Davíð veiði rísbjörn
Í fyrirsögn í Vegvísi Landsbankans:
Hrísgrjónaverð rís
Því alveg ótengt, í Viðskiptablaðinu Markaðnum í morgun:
… að til standi að egna gildrur fyrir spákaupmenn sem tekið hafi stöðu gegn íslensku efnahagslífi, svokallaðar bjarnargildrur, væntanlega með vísun í bandaríska fjárfestingarbankann Bear Stearns.
Úbbs. Bjarnargildrur heita eftir björnum (e. bears), þeim sem veðja á verðlækkanir á mörkuðum. Það er neyðarlegt að þeim sem skrifa um fjármálamarkaði í Viðskiptablaðið Markaðinn sé það ekki ljóst. Þessi orðnotkun er alkunna í geiranum.
Bankinn heitir (eða hét) einfaldlega eftir stofnendunum Joseph Bear og Robert Stearns. Heitin „bull“ og „bear“ á bjartsýnum og svartsýnum fjárfestum eru a.m.k. 140 árum eldri en Bear Stearns.
Ég eignaði í fyrstu Viðskiptablaðinu þessa bommertu. Það var mín bommerta, þetta var víst Markaðurinn að villa á sér heimildir með laxableika pappírnum.
