Krabbamein læknað — loksins!

Læknareglan, Haukur og Auður

Læknareglan er þarft og verðugt einkaframtak Hauks Dalmar og Auðar Þorkelsdóttur í litlu húsi á Hverfisgötunni. Þau stunda þar trúfræðilegar lækningar og lækna þannig ótrúlegustu mein, meðal annars öll krabbamein:

Árið 1996 byrjuðum við að rannsaka krabbameinsæxli og þróa aðferðir til þess að finna og uppræta mismunandi tegundir af krabbameini. Í dag getum við læknað allar tegundir krabbameins, á hvaða stigi sem sjúkdómurinn er, án allra aukaverkana.

Eiginlega má furðu sæta að lækningabylting Hauks og Auðar hafi ekki farið hærra, því að árangurinn er sláandi:

Við höfum í öllum tilvikum getað sýnt fram á trúfræðilegar lækningar okkar með sönnunum [...] Í öllum tilvikum svo okkur sé kunnugt um, eru sjúklingar okkar lausir við veiruna.

Og hefðbundin læknavísindi eru ekki einu sinni komin svo langt að vita að krabbamein sé veirusýking!

Vefur Læknareglunnar vísar á vef Krabbameinsfélagsins um nánari upplýsingar. Illu heilli hefur Krabbameinsfélaginu láðst að endurgjalda tengilinn — en við getum nærri getið hvað þar liggur að baki.

Fordómar og vísindahroki halda þeim Hauki og Auði eflaust niðri. Læknaklíkan er valdamikil og verndar stöðu sína; læknum hlýtur að þykja neyðarlegt að allt þeirra vísindabrölt hafi ekki náð þeim árangri sem þessi sómahjón hafa náð með trúnni einni saman. Þeir telja hjónin kannski til læknamiðla, en eins og Haukur segir: „Við eigum ekkert skylt með miðlum, þeir starfa á jarðneska sviðinu. Við störfum í himnaríki.“

Sú vinnuaðstaða hefur mikla kosti, því að við störf sín njóta Haukur og Auður fulltingis 58 lækna og 76 hjúkrunarfræðinga — allra framliðinna.

Í miklum mannraunum hlýtur Læknareglan að birtast eins og vin í eyðimörkinni, hjálpræði í dýpstu örvæntingu. Það er stórkostlegt til þess að hugsa að fólk í sárri neyð eigi kost á að leita hjálpar hjá hjónunum í litla húsinu á Hverfisgötunni, gegn vægu verði. Verðlagið kemur raunar ekki fram á vef Læknareglunnar en við hljótum að ætla að þau Haukur og Auður rukki af sanngirni, sér í lagi þegar litið er til þess hvílík undur fást fyrir peningana.

Framtak Læknareglunnar er lofsvert og ætti að verðlauna ríkulega bæði hér og í efra — öfugt við t.d. þá sem nýta sér örvæntingu og trúgirni ólánssams fólks til að plokka af því peninga, svo að dæmi sé tekið af algeru handahófi. Slíka óþokka ætti að loka inni og týna lyklinum. En hjónin á Hverfisgötu? Fálkaorðuna fyrir þau!

6 Responses to “Krabbamein læknað — loksins!”

  1. OpenIDGunnar Says:

    Og hefðbundin læknavísindi eru ekki einu sinni komin svo langt að vita að krabbamein sé veirusýking!

    Það vill svo til að þessi setning hjá þeim er nákvæmlega sú sama og þau nota þar sem þau segja að þau geti læknað alnæmi. Skemmtileg tilviljun. En þau gera örugglega engar copy paste villur, þau vita bara betur en vísindamennirnir, sem segja að í sumum tilvikum séu tengsl milli veira og krabbameins. Læknar eiga náttúrulega erfitt með að átta sig almennilega á þessu því þeir takmarka sig við rökhyggjuna en láta óskhyggjuna yfirleitt vera.

    Þessu tengt.

  2. Einar Örn Says:

    Ég rakst á þessa síðu þeirra um daginn… Algjörlega hrikalegt að sjá þetta. Á annars ekki Landlæknisembættið, eða hvað það nú heitir að, að fylgjast með svona löguðu?

  3. GÞB Says:

    Ef ég má gerast svo djarfur að nota DV sem heimild (!), þá hafði blaðið eftir Matthíasi Halldórssyni aðstoðarlandlækni (sem nú er landlæknir) þau hófstilltu ummæli „að starf Hauks og Auðar hafi ekkert með vísindi að gera heldur trú. Hér sé aðstaða til lækninga sem fólk geti nýtt sér en þetta sé fyrir utan heilbrigðissviðið og læknar geti ekki bannað fólki að leita þangað sem það vill.“

    Ég hélt að það væri þó a.m.k. bannað að nota orðin „læknar“ og „lækningar“ um annað en viðurkennda heilbrigðisþjónustu. Ef það er rétt, og þar til bær yfirvöld framfylgja samt ekki því banni í litla húsinu við Hverfisgötuna, er það þá ekki einfaldlega opinber viðurkenning á störfum þessa sómafólks?

  4. Baldur Says:

    Haha, þetta er ótrúlegt. :)
    Minnir mig af einhverri ástæðu á húðkremið DNage sem ‘lagar’ og ‘verndar’ DNAið þitt. =D

    Ég elska fólk!

  5. OpenIDGÞB Says:

    Það er rétta attitúdið!

  6. marianne dalmar Says:

    Hei. Jeg er fra Danmark og leder efter familie – min familie stammer fra Keflavik og hedder Dalmar. Kender I mon nogen Dalmar ?
    Jeg vil blive glad for at høre fra Dalmar-slægten – evt. udveksle mails.
    Min mailadresse er mariannelykke@hotmail.com.
    Venlig hilsen
    Marianne Dalmar Johannsen, Danmark

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.