Archive for the ‘Fáránlegt’ Category

Tilvitnun í Jacques Lacan, speking

Sunday, April 1st, 2007
Jacques Lacan

Thus the erectile organ comes to symbolize the place of jouissance [ecstasy], not in itself, or even in the form of an image, but as a part lacking in the desired image: that is why it is equivalent to the \sqrt{-1} of the signification produced above, of the jouissance that it restores by the coefficient of its statement to the function of lack of signifier (-1).

— Jacques Lacan (via Alan Sokal)

Þetta meikaði örugglega sens í samhengi.

„Hvenær“ skuli beita særingum?

Tuesday, February 20th, 2007

Páfagarður gaf út árið 1999 endurskoðaðar reglur um særingar í fyrsta skipti frá árinu 1614 og eru prestar í þeim hvattir til að taka tillit til sálfræði nútímans þegar ákveðið er hvenær skuli beita særingum.

frétt á mbl.is

Ég þurfti að lesa þetta aftur til að fullvissa mig um að ártalið væri ekki 1699.

Tekur einhver þessa stofnun alvarlega á 21. öldinni? Það er þá varla nema vegna þeirrar innrætingar, frá blautu barnsbeini, að það sé synd gegn guði að véfengja boðun kirkjunnar.

Gandálfur og sauðfjárlögin

Friday, January 26th, 2007
Framfarir og Framsókn

Framfaramaðurinn Gandálfur og framsóknarforynjan X-Balrog.

Í Hringadróttinssögu er hádramatísk viðureign þar sem hetjan Gandálfur grái sundrar brúnni í Khazad-dûm undan skrímslinu Balrog, en í fallinu nær ófreskjan að krækja logandi svipu sinni um kné Gandálfs og þeyta honum með sér niður í botnlaust gljúfrið.

Þarna var ég virkilega óánægður með Tolkien. Af hverju þurfti hið illa endilega að fá að gera svona herfilegan óskunda í kveðjuskyni þegar því var sparkað út?

En að allt öðru. Nú hefur Guðni Ágústsson, sem er aaalveg að fara að hrapa úr brúnni og frá völdûm, komist upp með að krækja í 16,4 milljarða króna og þeyta þeim með sér niður í þá botnlausu hít, sauðfjárbransann, næstu átta árin.

Ef einhver skyldi fá þá flugu í höfuðið að þetta væri ekki markviss ráðagerð, þá gerir Guðni dúsunni upp nokkur „markmið“, þeirra á meðal:

„Að örva markaðsvitund bænda og afurðastöðva og halda jafnvægi milli framleiðslu og eftirspurnar“

örva markaðsvitund bænda með því að hafa þá á framfæri ríkissjóðs! Það er eins og að efla sjálfstæða hugsun fólks með því að halda fyrirlestra yfir því, eða stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að kalla út herinn, eða hvetja til holls mataræðis með því að gefa út frímiða á McDonalds — í átta ár!

Mörgum þykir hin skrautlega og málefnafælna orðræða Guðna skemmtileg. En þetta skemmtiatriði er of dýrt. Hvers vegna helst honum uppi, í miðju hrapinu ofan í gljúfrið í Khazad-dûm (þ.e. niður í stjórnarandstöðu), að draga fjárlög næstu tveggja kjörtímabila niður í þetta botnlausa og forneskjulega ríkisstyrkjagljúfur? Eru fjármála- og forsætisráðherra ekki menn til að segja nei? Vilja þeir þetta? Eða hefur Guðni eitthvert tak á þeim?

Vilji ríkið „halda“ jafnvægi á milli þeirra vinkvenna, framleiðslu og eftirspurnar, þá er til einföld og ódýr aðferð: að láta þær báðar í friði.

In the flesh

Wednesday, January 10th, 2007

Íslendingur röltir með tvo erlenda gesti eftir Austurvelli, í einkennisbúningi fjármálageirans og fínum frökkum, napurt í veðri.

Íslendingur: „And this is the parliament building, where the MPs make laws that the president will sign …“

Erlendingur: „Have you seen him?“

Íslendingur: „What?“

Erlendingur: „Have you seen the president?“

Íslendingur: „Oh yeah. The president of Iceland? Everybody has seen him. I’ve seen him naked!“

Eru ekki einhver viðurlög við svona tali um holdgert einingartákn þjóðarinnar?

Carter og kanínan

Tuesday, January 2nd, 2007
Carter stuggar fenjakanínunni frá

The Washington Post, exercising the news judgement that we in the White House had come to appreciate so keenly, headed the piece President Attacked by Rabbit and ran it on the front page.

Öllum er hollt að fræðast um árás fenjakanínunnar á Carter Bandaríkjaforseta árið 1979.

Mitt eigið net óskar lesendum til sjávar og sveita (allra landa) gleðilegs nýs árs og þakkar lesturinn á því liðna.

Ögmundur söðlar um

Sunday, December 31st, 2006
Ögmundur Jónasson starfar nú hjá Kaupþingi

Graffidjótar allra hverfa sameinist! Þessar strætóskýlaauglýsingar æpa á háð.

Mölur og ryð

Saturday, December 30th, 2006

Sennilega væri til hagsbóta fyrir andlegan þroska okkar og gildismat að mölur og ryð verkuðu tífalt hraðar.

Það væri hins vegar til baga í viðhaldi heimila og bíla.

Svona í meðallagi ótengt þessu: þegar starfsmenn Miklagljúfursþjóðgarðsins í Bandaríkjunum eru spurðir að aldri Miklagljúfurs (Grand Canyon), svara þeir „no comment.“ Þeir mega ekki gefa upp áætlaðan aldur þess. Hvers vegna ekki? Jú, vegna þess að það færi í taugarnar á sköpunartrúuðu fólki sem vill að Miklagljúfur hafi orðið til í Syndaflóðinu.

Þetta er ekki grín, og ekki tilviljun eða sérviska starfsmanna. Þetta er stefna ríkisstjórnar Bush. Meira um þetta hér.

Réttlætismál

Tuesday, December 12th, 2006

Það er ekki til neitt réttlæti nema það réttlæti sem gengur jafnt yfir alla. Í þeim anda segir Mogginn í dag:

Blindir fái skotleyfi

Blindir bætast innan skamms í fjölmennan hóp veiðimanna í Texas ef nýtt frumvarp um veiðiréttindi þeirra verður að lögum. [...]

Þetta er auðvitað ekki nema sanngjarnt.

Ekki þarf að hafa áhyggjur af skynsemi þessarar brýnu réttarbótar, því að lögin gera kröfu um sjáandi fylgdarmann, sem á að „tilgreina blindum um hversu marga þumlunga þeir þurfi að hreyfa skotvopnið til að hitta bráðina“ (frekar en eitthvað annað).

Á svipaðan hátt væri t.d. óhætt að setja siðsjónskertan bókstafstrúaðan einfeldning við stjórnvölinn á stóru kjarnorkuvopnabúri, ef hann fengi viti borna ráðgjafa til að leiðbeina sér um viðeigandi brúk þess.

Sko, bara svona svo að ímyndað dæmi sé tekið af handahófi.

Barney

Monday, December 11th, 2006
BarneyCam

Hvað gerir forseti heimsins þegar hann tapar þingmeirihlutanum, stríðið hans er úrskurðað tómt rugl, varnarmálaráðherrann hans segir af sér með skömm, og aðeins 30% þjóðarinnar segist sátt við hann?

Jú, þá er kjörið að leika, ásamt helstu meðforingjum sínum, í alltof löngu jólamyndbandi um hundinn sinn — með gersamlega heilalaust blaður fyrir texta og söguþráð.

Þá er þorsti minn í hið fáránlega slökktur í bili. Freedom Fries hafi þökk fyrir!


Bad Behavior has blocked 53 access attempts in the last 7 days.