Páll Baldvin brosti í kvöld, aftur og aftur!

… enda kapítalisminn að hrynja.

3 Responses to “Páll Baldvin brosti í kvöld, aftur og aftur!”

  1. baal Says:

    Sögusagnir um andlát kapítalismans eru stórlega ýktar. Hann er í mesta lagi með bólu á rassinum. Hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að annar fóturinn sé af frjálshyggjunni þessa dagana. Við öxl.

  2. GÞB Says:

    Heh, skemmtilega orðað.

    Mér þykir nær lagi að laissez-faire-kapítalismi sé búinn að naga af sér báðar lappirnar upp að öxlum.

    Frjálshyggja er mun breiðara hugtak. Hún (eða a.m.k. það sem ég aðhyllist undir nafni hennar) er pólitísk fylgispekt við frelsishugsjónina, þá grunnreglu að fólk eigi helst að fá að ráða sér sjálft og ekki skuli ráðskast með það nema að því leyti sem ríkulegar ástæður eru til (og lítt umdeildar meðal kjósenda).

    Það er öfugt við helsishugsjónina sem sumir aðhyllast (sjaldan undir því nafni), þá grunnreglu að helst eigi að ráðskast með fólk og það skuli ekki fá að ráða sér sjálft nema að því leyti sem ríkulegar ástæður eru til (og lítt umdeildar meðal embættismanna).

    Vonandi flögrar sú frjálshyggja eitthvað áfram þrátt fyrir að hafa fengið drep í hægri vængbroddinn.

  3. baal Says:

    Greenspan greyið var nú píndur til að viðurkenna að hans hugmyndafræði hafi beðið hnekki. Það er kannski ósýnilega höndin sem er af við öxl?

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.