Busy, busy, busy
Kurt Vonnegut var örugglega bjartsýnastur allra bölsýnismanna. Cat’s Cradle endar með glaðhlakkalegri lýsingu á tortímingu lífs á Jörðinni; heimsendi með húmor.
Bókin er varla auðþýdd því að Vonnegut hefur gaman af orðaleikjum.
Í bokononisma, prýðilegum trúarbrögðum sem Vonnegut skáldaði upp, tíðkast sú vingjarnlega helgiathöfn að tvær manneskjur sitja berfættar andspænis hvor annarri og nudda saman iljum, „putting their soles together.”
Í Cat’s Cradle segir líka frá voðalegri uppfinningu, nýrri kristalbyggingu íss sem hefur bræðslumark við 45,8 °C. Undir þessu hitastigi kristallar efnið allt vatn umsvifalaust í fast form við snertingu, þ.m.t. heimshöfin og vatnið í mannslíkamanum. Þetta óknyttasama efni heitir ís-9, ice-nine … sem hljómar mjög líkt orðinu asinine, asnalegt. Vonnegut hefur þótt það orð hæfa vel þeirri iðju mannsins á 20. öld að finna praktískar og tímasparandi aðferðir við að leggja plánetuna sína í eyði.
May 11th, 2007 at 2:04 am
Vatnsmagn í mannslíkamanum er annars gróflega ýkt stærð sem ég tel að þurfi róttækrar leiðréttingar við. Þegar ég heyri talað um 65-70% magn af vatni í mannslíkamanum hugsa ég ósjálfrátt til hinnar fullkomnlega óþolandi mýtu um 10% heilavirkni. Ég þoli ekki svona, af svipuðum ástæðum og ég þoli ekki þegar fólk slumpar á prósentutölur (dæmi: Ég meika ekki svona 70% prósent af íslensku sjónvarpsefni). Í öllum tilfellum þætti mér gaman að sjá útreikninginn; í öllu falli er ástæða fyrir því að það nægir ekki að gefa svörin ein án útreikninga á stærðfræðiprófum.
Það er eins og tungumálið sé orðið of gildishlaðið fyrir almenning að tala um tölfræðilega óræðar stærðir, t.d. mikið, meira eða flest. Altént er svona 90% af því sem prósentublætisfólk segir í prósentum rakið bull. Eða staðreyndavillur, í besta falli (ég átta mig á þversögninni hérna).
May 12th, 2007 at 4:23 pm
„Good. Use your aggressive feelings, boy. Let the hate flow through you.“
Sjálfsagt hefði margt í mannslíkamanum (og víðar) gott af dassi af róttækri leiðréttingu. Vatnsmagnið er samt varla fjarri lagi. Það er sagt vera 60-65% í fullvöxnum karlmönnum og 50-60% í konum — en 70% í nýfæddum börnum. 35% í ungum miðbæjarbúum á laugardagsmorgnum. Þú leggur kannski í að rengja The Boston Globe og Emilíu Dagnýju Sveinbjörnsdóttur landfræðing um þetta. Ég voga mér það ekki.
Kannski sefast réttlát reiði þín við það að renna yfir eitthvað smálegt um hvernig líkamssamsetning er mæld. Kannski ekki. Þú mælir samt lög um uppdigtaðar prósentur. Ég skrifa stundum um lygar og stöku sinnum um bölvaðar lygar … en ég skrifa engan veginn nógu oft um statistík. Verð að bæta úr þessu.