Af aflþynnum og álþykkju

Nokkrar orðskýringar:

Þynna
Þunn filma (foil) úr einhverju efni.
Álþynna
Það sem Becromal framleiðir, þunn filma úr áli. Eins konar þunnur og vandaður álpappír.
Þéttir (capacitor)
Íhlutur í rafrásum, yfirleitt búinn til úr upprúlluðum þynnum (oft álþynnum), svona eins og samlokur eru búnar til úr brauði (oft heilhveitibrauði). Becromal framleiðir ekki þétta.
Aflþéttir (power capacitor)
Tiltekin gerð af þétti sem ekki hefur komið sérstaklega við sögu í umræðunni. Álþynnurnar frá Becromal má nota í slíka þétta en líka í aðrar tegundir þétta. Þannig hafa þynnurnar ekkert sérstakt með afl að gera þótt til séu þéttar sem heita aflþéttar. Eins förum við ekki að kalla allt brauð „heilsubakstur“ bara af því að Sómi framleiðir samloku sem heitir Heilsubiti.
Aflþynna
Bullorð, líklegast soðið saman til að þurfa ekki að nota grýluorðið „ál“ vegna útbreiddrar álþykkju.

Nú hefur ráðherra þó bitið á jaxlinn og tekið upp orðið „álþynna“ á vef sínum. Hann heldur samt enn að það sé íslenskun á „capacitor,“ þrátt fyrir ítrekaðar leiðréttingar á hans eigin vef og víðar. Þetta er hliðstætt því að halda fast í þá skoðun að „brauðsneið“ sé firnagott nýyrði yfir „sandwich“ — bara af því að maður er ekki alveg með á hreinu hvað „sandwich“ er.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 44 access attempts in the last 7 days.