Barsmíðar með kylfum á Lækjartorgi

Ég hringdi rétt áðan í 112 vegna þess að ég gekk fram á tvo menn að ráðast að þeim þriðja á Lækjartorgi, beint fyrir framan mig um hábjartan dag. Annar þeirra lamdi hann nokkrum sinnum með kylfu, hinn æpti eitthvað, og þeir sneru hann niður.

Á meðan ég reyndi að lýsa þessu sá ég annan mann snúinn niður rétt hjá, í Austurstrætinu; hann grenjaði hátt, sagðist vera brotinn og spurði „hvað er að ykkur?“ Neyðarlínan skellti á mig, sjálfsagt vegna þess að ekkert heyrðist í mér hvort eð er fyrir bílflautum bensínmótmælenda.

Svo sá ég árásarmennina tala í talstöðvar og kalla á aðstoð. Þeir voru óeinkennisklæddir, en hljóta að hafa verið lögreglumenn. Ég sá ekki hvað hinir sigruðu höfðu sér til sakar unnið. Vonandi var það ærið.

Ekkert um þetta á forsíðu mbl.is ennþá. En ég er ekki að gabba. Þarna voru væntanlega þessir herramenn á ferð — ótengdir bensínmótmælunum sem stóðu yfir.

Fjör í miðbænum.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.