Góður og ódýr cappuccino á Starbucks?

Þetta verð ég að prófa næst þegar ég slysast inn á Starbucks-stað. Leyndarmálið er víst að biðja um „short cappuccino,“ sem sést hvergi á verðlistum eða í auglýsingum. Fyrir þann leynifrasa fær maður ekki þennan leiðinda dunk af velgdri og ófreyddri mjólk heldur raunverulegan cappuccino, með jafnmiklu kaffi, betra bragði og áferð — og á lægra verði.
Ég trúi því þegar ég tek á því.
En hvers vegna er þessi vara leyndó? Starbucks segir að það sé vegna plássleysis á töflunni (!) en greinin skýrir þetta sem „markaðshlutun“ (e. market segmentation). Þeir sem hafa ekki ánetjast góðum cappuccino vilja einfaldlega fá stóran kaffidrykk; þeim þætti asnalegt að borga 11% minna og fá 33% minni drykk. Og uppskrúfuð cappuccino-snobbhænsn eins og ég koma hvort eð er ekki á Starbucks — nema kannski ef þau hafa heyrt af short cappuccino og gangast upp í að „vita um leyndóið.“
Ætli það sé ekki með svona markaðsklókindum sem Starbucks hefur náð að þrjátíufaldast að markaðsvirði síðustu 15 árin?
July 10th, 2007 at 12:57 am
short stærðina má finna hér:
http://www.starbucks.com/retail/nutrition_beverage_detail.asp?selProducts=3
veit hins vegar ekki hvort hún er betri en hinar útgáfurnar – skal athuga, sem útsendari “þíns nets”
July 10th, 2007 at 1:11 am
Það eru 11 blogg síðan þú kommentaðir síðast, og samt vissi ég með algeru öryggi að þú myndir kommenta á þetta. :)
Ætli þeir hafi ekki gefist upp á að fara leynt með þetta eftir að blöð fóru að fjalla um það.
Takk fyrir að gerast field agent fyrir mitt.eigið.net; sjá benchmark fyrir það sem ég kalla góðan cappuccino í nágrenni við þig!
July 29th, 2007 at 10:49 pm
Reyndi þetta á Logan-flugvelli í Boston. “I’m sorry, we don’t have short here, only tall.” Sagt kannabislegum rómi.
“Have?” Eins og þeir fái cappuccino-bollana senda tilbúna í kippum á morgnana?
Kaffitár og Te & kaffi þurfa að fara að hlaða niður útibúum vestra og sýna hvernig á að fara að þessu.
July 29th, 2007 at 10:52 pm
Magnað. Notaði símann til að setja þessa athugasemd inn og það virkaði prýðilega, meira að segja með OpenID-auðkenningu. Tækninördinn í mér er teitur núna.