Eykst misskiptingin?

Afar ríkir menn

Margir missa svefn yfir því að misskipting auðs hafi vaxið upp úr öllu valdi undanfarið, ekki vegna þess að fleiri manneskjur búi við örbirgð en áður, heldur vegna þess að þorri auðsins hafi safnast á færri hendur en nokkru sinni fyrr. Áhyggjurnar virðast oft byggjast á því að horfa á þá allra ríkustu og fitja upp á nefið og hnussa og segja „nú dámar mér ekki.“

(Hvenær dámar svosem nokkrum manni?)

New York Times birti í dag samantekt um 30 ríkustu Bandaríkjamenn allra tíma, þar sem ríkidæmi þeirra er núvirt sem hlutfall af þjóðarframleiðslu.

Tveir þeirra eru á lífi, Bill Gates (í fimmta sæti) og Warren Buffett. Sam Walton stofnandi WalMart dó árið 1992, allir hinir voru dánir fyrir 1950.

Þeir fjórir allra ríkustu voru fæddir 1750, 1763, 1794 og 1839.

Málið er flóknara, auðvitað, en þetta rennir a.m.k. ekki stoðum undir þá hugmynd að auðævin safnist á færri hendur nú en áður.

(Hins vegar safnast sjálfsagt fátæktin á fleiri hendur en áður — enda fólksfjölgun miklu hraðari í fátækum samfélögum en ríkum, og auðmyndun miklu hraðari í þróuðum samfélögum en í ríkjum þar sem allar grunnstoðir eru í kaldakoli. Okkur hættir bara til að ofmeta orsakasamhengið á milli auðsöfnunar hinna fáu og fátæktar hinna mörgu. Börn í Afríku svelta ekki við það að hlutabréfin þeirra Gates og Buffetts hækki í verði. Það svíður bara að sjá hvort tveggja gerast samtímis. Gates og Buffett eru að vinna í þessu af heilindum.)

Þessir mógúlar eiga reyndar eitt sameiginlegt: þeir eru allir með Y-litning. Full ástæða er til að rannsaka hlutverk þessa erfðaþáttar í auðsöfnun.

7 Responses to “Eykst misskiptingin?”

  1. SBÓ Says:

    ójú, þetta með y-litninginn væri rannsóknarinnar virði. Hitt finnst mér skemmtilegra, með að dáma. Ég velti fyrir mér prúttnum og óprúttnum aðilum fyrir nokkru og fékk skemmtilegt kvæði í athugasemdirnar fyrir, sjá hér: http://www.blogger.com/comment.g?blogID=20955259&postID=2392005482176434801&isPopup=true.

  2. GÞB Says:

    Kvæðið er sannarlega skemmtilegt, takk fyrir! Ég notaði „dignant“ úr því sem hliðstæðan orðaleik í ensku þýðingunni á þessari færslu.

  3. Baal Says:

    Mér dettur í hug annað kvæði. Það er eftir Stephan G. Stephansson. “Örðug verður úrlausn hér, / illa stend að vígi. / Hálfsannleikur oftast er / óhrekjandi lygi.”

  4. OpenIDGÞB Says:

    Það er sannarlega góð vísa og seint of oft kveðin. Hún hefur samt þann fídus að hægt er að beita henni þannig að hún sé sjálflýsandi.

    Hvað, mislíkuðu þér þessar bollaleggingar? Verkjaði þig í orþódoxíuna? : )

  5. GÞB Says:

    Mér dettur í hug að þér finnist hálfsannleikurinn liggja (a.m.k. að hluta) í því að skoða aðeins hve mikið af auði safnast á hinar fáu lófaloðnu hendur efst í hagstiganum, en ekki hve lítið af auði safnast á hinar mörgu hendur neðst. Er það rétt til getið?

    Um hið síðarnefnda segir svona samantekt auðvitað lítið („málið er flóknara“). En mér finnst umræðan um hið síðarnefnda einmitt oft litast af vandlætingu yfir hinu fyrrnefnda — og skrattaveggmyndum af meintri aukningu þess. Um það fjallaði þessi færsla, og er lesendum frjálst að finnast að hún hefði átt að fjalla um eitthvað annað. : )

  6. Baal Says:

    Hálfsannleikurinn liggur í úrtakinu og notkun þess. Spurt er: “Eykst misskiptingin?” Svarið sem gefið er: “Það er óljóst, en ef litið er yfir 30 ríkustu Bandaríkjamenn allra tíma voru einungis tveir lifandi eftir 1950″. Þó að fullyrðingin í svarinu sé sönn hefur hún lítið vægi fyrir spurninguna. Jafnvel þó að spurningin hefði verið: Eru þeir ríku að verða ríkari? þá er svarið sem hér er gefið vart meira en hálfsannleikur. Mig grunar að jafnvel hagfræðingarnir í Seðlabanka Bandaríkjanna séu sammála mér um það.

  7. GÞB Says:

    Jájá, hagfræðingarnir og ég líka. Þ.e. sammála þér um að þessi sannleikur segir fjarri því alla söguna um misskiptingu auðs og raunar augljóslega miklu minna en helminginn af henni. Að kalla hann „hálfsannleik“ er þannig stakasta örlæti af ykkur Stephani!

    Það sem hann segir, hins vegar, er að auður hinna ríku virðist dreifast á fleiri hendur en áður; dreifingin hefur „breikkað efst.“ Það var næstum nákvæmlega það sem ég sagði: „þetta rennir a.m.k. ekki stoðum undir þá hugmynd að auður safnist á færri hendur nú en áður“ — ég hefði átt að nota orðið „auðævi,“ því að ég átti við hina fáu ofurríku; það var vandlætingin yfir þeim sem ég var að hnýta í, Björgólfabiturðin. Fyrirsögnin er ekki í samræmi við það, hún gefur ranglega til kynna að fjallað sé um miklu breiðara efni — það er minn feill, og væntanlega er það þess vegna sem þú sakar mig svo glaðhlakkalega um að hagræða sannleikanum. Ég hef lagfært textann dálítið til að reyna að bæta úr þessu.

    Ég held að auðævi hinna ofurríku hafi raunar ósköp lítið með kjör hinna fátækustu að gera (nema helst til að bæta þau, þegar þeir nota þau eins og þessir tveir núlifandi ríkustu Ameríkanar hafa verið að gera). Fólk sér bara ofsjónum yfir þeim.

    Ef þessi topp 1% sem eiga 40% af eignum heimsins væru rænd á einu bretti og eignirnar leystar í fjármagn og jafndreift yfir þessi fátækustu 50%, myndu þá lífskjör þeirra gerbreytast? Nei, megnið af þeim byggi áfram við handónýt stjórnkerfi og dómskerfi, óskilgreindan og illa varinn eignarétt, spillingu, stríð — í stuttu máli, algeran skort á tækifærum og forsendum til að nota þetta fjármagn til að bæta líf sitt. Hinar raunverulegu rætur fátæktar og volæðis; biluð samfélög. Með því á ég ekki við að þessi fátækustu 50% séu „hvort eð er glötuð“ og þá taki því ekki að hjálpa þeim, heldur að Björgólfarnir og Buffettarnir eru bara ekki vandamálið, og að amast við þeim er ekki til marks um umbótavilja heldur þrælslundarvæl.

    Það er samt ekkert aukaatriði að dreifingin breikki efst. Það stendur mjög líklega í beinu samhengi við bæði vaxandi fjölbreytileika hagkerfisins og batnandi réttarumhverfi: það er ekki eins auðvelt og áður fyrir hina allra ríkustu að soga til sín stærri sneið kökunnar með einokunartilburðum og annari misnotkun valds (eins og Rockefeller gerði t.d. sannarlega). Það eru góðar fréttir.

    Þeir voru þrír, reyndar, lifandi eftir 1950.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 44 access attempts in the last 7 days.