Archive for October, 2008

Kreppling

Thursday, October 9th, 2008

Afsakið að þetta sé ekki á íslensku — mér finnst ég ekki alveg þess umkominn að snara því.

If you can keep your head when all about you
  Are losing theirs and blaming it on you,
If you can trust yourself when all men doubt you
  But make allowance for their doubting too,
If you can wait and not be tired by waiting,
  Or being lied about, don’t deal in lies,
Or being hated, don’t give way to hating,
  And yet don’t look too good, nor talk too wise:

If you can dream—and not make dreams your master,
  If you can think—and not make thoughts your aim;
If you can meet with Triumph and Disaster
  And treat those two impostors just the same;
If you can bear to hear the truth you’ve spoken
  Twisted by knaves to make a trap for fools,
Or watch the things you gave your life to, broken,
  And stoop and build ‘em up with worn-out tools:

If you can make one heap of all your winnings
  And risk it all on one turn of pitch-and-toss,
And lose, and start again at your beginnings
  And never breath a word about your loss;
If you can force your heart and nerve and sinew
  To serve your turn long after they are gone,
And so hold on when there is nothing in you
  Except the Will which says to them: “Hold on!”

If you can talk with crowds and keep your virtue,
  Or walk with kings—nor lose the common touch,
If neither foes nor loving friends can hurt you;
  If all men count with you, but none too much,
If you can fill the unforgiving minute
  With sixty seconds’ worth of distance run,
Yours is the Earth and everything that’s in it,
  And—which is more—you’ll be a Man, my son!

— Rudyard Kipling

Peningamál

Thursday, October 9th, 2008

SÍ-mian

Stýrivextir á Íslandi eru í dag 15,5%.

Þetta er auðvitað til þess að stemma stigu við þeirri óhóflegu þenslu og einkaneyslu sem framundan er.

Páll Baldvin brosti í kvöld, aftur og aftur!

Wednesday, October 8th, 2008

… enda kapítalisminn að hrynja.

Krefjumst þess að hinir háu verði dregnir til ábyrgðar

Wednesday, October 8th, 2008

Ísland rambar á barmi gjaldþrots. Það er ljóst að hugmyndakerfi kapítalismans og frjálshyggjunnar eru fallin. Staða Íslands og álfunnar allrar sannar að ekkert hagkerfi þolir óhefta þenslu. Það er einnig ljóst að það hávaxna fólk sem hingað til hefur haldið um stjórnartaumana er ekki hæft til starfans.

Fjarvera lágvaxinna í efnahagsmálum hefur lengi verið áberandi, enda hafa áherslur lágvaxinna ekki þótt eftirsóknarverðar. Áhættumeðvitund, áherslur á langtímaávinning og samfélagslegan ávinning og gagnsæi þóttu of hamlandi viðhorf á útrásartíma. Hástemmd áhættusækni, oft kennd við víkinga, með skammtímaávinning fyrir einstaklinga að markmiði var það sem gilti. Þessi sömu gildi hafa nú valdið versta efnahagsástandi í manna minnum.

Lágvaxtarfélag Íslands krefst þess að valdhafar landsins dragi hlutaðeigandi til ábyrgðar vegna núverandi stöðu efnahagsmála. Til þess að raunhæf lausn finnist á vandanum þarf að greina og fjalla um orsakirnar. Aðeins útfrá ítarlegri könnun á orsök og afleiðingu er hægt að finna rétt svör.

Þörfin fyrir að uppfylla alþjóðasamninga um samþættingu líkamshæðarsjónarmiða hefur aldrei verið meiri. Forræði hinna hástemmdu gilda með gróðasjónarmið, fífldirfsku, eiginhagsmunasemi að leiðarljósi verður að linna enda eru þau komin í þrot. Sú uppbygging sem framundan er verður að vera á forsendum og forræði beggja hliða hæðarkúrvunnar. Virk þátttaka hinna lágvöxnu og lágstemmdra gilda er forsenda þess að uppbyggingin geti orðið okkur öllum og komandi kynslóðum til heilla.

Reynslan sýnir að þau ríki sem notið hafa leiðsagnar lágvaxinna í uppbyggingu eftir samfélagslegt hrun, standa betur en önnur. Í ljósi ofangreinds krefst Lágvaxtarfélag Íslands þess að stjórnvöld og þjóðin öll opni fyrir nýja hugmyndafræði, áhættumeðvitaða stjórnunarhætti og skipi nýtt fólk til stefnumótunar, jafnt háa sem lága.

[Fyrirmynd]

Fast gengi

Tuesday, October 7th, 2008

Gengisvísitala á margvíslegu fastgengi innan dagsins

… fast í stundarkorn í einu, eftir því hvaða lán Seðlabankinn ímyndar sér að hann sé með þá og þá stundina.

Rússarnir koma

Tuesday, October 7th, 2008

Eigum við ekki einmitt lausar lóðir að bjóða á Miðnesheiði?

Samsæri! Innherjasvik! Eða ekki.

Monday, October 6th, 2008

Stöð 2 og visir.is fluttu frétt um að Guðbjörg Matthíasdóttir hefði selt stóra stöðu í Glitni „korteri áður en bankinn var þjóðnýttur.“ Þess var getið að viðskiptaráðgjafi hennar væri „náinn vinur Davíðs Oddssonar“ og sonur hennar ynni hjá Glitni.

Þetta hljómar auðvitað illa, enda var það líklega ætlunin.

Vitnað var í viðskiptaráðgjafann um málið, en svör hans ekki skýrð nánar fyrir leikmenn. Guðbjörg reynist hafa átt sölurétt („put option“) á hlutabréf Glitnis, sem varð til í september í fyrra og var að renna út.

Ég ætla að reyna að skýra þetta betur út. En fyrst: ég tengist málsaðilum ekki neitt og veit ekkert um málið nema það sem kemur fram í fréttum. Við Davíð erum fimmmenningar. Ég gæti hafa hitt hann á ættarmóti þegar ég var fjórtán ára. Ég hef takmarkaðar mætur á störfum hans sem seðlabankastjóra, og engan sérstakan áhuga á að bera blak af honum. En ég hef áhuga á að ekki sé villt um fyrir fólki.

Söluréttur er samningur um að einhver megi selja ákveðið mörg bréf á ákveðnu verði, á ákveðnum tíma, ef honum sýnist svo. Útgefandi söluréttarins (mótaðilinn í samningnum) skuldbindur sig til að kaupa á því verði, ef rétturinn er nýttur.

Svona samningur verkar sem eins konar trygging á lágmarksverðmæti bréfanna í ákveðinn tíma: hann er verðlaus á lokadegi sínum ef bréfin eru þá dýrari en sem nemur söluverðinu í samningnum (þá myndi eigandinn bara selja bréfin á markaði frekar en nýta söluréttinn) — en ef bréfin eru ódýrari, þá fyllir samningurinn í mismuninn.

Hlutabréf í Glitni höfðu auðvitað lækkað verulega að markaðsvirði undanfarið ár, líka áður en hann var þjóðnýttur. Í söluréttinum fólust því veruleg verðmæti ef hann yrði nýttur, og engin verðmæti ef hann væri látinn renna út.

Þannig var augljóst — óháð yfirvofandi þjóðnýtingu — að sölurétturinn hlyti að verða nýttur, þótt ekki væri nema til þess að kaupa aftur fyrir sömu upphæð á lægra verði (en á svona tímum er skiljanlegt að setja féð frekar á öruggari stað). Að nýta hann ekki væri eins og að sækja ekki tryggingabætur eftir húsbruna, bara af einhverri gjafmildi við tryggingafélagið. Það væri hreinlega að kasta peningum út um gluggann — í fangið á útgefanda söluréttarins — af engri sérstakri ástæðu. Það væri bara út í hött.

En það sem meira er: jafnvel þótt samningurinn hefði runnið út viku síðar og Guðbjörg þá nýtt hann eftir þjóðnýtingu — þá hefði hún fengið sama verð, það verð sem samningurinn kvað á um.

Guðbjörg græddi þannig nákvæmlega ekki neitt á því að selja „korteri áður en bankinn var þjóðnýttur,“ eftir því sem ég fæ best séð. Tímasetningin hefur þá enga raunverulega þýðingu. Innherjaupplýsingar hefðu ekki breytt neinu, jafnvel þótt hún hefði fengið þær.

Þetta hefði verið hægt að taka fram í fréttinni — en þá hefði ekki verið nein frétt.

(… og hver á nú aftur miðlana sem fluttu þessa frétt?)

Fréttaþyrst þjóð

Friday, October 3rd, 2008

Á þessum merkisdegi eru eftirfarandi fréttir mest lesnar á Vísi.is:

  • Afturendi Aniston vekur athygli - myndir
  • Angelina Jolie þunglynd og sígrátandi - myndir
  • Handleggir Madonnu vekja óhug - myndir
  • Athyglisverð andlitsförðun Catherine Zeta-Jones - myndir
  • Bubbi boðar til mótmæla
  • Gallabuxur Katie Holmes gagnrýndar - myndir

Mótmælin sem Bubbi boðar til eru mótmæli gegn heiladauðu góni á fræga fólkið.

(Og þó, kannski las ég þá frétt hratt eða ekki. Athyglin reikaði. Vantaði myndir.)

Lýrík í lofti

Thursday, October 2nd, 2008

Mikið var það viðeigandi að snjórinn skyldi koma einmitt í dag.


Bad Behavior has blocked 44 access attempts in the last 7 days.