Heljarinnar bréf
Þetta er hjákátlegt og ofleikið og glórulítið — en það virðist vera gert af algerri einlægni og sannfæringu, af því tagi sem getur aðeins orðið til ef heilaþvotturinn hefst snemma og af krafti.
Að eitra viljandi huga ungra barna með þessum forneskjulegu hryllingssögum er … almennt bara talið allt í lagi.
October 25th, 2007 at 8:59 am
“forneskjulegu hryllingssögum”
Mikið finnst mér gaman þegar hlutirnir eru kallaðir sínum réttu nöfnum ;-)
October 25th, 2007 at 9:36 am
Hehe, sneiðin móttekin :) … samt er þetta varla mikil stefnubreyting, ég efast um að mörgum (sér í lagi íslenskufærum) lesendum sárni ónóg virðing við helvítishugmyndina. Þjóðkirkjan fæst a.m.k. ekki við að halda henni á lofti. (Og þó; kannski virðist mér það bara vegna þess að ég sæki ekki almennar messur, og helvíti er skiljanlega lítið á döfinni í skírnum, fermingum, giftingum … og sérstaklega jarðarförum.)
Eftir á að hyggja er annars næstum ósanngjarnt að kalla helvítismýtuna forneskjulega í þessari mynd. Það er jú búið að koma á póstsamgöngum við helvíti, og finna upp eldfastan pappír og blýant, eða blek sem gufar ekki upp í vítisfunanum. Þeir geysast fram í nútímann þarna í neðra.
October 26th, 2007 at 12:18 am
Það er rétt, það eru væntanlega fáir sem gætu orðið sárir – en ég veit þó um nokkra (sem er sorglegt en satt).
Þetta “bréf” minnir mig á atriði úr The root of all evil? þar sem Dawkins sýndi leiksýningu sem trúarbrjálæðingar settu á svið til að sýna fólki hvað helvíti væri hræðilegt og hverjir það væru sem þar enduðu. Ákaflega sjúkt.