X-Hvað?
Kosningar fara í hönd. Við reynum öll eftir bestu getu að hrista af okkur áhrif auglýsingastofanna og einbeita okkur að málefnunum. Eitt örsnöggt skref í þá átt er að renna í gegnum prófið X-Hvað sem nemendur á Bifröst hafa útbúið.
Prófið samanstendur af 11 fullyrðingum sem þú lýsir þig samþykkan eða ósamþykkan. Í staðinn færð þú prósentutölur sem lýsa samsvöruninni á milli afstöðu þinnar og stefnu hvers flokks (skv. túlkun prófhöfunda á stefnu flokkanna).
Þetta er ágætur liður í því að endurskoða hvort kjörþokkafulli frambjóðandinn ætti virkilega að fá atkvæðið. Prófaðu!
May 7th, 2007 at 8:44 pm
Samkvæmt þessu á ég að kjósa Íslandshreyfinguna - 60% stuðningur. Næstir voru Frjálslyndi flokkurinn með 38% stuðning og þvínæst Samfylking og Sjálfstæðisflokkur, báðir með 37.5% af mínum stuðningi.
Ég er semsagt bærilega sammála flokki sem ég vissi ekki að væri til - Kannski ágætt að ég mun ekki kjósa að þessu sinni.
May 7th, 2007 at 9:04 pm
Stuðningur við Framsóknarflokk: 0%.
Gott mál. En þessi prósentureikningur fáránlegur án þess að orða þetta betur. Heppilegra orðalag væri kannski “fylgni við -% af stefnu -flokks.” Mér finnst kjánalegt að lista þetta út svona ef Stuðningur við Framsóknarflokk: 0%. Það var ánægulegt.
Reyndar finnst mér frekar klaufalegt að eins og þetta er framsett er eins og skiptingin sé af köku, en 60% + 38% + 37.5% + 37.5% != 100%.
Þessi prósentureikningur fáránlegur án þess að orða þetta betur. Heppilegra orðalag væri eitthvað í átt að: “Þú sýnir x% fylgni við stefnu Y-flokks”… eða kannski bara klára að reikna þetta.
Btw: Hvaða OpenID viðbót er þetta? og er hún þess virði að setja hana upp?
May 7th, 2007 at 11:40 pm
„Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir x“ … þetta orðalag er ekki svo fjarri lagi.
„Stuðningur við x: y%“ er hins vegar frekar misvísandi; geng inn á það!
Synd að þeir skuli ekki reikna þetta sem fylgni, með jákvæð og neikvæð stig — þá gætir þú væntanlega glaðst yfir hífandi neikvæðu skori hjá Framsókn!
Ég nota viðbæturnar OpenID Registration og OpenID Delegation — þær virka vel, einfaldar og fínar. Tókstu annars eftir að MyOpenID styður núna innskráningu með client-skírteini?
May 7th, 2007 at 11:48 pm
btw varðandi þessa OpenID viðbót, þá er nafnið mitt alltaf sjálfkrafa inn í OpenID reitnum - ef ég gleymi að þurka það út þá týnist kommentið…ófá skipti sem ég hef þurft að skrifa komment tvisvar á þessari síðu.
Samt hef ég stofnað OpenID reikning sem mér tekst illa að linka við ‘þitt eigið net’.
—oo—
annars er ég sammála þessu með könnunina, hálf asnalegt orðaval á niðurstöðum. Því til viðbótar eru spurningarnar villandi, t.d. “Stóriðja er íslensku samfélagi til framdráttar?”. Þetta er bara alls ekkert augljós spurning.
Persónulega held ég að verkefni sem skila ágóða (án þess að skilgreina hann nákvæmlega) séu góð, og ef stóriðja fellur undir það skilyrði þá er hún góð og íslensku samfélagi til framdráttar.
Hins vegar hafa undanfarnar stóriðjur því miður ekki uppfyllt grunnskilyrði fjárhagslegs ágóða - og því til viðbótar hefur stóriðju verið stillt upp í sumum fjölmiðlum sem lausn á landbyggðarflótta sem ég tel að verði aldrei raunin, því stóriðja mun krefjast annarskonar vinnuafls en áður bjó á svæðinu.
Þess vegna valdi ég “ósammála”. Og í framhaldi var mér skipað með Íslandshreyfingunni - sem eru á móti stóriðju vegna umhverfissjónarmiða, sem komu aldrei til sögu í mínu vali… ég er bara á móti því að tapa pening.
May 8th, 2007 at 12:21 am
Jahérna. Ertu mögulega með einhverja skringilega „form autocompletion“ viðbót í vafranum þínum? Eða jafnvel að nota eitthvað exótískt eða fornfálegt eins og … Internet Explorer? :-)
Síst held ég uppi vörnum fyrir þessa spurningu, hún er áreiðanlega sú lakasta í prófinu. Þetta er nú samt bara verkefni hjá skólakrökkum. Cut them some slack. Öll svona próf innihalda stöku meingallaða spurningu, t.d. Political Compass og Political Survey.
May 8th, 2007 at 10:31 am
“Einkavæðing er æskileg í heilbrigðsgeiranum” - Samkvæmt minni bestu vitund þá er það bara Sjálfstæðisflokkur sem vill eitthvað í áttina að þessu. Þeir eru að tala um að heimila frekari einkarekstur við hlið ríkisreksturs. Þá eiga þeir væntanlega við að tryggingakerfið gefi það svigrúm frekar en heilbrigðiskerfið? “Einkavæðing” er ekki alveg rétt.
Reyndar eru aðrar spurningar alveg “spot on”, td: “Taka þarf upp annað fiskveiðistjórnarkerfi á Íslandi.” og “Takmarka á verulega innflutning verkafólks til Íslands.” Þarna er fólki auðveldlega lent með Frjálslyndum.
Mögulega er þetta úthugsað til þess að lenda meðalvitanum, og ruglar þess vegna okkur beturvitana. ;-)
–
Takk fyrir OpenID linkana. Minns ætlar að taka upp OpenID.
May 8th, 2007 at 12:58 pm
Jebb, OpenID er sniðugt. Vonandi nær það einhverri útbreiðslu.
Ég rakst reyndar á wpopenid+, aðra viðbót sem virðist vera meira nostrað við en OpenID Registration. Ég hef ekki prófað hana; hef raunar ekki prófað neinar aðrar viðbætur en þessar sem ég nota núna.
May 10th, 2007 at 12:11 am
Skemmtilegt, Þrymur Sveinsson benti á að ef maður velur „sammála“ eða „mjög sammála“ í öllum málum, þá er maður stuðningsmaður Samfylkingarinnar.
Ég varð auðvitað að prófa að vera „ósammála“ eða „mjög ósammála.“ Viti menn: þannig dæmdist ég einlægur stuðningsmaður vinstri grænna. :-)