Archive for the ‘Fáránlegt’ Category

Barsmíðar með kylfum á Lækjartorgi

Tuesday, April 1st, 2008

Ég hringdi rétt áðan í 112 vegna þess að ég gekk fram á tvo menn að ráðast að þeim þriðja á Lækjartorgi, beint fyrir framan mig um hábjartan dag. Annar þeirra lamdi hann nokkrum sinnum með kylfu, hinn æpti eitthvað, og þeir sneru hann niður.

Á meðan ég reyndi að lýsa þessu sá ég annan mann snúinn niður rétt hjá, í Austurstrætinu; hann grenjaði hátt, sagðist vera brotinn og spurði „hvað er að ykkur?“ Neyðarlínan skellti á mig, sjálfsagt vegna þess að ekkert heyrðist í mér hvort eð er fyrir bílflautum bensínmótmælenda.

Svo sá ég árásarmennina tala í talstöðvar og kalla á aðstoð. Þeir voru óeinkennisklæddir, en hljóta að hafa verið lögreglumenn. Ég sá ekki hvað hinir sigruðu höfðu sér til sakar unnið. Vonandi var það ærið.

Ekkert um þetta á forsíðu mbl.is ennþá. En ég er ekki að gabba. Þarna voru væntanlega þessir herramenn á ferð — ótengdir bensínmótmælunum sem stóðu yfir.

Fjör í miðbænum.

Heljarinnar bréf

Thursday, October 25th, 2007

Þetta er hjákátlegt og ofleikið og glórulítið — en það virðist vera gert af algerri einlægni og sannfæringu, af því tagi sem getur aðeins orðið til ef heilaþvotturinn hefst snemma og af krafti.

Að eitra viljandi huga ungra barna með þessum forneskjulegu hryllingssögum er … almennt bara talið allt í lagi.

Dimmir yfir dalnum

Wednesday, October 3rd, 2007

Ég gekk eitt sinn í skóla í Kísildal. Fannst hann fínn.

Fyrir tveimur vikum var skipaður nýr „distinguished visiting fellow“ við Hoover-stofnunina við þennan skóla.

Slíka upphefð hlýtur varla nokkur maður nema vera virtur menntamaður og/eða afreksmaður á sviði sínu.

Þessi nýi andans jöfur heitir Donald Rumsfeld.

Aldeilis distinguished.

Pant ekki …

Monday, September 10th, 2007

… fljúga með Nepal Airlines.

Tæknileg vandræði hafa plagað eina af Boeing 757-vélum þessa nepalska flugfélags undanfarnar vikur. Það er engin frágangssök, en stjórnendur félagsins hafa núna brugðist við vandanum með því að … fórna tveimur geitum fyrir framan vélina, til að friða himnaguð Hindúa, Akash Bhairav.

Vélin kvað vera komin í lag. Guðinn greinilega tilfreds í bili.

Þetta er dagsatt. Reuters lýgur ekki.

(Auðvitað væri allt annað mál að spenna greipar og biðja fyrir farsælli lausn vandans að hætti eðlilegra kristinna manna. Það væri öllu skynsamlegra og affarasælla. Sannarlega frá sjónarhóli geitanna.)

1984

Wednesday, September 5th, 2007

Mogginn fjallar um umdeilda auglýsingu:

„Á Biskupsstofu fengust þær upplýsingar að auglýsandinn yrði þó ekki kærður fyrir guðlast“

Þetta er um haustið 2007. Spænski rannsóknarrétturinn var lagður niður fyrir 173 árum og hafði þá ekki drepið neinn í átta ár. Við búum við ört skánandi vísindalegan skilning á hinu stóra og hinu smáa í heiminum og getum jafnvel grillt í árdaga hans. Við kunnum að erfðabreyta lífverum og greina þróun mannverunnar langt aftur í apaættir, ferðast út fyrir hnöttinn o.s.frv. Og mannréttindum og frelsi, sérstaklega tjáningarfrelsi, fleygir fram að flestu leyti.

En fólk talar enn í fyllstu alvöru um opinberar kærur og refsidóma … fyrir guðlast.

Voðalega ætlar þessi fjári að vera lífseigur.

„Ekki er vitað hvað manninum gekk til“

Saturday, July 21st, 2007

Mætti ekki bara nema þennan frasa á brott úr frasaforða fréttamanna?

Dauðans óvissi tími

Friday, June 8th, 2007

Karen Wetterhahn

Þennan dag fyrir tíu árum lést Karen Wetterhahn efnafræðingur úr kvikasilfurseitrun.

Hún hafði misst einn eða tvo dropa af tvímetýlkvikasilfri (dimethylmercury) á hanskann sinn. Fimm mánuðum síðar varð hún vör við truflanir í taugakerfinu: jafnvægismissi og drafandi tal. Á spítala mældist kvikasilfrið í blóði hennar við tuttuguföld eitrunarmörk. Hún féll í dá þremur vikum eftir fyrstu einkennin, og tórði í því dái í nokkra mánuði.

Vitað var að efnið væri mjög eitrað, en ekki að það færi í gegnum flesta hanska á nokkrum sekúndum. Það uppgötvaðist ekki fyrr en Karen Wetterhahn veiktist.

Mórall sögunnar: það er hægt að fylgja reglunum til hlítar, gera allt rétt og af dugnaði og samviskusemi, og verða samt taugaskemmdur spítalamatur og deyja langt á undan áætlun. Bara af óheppni.

Hundskumst því til að lifa lífinu á meðan okkur helst á því.

Þetta var lífsgleðiboðskapur dagsins frá Gunnlaugi. Nýtið vel.

Óskírð börn ekki lengur í forgarði vítis

Friday, April 27th, 2007

Í frétt á mbl.is:

Alþjóðlega guðfræðinefnd Páfagarðs hefur sent frá sér skjal, sem ber yfirskriftina „Von um frelsun ungabarna sem deyja óskírð”. Þar kemur fram að eftir áratuga rannsóknir sé ljóst að óskírð börn, sem deyja, lendi ekki í forgarði vítis eins og til þessa hefur verið haldið fram.

Það er væntanlega flestum ljóst að þetta „rannsóknastarf“ sé kjánalegt. Samt þykir einhvern veginn ljótt að segja það upphátt. Hinir eldri sussa og segja „maður segir ekki svona.“

Kannski þykir sú hreinskilni ljót af sömu ástæðum og það þykir ljótt að sparka í liggjandi mann. En kaþólska kirkjan er með allra ríkustu og valdamestu liggjandi mönnum, og hefur feiknalega stjórn á hugum hundruða milljóna manna. Ég er bara mátulega vel stæður og það er rétt svo að ég stjórni mínum eigin huga. Ég held það sé óþarft að verja kaþólsku kirkjuna fyrir mér.

Þegar ég er skammaður fyrir að sparka í þennan liggjandi mann er það svolítið eins og mús sé skömmuð fyrir að sparka í tána á dauðvona risaeðlu.

Það er athyglisvert að orðalagið „áratuga rannsóknir“ sé notað. Er þetta tilraun kirkjunnar til að hljóma trúverðug, að láta eins og hún leiti sannleikans á eins agaðan og gagnrýnan hátt og vísindamenn?

Ætli „rannsóknir“ kaþólsku kirkjunnar leiði einhvern tímann í ljós t.d. að getnaðarvarnir séu raunar ekki syndsamlegar, eða samkynhneigð ekki viðurstyggð? Það er kannski bjartsýni, en hún uppgötvaði jú fyrir fimmtán árum að hún hefði nú kannski komið svolítið illa fram við Galíleó … 350 árum eftir að hann dó í stofufangelsi fyrir örgustu vísindaiðkun. Kirkjunni er ekki alls varnað.

Ekkert liggur nú á

Sunday, April 22nd, 2007

Vefbúð/vöruskrá ÁTVR liggur niðri vegna uppfærslu á tölvukerfi okkar. Uppfærslunni lýkur í byrjun júní.

vinbud.is

Seiseijá, það er nú lágmark að loka í einn og hálfan mánuð. Má ekki minna vera.

Erum við virkilega svona miklar smásálir?

Tuesday, April 10th, 2007

Skrípósprengja

Uwe E. Reinhardt hefur beðið Íslendinga afsökunar á háðsgrein sinni í garð Bandaríkjanna. Af því að við vældum svo mikið.

Ísland var notað í þessari grein einmitt vegna þess að öllum er ljóst að Ísland væri einhver fáránlegasti blettur jarðarkringlunnar fyrir Bandaríkjamenn að ráðast á. Þetta er augljóst.

Og að öðru leyti snýst grein hans alls ekki um Ísland.

Óháð því hvort þetta háð þykir fyndið er grátlega smásálarlegt af Íslendingum að reka upp ramakvein yfir því.

Þarna urðu margir þjóðinni til skammar — ekki bara hvolpsgreyið með innantómu drápshótunina.

Get a grip, people.


Bad Behavior has blocked 53 access attempts in the last 7 days.