Kynjakvótar í ráðherrastólum

Hér og þar er deilt á Sjálfstæðisflokkinn fyrir það að konur séu áfram í minnihluta í ráðherraliði þeirra.

Vissulega er leiðinlegt að sjá kynjaslagsíðu þar, sem annars staðar.

Hvergi hef ég þó séð stungið upp á neinni tiltekinni konu í stað neins tiltekins karls í ráðherrastól.

Það þykir sem sagt rétt að skipta „einhverjum“ karli út fyrir „einhverja“ konu af þeirri sök einni að hún er kona og hann karl.

Það er ekki jafnrétti. Það er einmitt öfugt.

4 Responses to “Kynjakvótar í ráðherrastólum”

  1. SBÓ Says:

    Hvaða hvaða… það hefur m.a. verið lagt til að skipta út Guðlaugi Þór fyrir Ástu Möller og Einari K fyrir Arnbjörgu. Sjálfri hefði mér þótt í lagi að skipta næstum hvaða karli út fyrir hvaða konu sem er, en þú ættir nú að fylgjast betur með umræðum femínista áður en þú alhæfir svona.

    Svo er annað með þetta blessaða jafnrétti – Sjálfstæðismenn eru duglegir að segja að konur verði að sækjast eftir stöðum til að fá þær, hlutfall kvenna í valdastöðum endurspegli bara metnaðarleysi þeirra. Nú eru þær 1/3 þingflokks en 1/6 ráðherrahóps flokksins. Ég er viss um að þú ert betri í stærðfræði en ég – er þetta eðlilegt hlutfall? Og ekki tala um að karlarnir séu ofar á listum o.s.frv. Einar er ekki efstur á lista neins staðar, Sturlu er ýtt út og hann heldur sínum stól. Guðfinnu mætti auðveldlega kalla sigurvegara prófkjörsins í Reykjavík en fær ekkert, Björn tapar í prófkjöri OG er strikaður út en heldur samt stólnum.

  2. GÞB Says:

    Hvaða hvaða … sjálfsagt hafa einhverjir nefnt nöfn, bara enginn af þeim sem ég hafði séð tjá sig um þetta. „Hvergi hef ég þó séð“ sagði ég, það var nú öll alhæfingin. Ég hef ekki lagst yfir umræður femínista um málið. En mér sýnist þú sverja þig undir andhverfa jafnréttið hvort eð er — hvaða karlar eru annars svo verðugir að falla undir þetta „næstum“ hjá þér og þurfa því ekki að gjalda kyns síns?

    Sturla heldur ekkert stól sínum, hann rýmir stólinn og er settur í skammarkrók þinghússins (þennan með bjöllunni). Og er algengt að brakandi glænýir þingmenn (hvors kyns sem er) eins og Guðfinna vermi ráðherrastóla? Jafnvel þótt þeir hafi komið vel út í prófkjöri?

    Ekki ætla ég að verja það að Guðlaugur eigi frekar að vera ráðherra en Ásta, og Einar frekar en Arnbjörg — né öfugt. Ég þekki bara ekki nógu vel til. Punkturinn var heldur ekki að kynjaskiptingin ætti að vera svona ójöfn, heldur að jöfn kynjaskipting ætti ekki að vera svo mikið forgangsmál að einstaklingar kæmu ekki einu sinni málinu við.

  3. SBÓ Says:

    Einar er ekki efstur á lista neins staðar, Sturlu er ýtt út og EINAR heldur sínum stól – átti þetta að vera, þ.e. Sturla er ofar á lista en fær ekki ráðherrastól. Og lógíkin hjá þeim sem eru að tala um að það megi gjarnan skipta körlum út er einmitt að hæfni sé ekki látin ráða heldur kyn. Karlar gjalda ekki fyrir kyn sitt, konur gera það hins vegar næstum alltaf. Það er ekki jafnrétti að vera sífellt ýtt til hliðar vegna þess að þú ert kona, viðbrögð sjálfstæðiskvenna þegar þær komu út af þingflokksfundinum á þriðjudag sýndu berlega að þeim var misboðið. Meðan fólk metur ekki framlag beggja kynja að verðleikum mun ég tala fyrir höfðatölujafnrétti, til þess eins að karlar neyðist til að hugsa um konur sem valmöguleika.

    Árni Magnússon er dæmi um brakandi nýjan þingmann, eins og þú kallar það, sem fékk ráðherrastól á fyrsta degi. Hann var reyndar í flokki þar sem er mun meiri mannekla en í Sjálfstæðisflokknum, en þeim mun meira af hæfum konum hlutfallslega.

    Og svona FYI, þeir karlar sem ég vildi gjarnan sjá víkja úr stóli fyrir konu eru t.d.: Björn, Einar K., Árni Matt og Guðlaugur Þór. Geir fær að halda sínum meðan hann er formaður.

  4. GÞB Says:

    Á meðan þú talar fyrir því að kynjamismunun skuli leiðrétta með kynjamismunun talar þú fyrir daufum eyrum. Það er mismununin sem er vond, ekki höfðatöluhlutföllin sem koma út (þótt þau geti auðvitað verið vísbending um mismunun).

    Höfðatölujafnréttið glutrar frá þér málstaðnum. Þegar þú bendir á einstök tilfelli (hún í staðinn fyrir hann) tekur fólk þig alvarlega og athugar hvort hún galt raunverulega kyns síns og hann naut síns. En þegar þú segir hvaða kona sem er í staðinn fyrir (næstum) hvaða karl sem er hugsar fólk „öfgar“ og skellir skollaeyrum við. Mismunun á sér stað á milli einstaklinga; þar á að tækla hana, en þar segist þú vilja stunda hana, til að jafna hópa.

    Árni Magnússon, satt. Eru fleiri dæmi? Eru til einhver dæmi í Sjálfstæðisflokknum? Það næsta sem ég kemst því er Þorsteinn Pálsson sem varð fjármálaráðherra eftir tvö ár á þingi árið 1987. Þetta er í öllu falli ekki algengt, og því hæpið að halda fram að Guðfinna sé stóllaus eingöngu vegna kyns síns.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.