Archive for the ‘Fólk’ Category

Tvöhundruðkall fyrir bensíni?

Saturday, August 19th, 2006

Hálffertugur hálfrámur gaur í gallajakka neðst á Laugaveginum:

Heyriði, hérna, ég er bensínlaus hérna uppi á Skólavörðustíg, eruði nokkuð með tvö-þrjúhundruðkall fyrir bensíni?

Nei, segi ég, af því að ég er ekki góður maður.

Sex dögum síðar, sami hálffertugi hálfrámi gaurinn í gallajakka neðst á Laugaveginum:

Heyriði, hérna [...]

Nei, segi ég, af því að ef maður er enn bensínlaus eftir sex daga, þá á ekki fyrir honum að liggja að keyra bíl.

En mér þykir tilkomumikið hversu eldsnöggur hann er að þurrka af sér einlæga svipinn þegar hann afskrifar okkur og leitar að einhverjum öðrum til að fjármagna lífstíl sinn.

Leyniþjónninn

Wednesday, July 5th, 2006

Það er þrennt áhugavert við þennan mann sem ekki má greina á þessari óskýru mynd.

  • Kápan hans var svört leðurkápa.
  • Hann var með svört sólgleraugu í rigningarsúld um kvöld.
  • Hann stóð þarna grafkyrr, aleinn, í a.m.k. klukkustund, og horfði á stjórnarráðið.

Æi Björn minn Bjarnason … þú þarft að þjálfa þá betur. Þetta er bara kjánalegt.

Leyniþjónninn

Fordómar í Litla svarta Sambó

Friday, June 30th, 2006
Litli svarti Sambó

Hér um árið enduruppgötvaði ég Strumpana, las Le Schtroumpf Financier (með harmkvælum) og uppgötvaði að hún var hreinlega gegnsósa í marxískri hugmyndafræði. Það var fallegt að allir fengju brauð hjá Bakarastrumpi eftir þörfum, en afleitt þegar Bakarastrumpur fór að taka borgun og leggja peningana í nýstofnaðan banka Strumpaþorps. Og Bankastrumpur var auðvitað hundnískur og illgjarn strumpítalisti sem hneppti hrekklausa strumpa í lánauð. Mér fannst þetta stórmerkilegt.

Fyrir ekki svo löngu birtist í Mogganum grein eða viðtal um skýlausa kynþáttafordóma í barnasögunni „Litli svarti Sambó.“

Ég mundi óljóst eftir þessari sögu úr grárri barneskju en gat ekki rifjað upp söguþráðinn. En án þess að ég leggi að jöfnu marxisma og rasisma vissi ég að mér gætu allt eins hafa yfirsést hvítfyssandi kynþáttafordómar í Litla svarta Sambó eins og önnur hugmyndafræðileg marínering í Strumpunum.

Ég lagði ekki í að leita bókina uppi í foreldrahúsum, en netið kom til bjargar. Hér er sagan um litla svarta Sambó. Ég geri ráð fyrir að þetta sé hin eina sanna.

Og bara sorrý … Sambó er vissulega teiknaður næstum biksvartur, og kannski með þykkari varir en þyrfti, en þessi saga gefur ekki í skyn að þeldökkir séu á einhvern hátt lakari hvítum, siðferðislega eða greindarlega eða neinslega. Sambó gerir ekkert af sér, og er klókur og hugrakkur að ná fötunum sínum aftur á meðan tígrisdýrin bítast. Og foreldrar hans virðast duglegir og gjafmildir og góðir við hann. Tengingin við tígrisdýr er Sambó varla til hnjóðs, neitt frekar en ef sagan fjallaði um ljóshærðan bláeygan Svía sem lendir í útistöðum við elg. Að vísu hljómar nafnið Sambó afrískt og tígrisdýr búa ekki í Afríku (nema sem nýbúar), en það er í mesta lagi staðreyndavilla. Rasismi finnst í þessari sögu því aðeins að lesandinn hafi einsett sér að sjá hann.

Hún kennir hins vegar að tígrisdýr verði að bráðnu smjöri ef þau þeytast of hratt í hringi. Í því felst kannski óvirðing fyrir stórköttum, eða a.m.k. fyrir matvælavísindum og heilbrigðri skynsemi. Svoleiðis á vissulega ekki að hafa fyrir börnum.

Þriðjudagskvöld í Garðabænum

Tuesday, June 27th, 2006
Haukur og sekkjapípan
Haukur: [hálfmóður í símann] Halló?
Ég: Hæ, er ég nokkuð of seint á ferðinni ef ég lít við núna?
Haukur: Neineineinei, komdu endilega, við erum hér að syngja búlgörsk þjóðlög úti í garði.

Svona á þetta að vera.

MMCXXV

Tuesday, June 27th, 2006

Í gær varð amma mín 93 ára gömul. Mæld meðalævilengd íslenskra kvenna árið sem hún fæddist var 61,23 ár [heimild], og þótti líklega harla gott.

Mæld meðalævilengd íslenskra karla árið 2004 var 78,90 ár skv. sömu heimild.

Systkinasynir mínir eru fæddir á síðustu árum. Gerum ráð fyrir að þeir gæti heilsunnar álíka vel og langamma þeirra hefur gert. Ætli þeir haldi upp á afmæli með bros á vör árið 2125?

AmmaBaldur FróðiJakob OrriAri SigurðurÍvar Karl

„Ekki hvítum mönnum bjóðandi“

Monday, June 19th, 2006
Bleikt nef

Einhvern tíma, kannski næst, kannski þarnæst, þegar ég heyri þessa frasaómynd, trompast ég og veld eignaspjöllum og/eða bleiknefja manntjóni.

Í leit að leigðum losta

Tuesday, June 6th, 2006
Efes. Átti sko ekki mynd af Leffe.

Ég settist inn á Vínbarinn á hvítamánudagskvöldi með góðum vini til að smakka bjór (hinn fyrsta og síðasta þess kvölds, ef spurningin skyldi vakna).

Þar var aðeins einn viðskiptavinur fyrir, maður vel á miðjum aldri og með vel alda miðju. Sá hefur verið barnum skárri tekjulind en við; bjórinn hans var ekki sá fyrsti þess kvölds og varla sá síðasti. Köllum hann Dolla.

Þegar ég bað um ljósan Leffe kvað Dolli það vera „a good choice“ — á ensku, en með harðari bárujárnsframburði en ég hefði talið svo ölvaðan mann færan um. Ég þakkaði fyrir á íslensku og við settumst annars staðar.

Það dugði auðvitað ekki í þessari fólksfæð; Dolli vatt sér fljótlega að okkur og sólundaði drafandi dreggjunum af sjálfsvirðingu sinni í þessa spurningu:

„Fyrirgefiði strákar, ég er sko frá Akureyri; hérna, vitiði nokkuð um eitthvert hóruhús í Reykjavík?“

Þar stóðum við á gati. En Dolli var ekki kjaftstopp. Fram kom að hann hefði prófað „hóru“ áður og hún verið alveg afleit, svo að hann hefði bara borgað eins lítið og hann komst upp með.

Og svo þessu allsendis ótengt: Dolli var þarna staddur til að forðast konuna sína, sem var honum eilíflega reið — „af engri ástæðu.“ Hann hafði afráðið að bíða þar til hún væri sofnuð, og læðast þá heim. Það væri best. Konur hlusta nefnilega ekki á nein rök.

Hann gat þess raunar líka að hann væri bókmenntafræðingur og að finnsku sagnakvæðin Kalevala stæðu Eddukvæðum langt framar. Það var bara um seinan. Dolli hefði getað virst áhugaverður að tala við ef hann hefði byrjað á þessu og sleppt hórukapítulanum.

Og öllu hinu röflinu.

Og svona sjö bjórum.

Loks birtist spúsa hans Dolla, bláedrú og brosandi, að sækja hann. Kippti sér ekki upp. Þaulvön.

Það er ágætt að eiga stutt (og aðeins stutt) rabb af þessu tagi við og við, því að ég er skammminnugur og gleymi gjarnan að þakka fyrir að ég skuli ekki vera lakari en ég er.


Bad Behavior has blocked 53 access attempts in the last 7 days.