1984
Mogginn fjallar um umdeilda auglýsingu:
„Á Biskupsstofu fengust þær upplýsingar að auglýsandinn yrði þó ekki kærður fyrir guðlast“
Þetta er um haustið 2007. Spænski rannsóknarrétturinn var lagður niður fyrir 173 árum og hafði þá ekki drepið neinn í átta ár. Við búum við ört skánandi vísindalegan skilning á hinu stóra og hinu smáa í heiminum og getum jafnvel grillt í árdaga hans. Við kunnum að erfðabreyta lífverum og greina þróun mannverunnar langt aftur í apaættir, ferðast út fyrir hnöttinn o.s.frv. Og mannréttindum og frelsi, sérstaklega tjáningarfrelsi, fleygir fram að flestu leyti.
En fólk talar enn í fyllstu alvöru um opinberar kærur og refsidóma … fyrir guðlast.
Voðalega ætlar þessi fjári að vera lífseigur.
September 5th, 2007 at 10:00 pm
Lögfróður frændi okkar er nú ekki frá því að hér sé um refsivert lögbrot að ræða. Er ekki snyrtilegra að svona lög fái að deyja með sæmd, með formlegum hætti, heldur en að þau standi sem marklausir stafir?
Hversu margir í markhópum 3G síma ætli taki auglýsingarnar nærri sér?
September 6th, 2007 at 3:01 am
Svona lög mættu gjarnan deyja með skömm mín vegna, bara ef þau deyja. Auglýsingaherferðin hefur annars örugglega gengið glimrandi vel ekki síst vegna þessa stinningskalda í vatnsglasi.
Stefán Pálsson kom með annað prýðilegt dæmi um skoplegt ramakvein yfir „guðlasti.“