Archive for August, 2008

Meira um ræðuskráningu á Alþingi

Sunday, August 31st, 2008

Eftir Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur, birt í „Háttvirtum þingmanni“, © 2007 Skrifstofa Alþingis

Í leiðarvísi þingsins fyrir nýja þingmenn, „Háttvirtur þingmaður“ (PDF) er að finna þessa klausu um ræðuvinnsluna:

Ræðuritarar upplýsinga- og útgáfusviðs slá ræðuna inn í ritvinnsluskjal eftir upptökunni. Eigi þingmaður texta ræðunnar á tölvutæku formi er æskilegt að hann eða ritari hans sendi ræðutextann til ræðuritunar í tölvupósti á netfangið raedur hjá althingi.is. Jafnvel þótt nokkuð sé vikið frá hinum skrifaða texta við flutning ræðunnar í þingsal sparar það tíma við innslátt, eykur öryggi og flýtir fyrir birtingu hennar á vef þingsins.

Feitletrunin er mín. Af þessu mætti skilja að þingmaður geti hreinlega gert sínar breytingar eftir hentisemi og svo sent breyttan ræðutextann til skráningar. En svo segir í næsta skrefi ræðuvinnslunnar:

Lesarar hlusta á hljóðupptökuna og leiðrétta og lagfæra um leið textann á tölvuskjá.

Ræðutextinn frá þingmanni er þá ekki bara látinn gilda, heldur eiga lesarar að nota hann sem grunn til að spara sér innslátt, og leiðrétta hann til samræmis við það sem var raunverulega sagt í ræðustóli. Gott.

En í næstu skrefum:

Grænu ræðublöðin eru send í þinghúsið og þeim útbýtt á borð þingmanna. Þau eru stimpluð með dagsetningu sem segir til um þann frest sem þingmaðurinn hefur til að skila yfirlesinni ræðu sinni til þess að athugasemdir hans og leiðréttingar, ef einhverjar eru, nái til ritstjóra áður en gengið er frá textanum til lokaútgáfu.
[...]
Ritstjórar lesa að lokum yfir allar ræður og athugasemdir frá þingmönnum. Þeir lagfæra textann endanlega áður en hann er sendur til prentunar og ganga frá lokaútgáfu á vefnum.

Guðni hefur þá líklega ekki þurft að fara út fyrir kerfið til að fegra þingræðu sína eftir á. Hann hefur bara krotað breytingu sína á græna ræðublaðið — og kannski talað ritstjórann til. Hvað gerist svo?

Allir eiga leiðrétting orða sinna, segir máltækið. Þingmönnum eru þó settar þröngar skorður í því efni, sbr. 88. gr. þingskapa. Stundum getur verið álitamál hvort taka megi til greina óskir um lagfæringar á ræðum þeirra.
[...]
Komið getur fyrir að þingmaður hafi í ógáti tilfært rangar upplýsingar, t.d. tölfræðilegar, um eitthvert atriði sem hann fjallaði um í þingræðu eða mismælt sig illilega og vilji fá að leiðrétta ummælin. Þetta má fella undir orð þingskapa um „auðsæjar og sannanlegar villur“. Samt er ekki hægt að verða við tilmælum um leiðréttingu ef aðrir þingmenn hafa vefengt upplýsingarnar meðan á þingfundi stóð eða umræða hefur orðið um orð þingmannsins.

Ég er fyrstur til að kalla það „auðsæja og sannanlega villu“ að ekki sé til neitt siðgæði annað en kristið siðgæði. En að sama skapi væri auðsæ og sannanleg villa ef þingmaður segði t.d. að „gyðingar væru kristnu fólki lakari að siðgæði“ (sem raunar felst eiginlega í orðum Guðna, væntanlega bara af því að þau voru vanhugsuð) eða að „svartir væru líkari simpönsum en mönnum“ (og ekki ber ég þá skoðun upp á Guðna) — enda væri hann þá ekki að tilfæra upplýsingar, heldur skoðanir sínar.

Í kolröngum og vanhugsuðum ummælum geta nefnilega falist aðrar upplýsingar, um hug þingmannsins. Eina auðsæja og sannanlega villan við þær upplýsingar er að hann glopraði þeim út úr sér. Ætti þingmaður að mega breiða yfir þau mistök?

Á þingmaður að fá að láta hvaða vitleysu sem er út úr sér og „leiðrétta“ hana svo í útgefnum ræðutexta sem „auðsæja og sannanlega villu“ þegar það rennur upp fyrir honum að ummælin voru faux pas? Auðvitað ekki. Ritstjóri á að neita þingmanni um slíkan lúxus. Bommertur skulu standa.

Þingræðum breytt efnislega eftir á

Saturday, August 30th, 2008

Kynngimagnað alveg. Þingræður eru birtar á vef Alþingis og það er prýðilegt að geta flett upp í þeim … eða var prýðilegt, þar til það kom í ljós að þingmenn breyta textanum eftir á ef hann hentar ekki!

Nýlega benti Matthías Ásgeirsson á að sláandi orð Guðna Ágústssonar væru ekki rétt höfð eftir á Alþingisvefnum. Það sem Guðni sagði raunverulega var:

„Það er ekki til neitt siðgæði í rauninni nema kristið siðgæði.“

en á Alþingisvefnum er hann látinn hafa sagt nokkuð mun skárra (en þó vafasamt):

„Það er í rauninni ekki til neitt sem hefur bætt heiminn jafnmikið og kristið siðgæði.“

Og nú hefur Guðni viðurkennt að hann lét einfaldlega breyta ræðutextanum eftir á þegar það rann upp fyrir honum að raunveruleikinn hentaði ekki alveg.

Við þetta kvikna spurningar:

  1. Við hvaða skilyrði mega þingmenn breyta skráðum ræðutexta sínum efnislega eftir á? Gilda ekki einhverjar reglur? Hringja þeir bara í tölvumanninn og biðja hann að „redda soltlu?“
  2. Á hvaða hátt er efnisleg breyting á þingræðutexta ekki sögufölsun?

Bróðir minn hefur bent á klausu í þingskaparlögum sem svarar fyrri spurningunni afdráttarlaust:

Í Alþingistíðindunum má ekkert undan fella sem þar á að standa og fram hefur komið í þinginu og hljóðupptaka ber með sér. Engar efnisbreytingar má gera nema leiðrétta þurfi auðsæjar og sannanlegar villur. Engu má bæta inn í Alþingistíðindin, hvort sem það varðar menn eða málefni, nema þess sé óhjákvæmilega þörf eða í því felist sjálfsögð leiðrétting.

Annars staðar á Alþingisvefnum kemur fram að þessar ræðubirtingar séu „vefútgáfa Alþingistíðinda“ og þá hljóta lagaákvæði um Alþingistíðindi að gilda um þær líka. Það er gott að sjá að lög banna þessa háttsemi þingmanna, en vont að sjá að Guðni komist upp með hana samt. Eða hver ætli fylgi málinu eftir?

Það er skiljanlegra að breyta megi ræðutexta til að strauja út minni háttar málvillur. Þó er það ekki sjálfsagt — er ekki sögufölsun að draga fjöður yfir það eftir á að þingmaður hafi verið óvenjulega illa máli farinn?

En þegar þingmenn hafa talað af sér, farið með fleipur, logið upp á aðra, sýnt þjóðfélagshópum asnalega óvirðingu, eða hvaða afglöp sem þeir láta nú henda sig í ræðustól … þá skal það fá að standa. Annað er út í hött.

[Sjá framhald um sama efni]

Tískusýning

Saturday, August 23rd, 2008

Það er tískusýning fyrir utan gluggann minn. Ellefu grannar stelpur þoka sér löturhægt niður stíginn berleggjaðar í misflegnum flíkum, með þennan sérstaka útfararsvip sem tískumódel eiga að setja upp.

Það er stinningskaldi og rigning. Þær draga við og við hárið úr andlitinu og reyna að skjálfa ekki.

Hópinn leiðir pallbíll með hátölurum. Tónlistin er hið sígilda Prodigy-lag … „Smack my bitch up“.

Ég held að það sé líf á Mars. Og ég held að þeir hafi Jörðina fyrir veruleikaþátt.

Heitið á hlaupara!

Saturday, August 23rd, 2008

Á morgun (í dag þegar þú lest þetta) hleypur fullt af dugnaðarfólki í Reykjavíkurmaraþoninu.

Þú getur heitið á skráðan hlaupara fjárhæð sem verður greidd til góðgerðarfélags sem hann hefur tilgreint, ef hann lýkur hlaupinu. (Ef ekki færð þú fjárhæðina til baka.)

Mjög einfalt er að skrá áheit á vef Reykjavíkurmaraþonsins (rauður kassi hægra megin).

Drífðu í því! Ef þú þekkir engan hlaupara getur þú til dæmis heitið á dándimanninn Ásgeir Kröyer, sem hleypur heilt maraþon og safnar áheitum fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.