Archive for September, 2007

Súperman bjargar banka

Thursday, September 27th, 2007

Vandræðabankanum Northern Rock var gerður sá heiður í dag að spænskur fjárfestir, José María Ruiz-Mateos, bauðst til að kaupa 10% hlut í honum.

Hann José er dálítið spes.

  1. Hann var þekktur meðlimur í kaþólska költinu Opus Dei, sem kom við sögu (sjálfsagt í ýktri mynd) í Da Vinci-lyklinum. Honum til hróss var hann rekinn úr söfnuðinum. Kannski var hann ekki nógu duglegur að reyra á sig gaddakeðjuna.
  2. Hann er 13 barna faðir; ekkert að því í sjálfu sér en það er sannarlega óvenjulegt.
  3. Hann sat í fangelsi í nokkur ár fyrir skattsvik og annað misferli, en kallar það pólitískar ofsóknir sósíalistastjórnarinnar spænsku, sem hann hafði gagnrýnt harðlega. Reyndar þjóðnýtti stjórnin í leiðinni samsteypuna sem hann hafði byggt upp, Rumasa (700 fyrirtæki, 65,000 starfsmenn, tekjur sem námu yfir 2% af landsframleiðslu Spánar), svo að það hefur verið eftir nokkru að slægjast fyrir hana að ljúga upp á hann sökum. Hann var a.m.k. sýknaður í hæstarétti árið 1999, en fékk engar bætur fyrir innisetuna.
  4. Það lugu þó engir kommar því upp á José að hann mætti eitt sinn í réttarsal … í Súpermanbúningi. Hann skýrði það sem „kænskubragð til að koma andstæðingunum úr jafnvægi.“

José hefur hins vegar aldrei stofnað friðarsamtök, aldrei boðið sig fram til forseta, aldrei sprautað tómatsósu á neinn svo að vitað sé … og líklega aldrei orðið sér til skammar á djamminu í Reykjavík.

Financial Times orðaði þetta hispurslaust: „the Bank of England and the Financial Services Authority might have to think twice before allowing Jose Maria Ruiz-Mateos [to] take control of the mortgage lender.“

Hlutabréf í Northern Rock hækkuðu nú samt um rúm 6% í dag.

Af ávöxtun þeirra skuluð þér þekkja þá

Friday, September 21st, 2007

Árni Þór Sigurðsson

Í frétt á Vísi:

Árni segist meðvitaður um að hluthafar í SPRON muni hagnast ríkulega á næstunni. Tilgangur hans með því að leggja stofnfé í fyrirtækið hafi hins vegar aldrei verið sá að græða.

Víst, viðurkenndu það, þú vissir vel að þetta gæti ávaxtast! Óþokki! Víxlari!

Sviptingar

Wednesday, September 19th, 2007

Óttast kreppu á fjármálamarkaði

mbl.is 9. sept.

Engin kreppa framundan

mbl.is 13. sept.

Auknar líkur á kreppu

mbl.is 14. sept.

Versta lausafjárkreppan er yfirstaðin

mbl.is 18. sept.

Sú var fljótafgreidd!

Pant ekki …

Monday, September 10th, 2007

… fljúga með Nepal Airlines.

Tæknileg vandræði hafa plagað eina af Boeing 757-vélum þessa nepalska flugfélags undanfarnar vikur. Það er engin frágangssök, en stjórnendur félagsins hafa núna brugðist við vandanum með því að … fórna tveimur geitum fyrir framan vélina, til að friða himnaguð Hindúa, Akash Bhairav.

Vélin kvað vera komin í lag. Guðinn greinilega tilfreds í bili.

Þetta er dagsatt. Reuters lýgur ekki.

(Auðvitað væri allt annað mál að spenna greipar og biðja fyrir farsælli lausn vandans að hætti eðlilegra kristinna manna. Það væri öllu skynsamlegra og affarasælla. Sannarlega frá sjónarhóli geitanna.)

1984

Wednesday, September 5th, 2007

Mogginn fjallar um umdeilda auglýsingu:

„Á Biskupsstofu fengust þær upplýsingar að auglýsandinn yrði þó ekki kærður fyrir guðlast“

Þetta er um haustið 2007. Spænski rannsóknarrétturinn var lagður niður fyrir 173 árum og hafði þá ekki drepið neinn í átta ár. Við búum við ört skánandi vísindalegan skilning á hinu stóra og hinu smáa í heiminum og getum jafnvel grillt í árdaga hans. Við kunnum að erfðabreyta lífverum og greina þróun mannverunnar langt aftur í apaættir, ferðast út fyrir hnöttinn o.s.frv. Og mannréttindum og frelsi, sérstaklega tjáningarfrelsi, fleygir fram að flestu leyti.

En fólk talar enn í fyllstu alvöru um opinberar kærur og refsidóma … fyrir guðlast.

Voðalega ætlar þessi fjári að vera lífseigur.


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.