Sálmarnir og talan 137

Í Sálmunum (þeim einu sönnu, í heilagri ritningu) er að finna skemmtilega tilviljun í sambandi við töluna 137.

Í versi 119:137 kemur nefnilega þetta fram:

137 Réttlátur ert þú, Drottinn,
og réttvísir dómar þínir.

… og í versi 137:9 birtist svo þessi réttvísi dómur:

9 Heill þeim er þrífur ungbörn þín
og slær þeim niður við stein.

Þarna er babýlónska þjóðin ávörpuð; hún hafði sannarlega (eins og fleiri) komið illa fram við Ísraelsmenn. Babýlónsk ungbörn gátu auðvitað bara sjálfum sér um kennt, að hafa valið sér slíka óþokka fyrir foreldra.

Ekki er öll Biblían svona ljót, en hún er greinilega ekki algóð heldur. Þó segja sumir hana óskeikult Guðs orð og grundvöll siðferðisvitundar okkar.

Til allrar hamingju er það ekki lestur á Biblíunni sem ákvarðar siðferðisvitund okkar, heldur öfugt: siðferðisvitundin ákvarðar hvernig við lesum Biblíuna. Suma hluta hennar metum við að verðleikum, því að þeir samrýmast siðferðiskennd okkar. Aðrir hlutar — eins og ofangreint dæmi — misbjóða þessari siðferðiskennd; þá hluta ýmist leiðum við hjá okkur eða fordæmum, allt eftir því hvort við afneitum eða viðurkennum að bókin sé verk breyskra, mennskra höfunda, óritstýrð af almættinu.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.