Archive for April, 2008

Abbababb

Monday, April 21st, 2008

Forsíða e-konnúmistans

Stundum tekst forsíðuhönnuðum alveg sérstaklega vel upp.

Þessi mynd gæti bara ekki verið betri.

Það rann upp fyrir öðrum hvorum okkar bræðranna (man ekki hvorum) að Berlusconi, sem hefur líkt sjálfum sér við bæði Napóleon og Jesú í sömu vikunni, er eins og Zaphod Beeblebrox með færri höfuð.

(Þeir sem ekki þekkja Zaphod Beeblebrox verða bara að fara á mis.)

Lærði nýtt orð í dag

Sunday, April 13th, 2008

Ég get ekki ábyrgst að ég hafi ekki einhvern tíma gerst sekur um kynþokkafordóma.

Davíð veiði rísbjörn

Thursday, April 10th, 2008

Björn með engan kaupáhuga

Í fyrirsögn í Vegvísi Landsbankans:

Hrísgrjónaverð rís

Því alveg ótengt, í Viðskiptablaðinu Markaðnum í morgun:

… að til standi að egna gildrur fyrir spákaupmenn sem tekið hafi stöðu gegn íslensku efnahagslífi, svokallaðar bjarnargildrur, væntanlega með vísun í bandaríska fjárfestingarbankann Bear Stearns.

Úbbs. Bjarnargildrur heita eftir björnum (e. bears), þeim sem veðja á verðlækkanir á mörkunum. Það er neyðarlegt að þeim sem skrifa um fjármálamarkaði í Viðskiptablaðið Markaðinn sé það ekki ljóst. Þessi orðnotkun er alkunna í geiranum.

Bankinn heitir (eða hét) einfaldlega eftir stofnendunum Joseph Bear og Robert Stearns. Heitin „bull“ og „bear“ á bjartsýnum og svartsýnum fjárfestum eru a.m.k. 140 árum eldri en Bear Stearns.

Ég eignaði í fyrstu Viðskiptablaðinu þessa bommertu. Það var mín bommerta, þetta var víst Markaðurinn að villa á sér heimildir með laxableika pappírnum.

Barsmíðar með kylfum á Lækjartorgi

Tuesday, April 1st, 2008

Ég hringdi rétt áðan í 112 vegna þess að ég gekk fram á tvo menn að ráðast að þeim þriðja á Lækjartorgi, beint fyrir framan mig um hábjartan dag. Annar þeirra lamdi hann nokkrum sinnum með kylfu, hinn æpti eitthvað, og þeir sneru hann niður.

Á meðan ég reyndi að lýsa þessu sá ég annan mann snúinn niður rétt hjá, í Austurstrætinu; hann grenjaði hátt, sagðist vera brotinn og spurði „hvað er að ykkur?“ Neyðarlínan skellti á mig, sjálfsagt vegna þess að ekkert heyrðist í mér hvort eð er fyrir bílflautum bensínmótmælenda.

Svo sá ég árásarmennina tala í talstöðvar og kalla á aðstoð. Þeir voru óeinkennisklæddir, en hljóta að hafa verið lögreglumenn. Ég sá ekki hvað hinir sigruðu höfðu sér til sakar unnið. Vonandi var það ærið.

Ekkert um þetta á forsíðu mbl.is ennþá. En ég er ekki að gabba. Þarna voru væntanlega þessir herramenn á ferð — ótengdir bensínmótmælunum sem stóðu yfir.

Fjör í miðbænum.


Bad Behavior has blocked 54 access attempts in the last 7 days.