Archive for March, 2008

RSK bregður á leik

Wednesday, March 26th, 2008

RSK í stuði

Jæjajá.

Skíði og bingó

Friday, March 21st, 2008

Við komumst ekki svona langt í fyrstu kennslustund.

Ég brá mér í Bláfjöll í dag að kenna bróðursyni mínum á skíði. Þar voru þúsundir manna í blíðskaparveðri og ég hafði gaman af. Furðulega langt er síðan ég renndi mér síðast á snjó.

Ennþá lengra er síðan ég lék síðast bingó. Sjálfsagt er það engin tilviljun. Bingó er, að mig minnir, sálardeyðandi leiðinlegt.

Samt leyfist þjóðinni að skemmta sér á skíðum á þessum degi … en landslög banna bingó.

Ef þingmönnum hefði hugkvæmst fyrir áratugum að banna skíðaíþróttir á föstudeginum langa, þá þætti íhaldssömu fólki frámunaleg frekja og kjánaskapur að einhverjar demonstrerandi ótuktir færu bara samt á skíði upp í opið geðið á valdstjórninni.

En fyrst þetta er ekki nú þegar í lögum dytti engum í hug að banna skíðaíþróttir á föstudaginn langa, þótt þær séu vinsæl skemmtun sem afvegaleiðir hjörðina frá tilhlýðilegu helgihaldi — a.m.k. meira en bingó megnar nokkurn tíma.

Eins, ef þingmenn hefðu ekki bannað bingó fyrir áratugum hefði varla nokkur maður metnað fyrir því að meina fólki bingóspil í dag.

En fyrst bannið er nú þegar í lögum þykir íhaldssömu fólki frámunaleg frekja og kjánaskapur að einhverjar demonstrerandi ótuktir haldi bara samt bingó upp í opið geðið á valdstjórninni.

Þetta minnir á fyrrnefndan bróðurson minn. Þegar hann er vakandi vill hann engan veginn fara að sofa. Þegar morgnar vill hann fyrir enga muni fara á fætur. Þegar hann á að fara í bað viðhefur hann borgaralega óhlýðni. Svo vill hann ómögulega koma upp úr. Óbreytt ástand er fyrir öllu.

En hann þröngvar ekki breytingafælni sinni upp á aðra, segir ekki öðrum hvað þeir mega og mega ekki gera. Og þó svo væri — þá er hann sex ára. Löglega afsakaður.

Kjánaleg og þarflaus löggjöf sem hvorki er fylgt né framfylgt rýrir virðingu okkar allra fyrir lögunum.

Lottógúrka

Saturday, March 8th, 2008

Súr gúrka

Stærsta forsíðufyrirsögn Fréttablaðsins í dag er um að maður á Fáskrúðsfirði hafi komist í tæri við lottósvindlara á netinu.

Ætli það slagi ekki í að ég hafi fengið hundrað svoleiðis meldingar í gegnum tíðina. Og það eru bara þær sem komast í gegnum sjálfvirku ruslpóstssíurnar.

Maðurinn virðist bara nokkuð stoltur af að hafa ekki fallið fyrir prettunum, ætlar að „leyfa þessum herramanni að engjast svolítið lengur“ … og óttast hann ekki neitt!

Þetta kallar maður að leika sér að eldinum. Spila með svona alþjóðaglæpamenn og bíða svo bara upp á von og óvon um að þeir mæti á Fáskrúðsfjörð til að hefna sín grimmilega. Þessi maður lifir á ystu nöf!

Reyndar iðka það sumir sem hobbý að spila með svindlarana, og þykir sérstaklega vel að verki staðið ef tekst að pretta út úr þeim bjánalegar myndir eða jafnvel peninga. Það er varla löglegt — en ekki neitt yfirmáta siðlaust heldur.

En að þetta skuli verða forsíðufrétt, og það af Fáskrúðsfirði … það er æði.


Bad Behavior has blocked 53 access attempts in the last 7 days.