Archive for the ‘Fólk’ Category

Gandálfur og sauðfjárlögin

Friday, January 26th, 2007
Framfarir og Framsókn

Framfaramaðurinn Gandálfur og framsóknarforynjan X-Balrog.

Í Hringadróttinssögu er hádramatísk viðureign þar sem hetjan Gandálfur grái sundrar brúnni í Khazad-dûm undan skrímslinu Balrog, en í fallinu nær ófreskjan að krækja logandi svipu sinni um kné Gandálfs og þeyta honum með sér niður í botnlaust gljúfrið.

Þarna var ég virkilega óánægður með Tolkien. Af hverju þurfti hið illa endilega að fá að gera svona herfilegan óskunda í kveðjuskyni þegar því var sparkað út?

En að allt öðru. Nú hefur Guðni Ágústsson, sem er aaalveg að fara að hrapa úr brúnni og frá völdûm, komist upp með að krækja í 16,4 milljarða króna og þeyta þeim með sér niður í þá botnlausu hít, sauðfjárbransann, næstu átta árin.

Ef einhver skyldi fá þá flugu í höfuðið að þetta væri ekki markviss ráðagerð, þá gerir Guðni dúsunni upp nokkur „markmið“, þeirra á meðal:

„Að örva markaðsvitund bænda og afurðastöðva og halda jafnvægi milli framleiðslu og eftirspurnar“

örva markaðsvitund bænda með því að hafa þá á framfæri ríkissjóðs! Það er eins og að efla sjálfstæða hugsun fólks með því að halda fyrirlestra yfir því, eða stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að kalla út herinn, eða hvetja til holls mataræðis með því að gefa út frímiða á McDonalds — í átta ár!

Mörgum þykir hin skrautlega og málefnafælna orðræða Guðna skemmtileg. En þetta skemmtiatriði er of dýrt. Hvers vegna helst honum uppi, í miðju hrapinu ofan í gljúfrið í Khazad-dûm (þ.e. niður í stjórnarandstöðu), að draga fjárlög næstu tveggja kjörtímabila niður í þetta botnlausa og forneskjulega ríkisstyrkjagljúfur? Eru fjármála- og forsætisráðherra ekki menn til að segja nei? Vilja þeir þetta? Eða hefur Guðni eitthvert tak á þeim?

Vilji ríkið „halda“ jafnvægi á milli þeirra vinkvenna, framleiðslu og eftirspurnar, þá er til einföld og ódýr aðferð: að láta þær báðar í friði.

In the flesh

Wednesday, January 10th, 2007

Íslendingur röltir með tvo erlenda gesti eftir Austurvelli, í einkennisbúningi fjármálageirans og fínum frökkum, napurt í veðri.

Íslendingur: „And this is the parliament building, where the MPs make laws that the president will sign …“

Erlendingur: „Have you seen him?“

Íslendingur: „What?“

Erlendingur: „Have you seen the president?“

Íslendingur: „Oh yeah. The president of Iceland? Everybody has seen him. I’ve seen him naked!“

Eru ekki einhver viðurlög við svona tali um holdgert einingartákn þjóðarinnar?

Mannfólkið skiptist í tvo hópa …

Tuesday, January 9th, 2007
Ourobouros

… þau sem eru með það á heilanum að mannfólkið skiptist í hópa, og okkur hin.

Og hópahausarnir halda að þeirra hópur sé betri en allir hinir.
Að því leyti (meðal annars) erum við hin betri en þeir.

Déjà vu í loftinu

Tuesday, January 2nd, 2007

„Ég ætla núna að tala um þau tækifæri sem við stöndum andspænis, tala um það sem liggur í loftinu [...] Stundum leynir það sér ekki að það liggur eitthvað í loftinu [...] Ég hef tvisvar orðið þess sterklega áskynja í pólitík að eitthvað lægi í loftinu. [...] Veturinn 1993-’94 lá líka eitthvað í loftinu. [...] Og núna liggur eitthvað í loftinu [...] En hvað er það sem liggur í loftinu? [...] Það sem liggur í loftinu er krafan um að gefa stjórnmálunum og stjórnmálaflokkunum nýtt inntak og nýja ímynd. [...] Þær hafa ekki náð að raungera það sem liggur í loftinu.“

Ingibjörg Sólrún í Borgarnesræðu fyrri, 2003

„Árið 2007 ber með sér vonir og væntingar um nýja tíma. Það liggur í loftinu að nú sé kominn tími til að breyta.“

Ingibjörg Sólrún í upphafi áramótaávarps síns í fyrradag

Ætlar hún alveg að gleyma jarðveginum?

Mölur og ryð

Saturday, December 30th, 2006

Sennilega væri til hagsbóta fyrir andlegan þroska okkar og gildismat að mölur og ryð verkuðu tífalt hraðar.

Það væri hins vegar til baga í viðhaldi heimila og bíla.

Svona í meðallagi ótengt þessu: þegar starfsmenn Miklagljúfursþjóðgarðsins í Bandaríkjunum eru spurðir að aldri Miklagljúfurs (Grand Canyon), svara þeir „no comment.“ Þeir mega ekki gefa upp áætlaðan aldur þess. Hvers vegna ekki? Jú, vegna þess að það færi í taugarnar á sköpunartrúuðu fólki sem vill að Miklagljúfur hafi orðið til í Syndaflóðinu.

Þetta er ekki grín, og ekki tilviljun eða sérviska starfsmanna. Þetta er stefna ríkisstjórnar Bush. Meira um þetta hér.

Barney

Monday, December 11th, 2006
BarneyCam

Hvað gerir forseti heimsins þegar hann tapar þingmeirihlutanum, stríðið hans er úrskurðað tómt rugl, varnarmálaráðherrann hans segir af sér með skömm, og aðeins 30% þjóðarinnar segist sátt við hann?

Jú, þá er kjörið að leika, ásamt helstu meðforingjum sínum, í alltof löngu jólamyndbandi um hundinn sinn — með gersamlega heilalaust blaður fyrir texta og söguþráð.

Þá er þorsti minn í hið fáránlega slökktur í bili. Freedom Fries hafi þökk fyrir!

Vinaleiðin í Kastljósinu

Wednesday, November 15th, 2006

Í Kastljósinu mættust Hilmar Ingólfsson skólastjóri Hofsstaðaskóla og Jóhann Björnsson stjórnarmaður í Siðmennt.

Jóhann talaði vel, hefði mátt vera ákveðnari, en hélt stillingu sinni og var lífsskoðun sinni til sóma.

Ekkert af ofangreindu má segja um Hilmar.

Kemst svona fólk virkilega í það að stjórna skólum? Hvernig má það vera?

Það hlýtur að vera hægt að vera sömu lífsskoðunar og hann setur í hásæti í skóla sínum, en samt vera ósáttur við hvernig hann dregur taum hennar.

Hann svaraði engum rökum, sat bara drýldinn á svip eins og sá sem valdið hefur, sagði ekkert málefnalegt, bara „heldurðu ekki að það sé flott fyrir skólann að hafa góðan starfsmann sem að kann til verka…“ og „fín starfsemi og flott fólk sem vinnur við þetta.“ Ekki vottur af svörum við því sem til umræðu var. Annaðhvort skildi hann ekki spurningarnar og mótrökin, eða forðaðist viljandi að svara þeim.

Spurningunni „Fá önnur trúfélög sams konar aðgang?“ svaraði hann fyrst með „ég svara ekki þeirri spurningu af því að hún er bara röng,“ en eftir fortölur varð svarið það að Mormónar væru í Garðabæ og þeir væru velkomnir í skólann. (Þá væntanlega ekki sem trúboðar heldur sem nemendur.)

Hilmar talaði óskipulega og ómálefnalega og tók ekki þátt í rökræðu heldur svaraði í slagorðum og „flott fólk“-innihaldsleysu. Það er háttur þeirra sem verja vondan málstað.

Hvers á Ragnheiður Ásta að gjalda?

Monday, November 13th, 2006
Ragnheiður Ásta

Í myndatexta í Fréttablaðinu 17. febrúar 2006 er myndefnið sagt heita Ragnheiður Ásta Jóhannesdóttir.

Hún hlýtur að vera orðin langþreytt á þessu. Í útvarpi 16. mars 2005:

Ólafur Hannibalsson:

Nú er sem sagt Alþingi að fjalla um þetta og var ekki á aðalfundinum hjá ykkur einmitt mættir tveir alþingismenn Ögmundur Jónasson ef ég man rétt og Ragnheiður Ásta.

Friðrik Þór Guðmundsson: Ásta Ragnheiður.
Ólafur Hannibalsson: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og hvað heyrðist ykkur á þeim?

Í grein sr. Einars Eyjólfssonar í Morgunblaðinu 27. mars 2002:

Mörður Árnason og Ragnheiður Ásta Jóhannesdóttir hafa hafa á Alþingi lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um sóknargjöld.

Á Alþingi 7. apríl 2000:

Hjálmar Árnason: Það voru aðeins tveir hv. þingmenn, hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir og hv. þm. Ragnheiður Ásta Jóhannesdóttir sem töldu að það væri ekki nógu vel rætt.
Forseti Alþingis: Ásta Ragnheiður.
Hjálmar Árnason: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Þá er líka rétt að [...]

Á Alþingi 4. nóvember 1997:

Halldór Blöndal: Og það er svolítið athyglisvert í því sambandi, hv. frummælandi Ragnheiður Ásta, að [...]. Ragnheiður Ásta segir um það, með leyfi hæstv. forseta:
Forseti Alþingis: Það þarf að ávarpa þingmenn fullu nafni samkvæmt þingsköpum.
Halldór Blöndal: [...] Hv. þm. Ragnheiður Ásta talaði um Samkeppnisstofnun, [...]. En við tókum eftir því áðan að frummælandi, Ragnheiður Ásta Stefánsdóttir, hafði einmitt orð á því …
Forseti Alþingis: Þingmaðurinn heitir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og ber að ávarpa hana fullu nafni.
Halldór Blöndal: Ég þakka fyrir. Mér finnst nú hitt fallegra nafn, með leyfi hæstv. forseta. En við tókum eftir að sá ágæti þingmaður óskaði eftir því [...]

Fágæt nöfn

Wednesday, October 11th, 2006

Ég er íslenskur hugbúnaðarsérfræðingur um þrítugt.

Og ég heiti Gunnlaugur Þór Briem.

Nú reynist vera til annar íslenskur hugbúnaðarsérfræðingur um þrítugt, sem ég hef ekki fyrr heyrt um …

… sem heitir Þóra Gunnlaug Briem.

Í hæsta máta fríkí.

Hinn flóðlýsti einvaldur

Friday, August 25th, 2006

Türkmenbaşı


Bad Behavior has blocked 53 access attempts in the last 7 days.