematics and Seeing its Source in Your Self
  • Maharishi Vedic Mathematics: Mathematical Structure and the Transcendental Source of Natural Law
  • Calculus 1: Derivatives as the Mathematics of Transcending, Used to Handle Changing Quantities
  • Calculus 2: Integrals as the Mathematics of Unification, Used to Handle Wholeness
  • Calculus 3: Unified Management of Change in All Possible Directions
  • Calculus 4: Locating Silence within Dynamism

Þessi jákvæði jógi hrinti af stað byltingu í varnarmálum nú í febrúar með vef sínum „Invincible Defence“. Þar lýsir hann hvernig útrýma megi hryðjuverkum fyrir fullt og allt, meðal annars með stóraukinni ástundun jógaflugs. Þetta er auðskýrt: jógaflugmenn eru í ofurleiðslu sem framkallar Maharishi-hrifin, á svipaðan hátt og ofurleiðni framkallar Meissner-hrifin. Rétt eins og ofurleiðandi efni býr yfir „invincible defence“ gegn segulsviði reisa ofurleiðslujógar órjúfanlegan varnarmúr þjóðar gegn hryðjuverkavá.

Vonandi meðtaka allir sannindi jógans með opnum huga, ótruflaðir af hinum alræmdu fordómum vísindanna.

</háð>

Kysst á vöndinn

Friday, March 30th, 2007
Fasces

Kennslukönnun fer fram í lok hvers misseris í Háskóla Íslands. Í henni meta nemendur frammistöðu kennara og högun námskeiða.

Niðurstöðurnar eru sýndar kennara og skorarformanni — en ekki nemendum. Þeir sjá enga samantekt, enga greiningu; könnunin hverfur út í tómið frá þeirra sjónarhóli. Fyrir vinnuna við gæðaeftirlit HÍ uppskera þeir ekkert nema þátttöku í happdrætti þar sem verðlaunin eru … aukinn prentkvóti. Í fyllstu alvöru.

Framfarir mannkyns fær hins vegar ekkert stöðvað: formenn nemendafélaganna í verkfræðideild hafa nú fengið að sjá niðurstöður kennslukönnunar í fyrsta sinn. Stjórn VIR, félags rafmagnsverkfræðinema, brást óðara við og heiðraði í dag þá tvo kennara sem komu best út í fyrravor og fyrrahaust.

Blásnauðir nemendurnir splæstu viðurkenningarskjali, blómvendi og dýrindis rauðvínsflösku á Önnu Soffíu Hauksdóttur prófessor … og stundakennara nokkurn, sem þó er alræmdur fyrir miskunnarlaust verkefnaálag.

Blómin eru fögur, flaskan fríð, og kæti mín greinilega hæverskunni yfirsterkari. :-)

„Ég hélt því hvergi fram að þú hefðir sagt það. Gætirðu bent mér á hvar því er haldið fram?“

Thursday, March 22nd, 2007

Keisarinn er hvergi eins misskeggjaður og í umræðu um umræðu um trú.

„Ókei, þá er ég farinn!“

Monday, February 26th, 2007

Tvær fyrirsagnir á mbl.is í gær, með 16 mínútna millibili:

13:14 Björk Vilhelmsdóttir gengin í Samfylkinguna
13:30 Jakob Frímann genginn úr Samfylkingunni

Var þetta eitthvað persónulegt?

Syrgir Alþingi sóðamót?

Friday, February 23rd, 2007

Tvær fyrirsagnir á mbl.is í dag, með 19 mínútna millibili:

13:52 Hætt við klámráðstefnu hér á landi
14:11 Þingflokkar Alþingis harma klámráðstefnu

Harma missinn, þá?


Bad Behavior has blocked 98 access attempts in the last 7 days.