Archive for August, 2007

Óvart með ráðum gert?

Wednesday, August 29th, 2007

Á mbl.is:

„Meinafræðingur í Vín heldur því fram að læknir Beethovens hafi ráðið tónskáldinu bana með því að setja óvart of stóran skammt af blýi út í lyf sem Beethoven tók.“

Er hægt að ráða manni bana … óvart?

Þetta þykir mér vel gert

Wednesday, August 22nd, 2007

Örvænting eftir Josh Sommers

Áttavilltir upprennandi alheimsleiðtogar

Tuesday, August 21st, 2007

Sum okkar skilja ekkert nema sjá það í tölum eða á grafi, ekki heldur stjórnmálaskoðanir. Þess vegna eru til alls kyns spurningalistar til að reyna að staðsetja okkur í litrófi stjórnmálanna, t.d. The World’s Smallest Political Quiz og The Political Compass.

Algengt þema í þessum kerfum er að skila tvívíðri niðurstöðu, skipt í efnahagsmál og einstaklingsmál. Til dæmis skilar The Political Compass bæði láréttri og lóðréttri staðsetningu á grafi. Lárétta hnitið (vinstri/hægri) táknar stjórnlyndi eða frjálslyndi í málefnum atvinnulífs og hagkerfis (t.d. „finnst þér að skattar eigi að vera mjög háir og félagsaðstoð mjög sterk?“), en lóðrétta hnitið (upp/niður) táknar stjórnlyndi eða frjálslyndi í málefnum félagsmála og einkalífs (t.d. „finnst þér að ríkið eigi að setja reglur um leyfilega kynhegðun fullorðins fólks?“).

Á lárétta ásnum finnst gott og velviljað fólk langleiðina út á báða kanta. En enginn ætti að láta góma sig ofarlega á þessu grafi. Þeir sem vilja að ríkið stjórni einkalífi fólks sem allra mest eru ekki með öllum mjalla. Neðan miðjunnar er ég í góðum félagsskap, með mannvinunum Gandhi og Friedman og Nelson Mandela. Hinum megin eru Stalín og Hitler. Og Thatcher. Og reyndar flestallir stjórnmálamenn.

Ekki er algengt að stjórnmálamenn taki svona próf sjálfviljugir — a.m.k. ekki þannig að þeir gefi upp niðurstöðuna. Forsprakkar The Political Compass rýna því í opinber ummæli og rit og þingatkvæði og embættisfærslur þekktra stjórnmálamanna til að staðsetja þá á þessum kompási. Nú hafa þeir leikið þann leik með hina þekktari frambjóðendur í forkosningunum til embættis Bandaríkjaforseta í ár.

Niðurstaðan er skýr: frambjóðendurnir eru næstum allir í efri hægri fjórðungnum á grafinu. Aðeins tveir smokra sér niður fyrir miðju. Annar þeirra er Mike Gravel, sá sem gaf út þessa stórfurðulegu mállausu kosningaauglýsingu þar sem hann starir þögull í myndavélina í rúma mínútu, ranglar síðan spölkorn frá, tekur upp stóran stein og hendir út í vatn, og gengur svo á brott.

Ganga má út frá því sem vísu að næsti Bandaríkjaforseti verði lóðréttur nágranni Stalíns á efri helmingi hins pólitíska kompáss. Það er víst ekkert nýtt.

Af aflþynnum og álþykkju

Tuesday, August 21st, 2007

Nokkrar orðskýringar:

Þynna
Þunn filma (foil) úr einhverju efni.
Álþynna
Það sem Becromal framleiðir, þunn filma úr áli. Eins konar þunnur og vandaður álpappír.
Þéttir (capacitor)
Íhlutur í rafrásum, yfirleitt búinn til úr upprúlluðum þynnum (oft álþynnum), svona eins og samlokur eru búnar til úr brauði (oft heilhveitibrauði). Becromal framleiðir ekki þétta.
Aflþéttir (power capacitor)
Tiltekin gerð af þétti sem ekki hefur komið sérstaklega við sögu í umræðunni. Álþynnurnar frá Becromal má nota í slíka þétta en líka í aðrar tegundir þétta. Þannig hafa þynnurnar ekkert sérstakt með afl að gera þótt til séu þéttar sem heita aflþéttar. Eins förum við ekki að kalla allt brauð „heilsubakstur“ bara af því að Sómi framleiðir samloku sem heitir Heilsubiti.
Aflþynna
Bullorð, líklegast soðið saman til að þurfa ekki að nota grýluorðið „ál“ vegna útbreiddrar álþykkju.

Nú hefur ráðherra þó bitið á jaxlinn og tekið upp orðið „álþynna“ á vef sínum. Hann heldur samt enn að það sé íslenskun á „capacitor,“ þrátt fyrir ítrekaðar leiðréttingar á hans eigin vef og víðar. Þetta er hliðstætt því að halda fast í þá skoðun að „brauðsneið“ sé firnagott nýyrði yfir „sandwich“ — bara af því að maður er ekki alveg með á hreinu hvað „sandwich“ er.

Og samt tekur fólk sig hátíðlega

Friday, August 17th, 2007

Aflþynnuhátækni

Thursday, August 16th, 2007

Iðnaðarráðherra fjallar á netmiðli sínum um fyrirtækið Becromal, sem:

framleiðir það sem við höfum kallað aflþynnur. Það er íslenskun á útlenska orðinu “capacitor”. Aflþynnur eru rafhúðaðar álþynnur sem eru notaðar í rafþéttaiðnaði.

Ef ráðherra hefði leitað til Orðanefndar RVFÍ hefði hann vitað að íslenskun orðsins „capacitor“ er „þéttir“ og hefur verið það áratugum saman. Margir þéttar eru smíðaðir úr þessari framleiðsluvöru Becromal, sem er að sönnu þunn en hefur lítið með afl að gera (þótt þéttar úr svona þynnum séu meðal annars notaðir í aflgjafa).

Annars er óþarft að leita langt yfir skammt að heiti þessarar vöru: á vef fyrirtækisins heitir hún „aluminium foil.“ Þá uppfinningu hafa Íslendingar þekkt áratugum saman og kallað álpappír. Sá álpappír sem er notaður í þétta er væntanlega þynnri og vandaðri og dýrari. Hann er nú samt álpappír.

Það þótti kannski ekki hljóma nógu svalt og hátæknilegt?


Bad Behavior has blocked 67 access attempts in the last 7 days.