Síðustu dagar Smókratesar

Fé annarra

I love money. I love money more than the things it can buy. Does that surprise you? [...] There’s only one thing I like better: other people’s money.

— „Larry the Liquidator“ (Danny DeVito) í kvikmyndinni Other People’s Money

Þorgrími Þráinssyni brá fyrir á Kaffitári í dag sem oftar. Hann var enn glaðhlakkalegri en venjulega.

Ég leit inn á Ölstofuna á föstudagskvöld. Hún virðist minni núna þegar sést skýrt í vegginn hinum megin.

Ágætur netpenni setti þetta á bloggið sitt í vikunni:

Og í dag er seinasti dagurinn sem skemmtistaðir eru reykfylltir sem þýðir að ég get farið á slíkan stað án þess að verða veikur. Sumir myndu kalla það aukið frelsi; ekki þó þeir sem mest böðlast á þessu orði.

Það er sannarlega aukið frelsi fyrir mig að njóta óeitraðs lofts á Ölstofunni, og ég nýt þess frelsis í botn. Mér finnst það æðislegt.

Svo var þetta nú líka gert til að koma hinum kúgaða verkalýð skemmtistaðanna til bjargar. Starfsfólk Ölstofunnar dansar eflaust af gleði, loksins laust úr ánauð (og hefur loksins pláss til að dansa). Hver kætist ekki yfir frelsun þeirra?

Kátastur væri þó hann Larry, ef hann væri til utan hvíta tjaldsins. Nýja frelsið er nefnilega fengið með því að hafa frelsi af öðrum.

[sjá líka svargrein Hjalta og andsvar mitt við henni.]

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.