Archive for May, 2007

X-Hvað — lóð á hvaða vogarskálar?

Thursday, May 10th, 2007

Þrymur Sveinsson og Borgar Þór Einarsson skrifa um X-Hvað-prófið og telja það vinstrisinnað, Samfylkingin og VG komi óeðlilega oft best út.

Könnum það. Mögulegar samsetningar svara í prófinu eru aðeins 511 = 48.828.125 talsins. Það er ekki neitt neitt. Ég renndi snöggvast í gegnum þær allar og tók saman hve oft hver flokkur „vann.“ (1)

Ég útbjó forrit til að keyra prófið hratt; stigaútreikningurinn kemur fram í viðauka í skjali Bifrastarnema. (2)

Niðurstöðurnar voru þessar: (3)

Sjálfstæðisflokkur vann 9.863.828 sinnum, eða í 20,2% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.
Framsóknarflokkur vann 9.383.533 sinnum, eða í 19,2% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.
Samfylkingin vann 9.753.252 sinnum, eða í 20,0% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.
Vinstri græn unnu 11.731.274 sinnum, eða í 24,0% tilfella, og fengu að meðaltali 30,0% stuðning.
Frjálslyndi flokkurinn vann 8.690.555 sinnum, eða í 17,8% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.
Íslandshreyfingin vann 7.711.475 sinnum, eða í 15,8% tilfella, og fékk að meðaltali 30,0% stuðning.

Í niðurstöðunum kemur sannarlega fram dálítil slagsíða til vinstri, þó ekki meiri en svo að Sjálfstæðisflokkur vinnur pínulítið oftar en Samfylkingin. Einbeittur brotavilji er varla fyrir hendi.

Heldur hallar á undirmálsflokkana tvo (þið vitið, þessa sem ganga út á að senda ýmist stóriðju eða lélega rúmenska harmónikkuleikara út í hafsauga). Þeir fá minnsta „fylgið“ í þessu prófi; þó er það margfalt meira fylgi en þeir mega vænta á kjördag.

Það er bráðskemmtilegt að formanni Sambands ungra sjálfstæðismanna þyki „ekki vera nokkur leið að taka prófið án þess að út úr því komi að maður eigi helst samleið með Samfylkingunni eða VG.“ Prófið er ofurlítið hlutdrægt en engan veginn nóg til að skýra þessa miklu erfiðleika. Kannski er formaður SUS bara á rangri hillu!


(1) Auðvitað er þessi greining óvísindaleg; raunveruleg svör eru varla jafndreifð yfir mengi mögulegra svara. Til dæmis eru væntanlega frekar fáir á móti bæði stóriðju og útlendingum og jafnframt hlynntir einkavæðingu heilbrigðisgeirans og ríkisstofnana, skólagjöldum í ríkisreknum háskólum, kvótakerfinu, og Evrópusambandsaðild. Samt vega svo ólíkleg svör jafnt á við öll önnur í þessari óformlegu tilraun minni. Þetta er nú líka bara til gamans gert.

(2) Ég þurfti að giska dálítið í eyður; viðaukinn hefur ekki verið uppfærður þegar elleftu spurningunni og Íslandshreyfingunni var bætt við. En þetta ætti að vera nærri lagi.

(3) Já, þessar prósentutölur eru meira en 100% samtals. Þegar tveir flokkar eru jafnir með flest stig teljast báðir vinna.

Busy, busy, busy

Wednesday, May 9th, 2007

Kurt Vonnegut var örugglega bjartsýnastur allra bölsýnismanna. Cat’s Cradle endar með glaðhlakkalegri lýsingu á tortímingu lífs á Jörðinni; heimsendi með húmor.

Bókin er varla auðþýdd því að Vonnegut hefur gaman af orðaleikjum.

Í bokononisma, prýðilegum trúarbrögðum sem Vonnegut skáldaði upp, tíðkast sú vingjarnlega helgiathöfn að tvær manneskjur sitja berfættar andspænis hvor annarri og nudda saman iljum, „putting their soles together.”

Í Cat’s Cradle segir líka frá voðalegri uppfinningu, nýrri kristalbyggingu íss sem hefur bræðslumark við 45,8 °C. Undir þessu hitastigi kristallar efnið allt vatn umsvifalaust í fast form við snertingu, þ.m.t. heimshöfin og vatnið í mannslíkamanum. Þetta óknyttasama efni heitir ís-9, ice-nine … sem hljómar mjög líkt orðinu asinine, asnalegt. Vonnegut hefur þótt það orð hæfa vel þeirri iðju mannsins á 20. öld að finna praktískar og tímasparandi aðferðir við að leggja plánetuna sína í eyði.

X-Hvað?

Monday, May 7th, 2007

Kosningar fara í hönd. Við reynum öll eftir bestu getu að hrista af okkur áhrif auglýsingastofanna og einbeita okkur að málefnunum. Eitt örsnöggt skref í þá átt er að renna í gegnum prófið X-Hvað sem nemendur á Bifröst hafa útbúið.

Prófið samanstendur af 11 fullyrðingum sem þú lýsir þig samþykkan eða ósamþykkan. Í staðinn færð þú prósentutölur sem lýsa samsvöruninni á milli afstöðu þinnar og stefnu hvers flokks (skv. túlkun prófhöfunda á stefnu flokkanna).

Þetta er ágætur liður í því að endurskoða hvort kjörþokkafulli frambjóðandinn ætti virkilega að fá atkvæðið. Prófaðu!


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.