Lúabrögð
Fréttablaðið birti í gær flennistóra frétt með fyrirsögninni „Vantrú vill Lofsönginn burt.“ Þar er vitnað í Matthías Ásgeirsson, formann Vantrúar, í þá veru að þjóðsöngurinn sé ótækur. Vísað er í þetta á forsíðu líka, með fyrirsögninni „Vilja nýjan þjóðsöng.“
Blaðamaður gætir þess vandlega að láta þetta tvennt ekki koma fram (sjá pistil Matthíasar):
- Matthías vakti ekki máls á þessu heldur tók undir með blaðamanni um það.
- Matthías lagði áherslu á að það væri ekki á dagskrá að berjast gegn þjóðsöngnum og að slík umræða kæmi málstað félagsins bara illa.
Samt er samtalið sett fram sem frétt um að Matthías hafi blásið til herferðar gegn þjóðsöngnum. Það er varla óvart.
Það er víst betra að vara sig þegar Freyr á Fréttablaðinu hringir.
December 5th, 2007 at 9:17 am
Ég er þessa dagana að æfa frasana “ég hef ekkert að segja” og “nei, þetta er bróðir hans, Matthías er ekki við”. Gætu komið sér vel þegar fréttamenn hringja :-) Ég er að spá í að tjá mig bara um trúmál og Vantrú í beinni útsendingu í sjónvarpi héðan í frá :-P