Archive for October, 2007

Kærleiksfatlaður

Saturday, October 27th, 2007
The binding of Isaac

Faðir Abraham ónáðaður við dráp sonar síns.

Fulltrúi guðs meðal manna, sr. María Ágústsdóttir, kveður mig eiga í vandræðum með kærleikann:

„Án elskunnar til Guðs er erfitt að koma fram við fólk af kærleika.“

„Að elskan til Guðs er undanfari, forsenda, elskunnar til náungans er hins vegar ljóst af bæði textanum úr 5. Mósebók og guðspjallinu, Mk 10.17-27.“

Þar fór í verra. Þetta er víst bara einhver uppgerð í mér.

Það er skemmtilega bíræfið, þegar spyrða á náungakærleik saman við guðstrú, að vísa í Mósebækurnar því til sönnunar. Óvíða í Biblíunni er kærleiksboðun guðsins eins vemmilega á reiki.

Það er auðvitað morgunljóst að mér reynist „erfitt að koma fram við fólk af kærleika“ án þess að elska þennan dyggðum prýdda guð.

Mörgum mislíkar að svona atriði séu dregin saman, finnst það óþægilegt og ókurteist, einhver þarflaus ótuktarskapur. En þegar guðstrúin er sögð vera ómissandi undirstaða siðferðis okkar og kærleiks, þá koma voðaverk guðsins málinu sannarlega við. Biblían rekur þau kinnroðalaust, jafnvel með stolti; „Guð er mikill.“

Nú er komin út ný þýðing, lagfærð til að falla betur að nútímanum. Þar eru komin „systkin“ í stað „bræðra,“ svona eins og þýðendur hafi ákveðið: „skítt með barnadrápin, það má standa, en kynjaslagsíðan — hún skal út!“

Heljarinnar bréf

Thursday, October 25th, 2007

Þetta er hjákátlegt og ofleikið og glórulítið — en það virðist vera gert af algerri einlægni og sannfæringu, af því tagi sem getur aðeins orðið til ef heilaþvotturinn hefst snemma og af krafti.

Að eitra viljandi huga ungra barna með þessum forneskjulegu hryllingssögum er … almennt bara talið allt í lagi.

Heiðursmaðurinn

Tuesday, October 16th, 2007

„The louder he talked of his honor, the faster we counted our spoons.“

Ralph Waldo Emerson

Borgarfulltrúinn háli, Björn Ingi Hrafnsson, hefur víst klifað á því undanfarið að hann sé heiðarlegur og ærlegur.

Það er fallegt að syngja hinum sómakæru lof. Synd að þeir neyðist stundum til að taka lagið sjálfir.

Andófsmaður í Bankastræti

Sunday, October 14th, 2007

Bankastrætisstuð

Dimmir yfir dalnum

Wednesday, October 3rd, 2007

Ég gekk eitt sinn í skóla í Kísildal. Fannst hann fínn.

Fyrir tveimur vikum var skipaður nýr „distinguished visiting fellow“ við Hoover-stofnunina við þennan skóla.

Slíka upphefð hlýtur varla nokkur maður nema vera virtur menntamaður og/eða afreksmaður á sviði sínu.

Þessi nýi andans jöfur heitir Donald Rumsfeld.

Aldeilis distinguished.


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.