Archive for June, 2008

Hálfbærni

Saturday, June 28th, 2008

Í Fiskifréttum Viðskiptablaðsins í gær er fjallað um kröfur evrópskra sjómanna á hendur ESB:

„Í fyrsta lagi er farið fram á styrki sem leiði til að minnsta kosti 40% lækkunar á eldsneytiskostnaði [...] eina leiðin til þess að fiskveiðar í Evrópu geti orðið sjálfbærar sé að eldsneytisverð verði lækkað.“

(Ath. ekki „lækki“ heldur „verði lækkað.“)

Með þessari túlkun getur líka mánaðargamall systursonur minn „staðið á eigin fótum“ ef mamma hans heldur nógu vel undir handarkrikana á honum …

Kennimark hinna sókratísku

Thursday, June 19th, 2008
Sókrates

Sókrates beitti gjarnan nafngiftum á borð við „fasista“ og „talibana“ til að vanda sérstaklega til rökræðu sinnar.

Tilgáta: Hvar sem orðið „fasismi“ sést í fyrirsögn pistils veit það á vel ígrundaða og réttsýna ritsmíð, sem getur af sér ekki síður frjósama og vandaða umræðu. Þar dregur enginn taum fastmótaðra skoðana á kostnað málefnalegrar greiningar, heldur kappkostar hver og einn að meðtaka inntakið í innleggjum mótpenna sinna, bræða með sér hvort þeir hafi mögulega nokkuð til síns máls, svara þeim gagnort og án þarflauss kvabbs, og allra síst láta upplifun sína á persónu, framkomu eða ritstíl nokkurs andstæðings þvælast fyrir sókninni að kjarna málsins. Menn draga fram það besta hver í öðrum og hafa allir sóma af. Svona vönduð netspjöll eru réttnefnd skoðanaskipti vegna þess hve algengt er að þátttakendur láti sannfærast af gæðum mótrakanna og skipti um skoðun, og umræðurnar leiða undantekningalítið til skynsamlegrar og farsællar niðurstöðu.

Hliðartilgáta: Svipað gæðamerki er orðið „talíbani“.

Laustengd tilgáta: Hver sá sem vekur athygli á málvillum og fljótræðis-stafsetningu andmælenda sinna í opinberri umræðu gerir það einatt af stökustu hjálpsemi og góðvild, allsendis yfirlætislaust og síður en svo til að koma á þá ómálefnalegu höggi. Hann verður maður að meiri fyrir viðvikið.


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.