Lega gossprungunnar á Fimmvörðuhálsi

Eldgosið á Fimmvörðuhálsi hefur fengið mikla athygli, en nákvæm gögn og myndræn framsetning á staðsetningu gossprungunnar eru vandfundin.

Ég rakst þó á tölur um lengd og legu gossprungunnar í þessari frétt á ruv.is, og sú staðsetning virðist ríma vel við hitamynd úr gervitungli á vef Jarðvísindastofnunar. Þessi staðsetning og stefna sprungunnar virðist líka passa vel við myndirnar úr TF-SIF í kvöld — mér finnst þó eins og myndirnar séu ekki teknar eins mikið að ofan (undir eins stóru horni frá jörðu) og hæð þyrlunnar gefur til kynna, en sjálfsagt er lítið að marka hvað auganu sýnist um það. Þessi staðsetning er því líklega þokkaleg ágiskun.

Ég setti saman í Google Earth eftirfarandi:

  • þessa ætluðu legu gossprungunnar (ég slumpaði á 750m lengd þar sem RÚV sagði 0,5-1km).
  • staðsetningar Baldvinsskála og Bása (slumpað út frá myndgögnum í Google Earth)
  • tvo GPS-slóða (slóði 1 og slóði 2) sem ferðamenn hafa sett inn á Wikiloc-vefinn
  • uppgefna staðsetningu þyrlunnar TF-SIF þegar myndirnar þrjár á vef Landhelgisgæslunnar voru teknar í kvöld

Gossprungan virðist ná rakleitt yfir gönguleiðina um Fimmvörðuháls, á Bröttufönn.

Hér er KMZ-skrá fyrir Google Earth með þessum gögnum í, og fyrir neðan er yfirlitsmynd af þeim, og nærmynd þar sem sést hvernig sprungan liggur yfir gönguleiðina.

Á myndunum kemur fram höfundarréttur Google o.fl. á kortagögnum.

Njótið vel, og endilega látið mig vita ef eitthvað má betur fara.

Uppfært 22. mars kl. 10:46 — bætti við tveimur myndum hér fyrir neðan með slumpi mínu á tilgátu sigsig (fjólublárri) um staðsetninguna, og línu (gulri) á milli vesturodda Morinsheiðar og Baldvinsskála, sem mér sýnist sprungan liggja á skv. myndum Jarðvísindastofnunar. Línan styður enn frekar staðsetninguna skv. ruv.is, en síðari myndin sýnir svæðið frá nyrsta sjónarhorni þyrlunnar, og út frá henni og þyrlumyndinni sýnist mér stefna sprungunnar liggja u.þ.b. mitt á milli minnar ágiskunar og myndar sigsig. Að auki virðist sprungan á ljósmyndum liggja rétt fyrir sunnan brúnina, ekki yfir hana eins og þessi teikning mín gefur til kynna að hún geri.

(Ættu ekki annars stofnanir og fjölmiðlar að birta þetta með allri þeirri nákvæmni sem þeim er möguleg?)

3 Responses to “Lega gossprungunnar á Fimmvörðuhálsi”

  1. photo Says:

    Flott framsetning, auðvita átti að nota Google Earth í þetta dæmi. Var sjálfur búinn að finna viðbót þannig að þú getur flogið eða fylgt slóðanum og útbúið video af öllu saman.

  2. Helgi Már Says:

    Lúkkar vel, var einmitt í svipuðum pælingum. Ég notaði TGT og Aircraft hnitin úr myndunum til að reyna “triangulate-a” locationið og þá fékk ég það eiginlega á milli þín og sigsig. Getur opnað pælingarnar hér:
    http://helgi.com/Gosid.kmz . En mjög gott að hafa þitt kmz með til hliðsjónar.

  3. Eymundur Ingimundarson Says:

    Frábært framtak.. hef einmitt verið að leita að almennilegri staðsetningu og afstöðu sprungunnar, þar sem maður hefur gengið þetta oftar en einu sinni er mjög spennandi að vita nákvæmlega hvar þetta er.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 20 access attempts in the last 7 days.