Archive for the ‘Ég er ekki að skálda þetta upp’ Category

What, me worry?

Monday, September 29th, 2008

Forsíða Glitnis í dag:

Þarf ég að hafa áhyggjur?

Tískusýning

Saturday, August 23rd, 2008

Það er tískusýning fyrir utan gluggann minn. Ellefu grannar stelpur þoka sér löturhægt niður stíginn berleggjaðar í misflegnum flíkum, með þennan sérstaka útfararsvip sem tískumódel eiga að setja upp.

Það er stinningskaldi og rigning. Þær draga við og við hárið úr andlitinu og reyna að skjálfa ekki.

Hópinn leiðir pallbíll með hátölurum. Tónlistin er hið sígilda Prodigy-lag … „Smack my bitch up“.

Ég held að það sé líf á Mars. Og ég held að þeir hafi Jörðina fyrir veruleikaþátt.

Barsmíðar með kylfum á Lækjartorgi

Tuesday, April 1st, 2008

Ég hringdi rétt áðan í 112 vegna þess að ég gekk fram á tvo menn að ráðast að þeim þriðja á Lækjartorgi, beint fyrir framan mig um hábjartan dag. Annar þeirra lamdi hann nokkrum sinnum með kylfu, hinn æpti eitthvað, og þeir sneru hann niður.

Á meðan ég reyndi að lýsa þessu sá ég annan mann snúinn niður rétt hjá, í Austurstrætinu; hann grenjaði hátt, sagðist vera brotinn og spurði „hvað er að ykkur?“ Neyðarlínan skellti á mig, sjálfsagt vegna þess að ekkert heyrðist í mér hvort eð er fyrir bílflautum bensínmótmælenda.

Svo sá ég árásarmennina tala í talstöðvar og kalla á aðstoð. Þeir voru óeinkennisklæddir, en hljóta að hafa verið lögreglumenn. Ég sá ekki hvað hinir sigruðu höfðu sér til sakar unnið. Vonandi var það ærið.

Ekkert um þetta á forsíðu mbl.is ennþá. En ég er ekki að gabba. Þarna voru væntanlega þessir herramenn á ferð — ótengdir bensínmótmælunum sem stóðu yfir.

Fjör í miðbænum.

Viðurstyggð eyðingarinnar

Sunday, December 9th, 2007

Þorgerður Katrín

Menntamálaráðherra er að missa það. Nú stendur til að segja í lögum að starfshættir grunnskóla skuli mótast af:

„umburðarlyndi, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi.“

Frumvarpið hefur vitanlega tendrað bál illdeilna, enda hrein brjálsemi, hatrömm aðför að rótgrónum hefðum þessa lands.

Sem betur fer hafa réttsýnir menn sameinast um að skera upp herör gegn því að þessi ókjör megi verða að lögum.

Þeir sjá glöggt hvílíkt óheillaskref það yrði, að taka upp ofangreind siðgæðisviðmið.

Ég er ekki að skálda þetta upp.


Bad Behavior has blocked 20 access attempts in the last 7 days.