Archive for April, 2007

Erum við virkilega svona miklar smásálir?

Tuesday, April 10th, 2007

Skrípósprengja

Uwe E. Reinhardt hefur beðið Íslendinga afsökunar á háðsgrein sinni í garð Bandaríkjanna. Af því að við vældum svo mikið.

Ísland var notað í þessari grein einmitt vegna þess að öllum er ljóst að Ísland væri einhver fáránlegasti blettur jarðarkringlunnar fyrir Bandaríkjamenn að ráðast á. Þetta er augljóst.

Og að öðru leyti snýst grein hans alls ekki um Ísland.

Óháð því hvort þetta háð þykir fyndið er grátlega smásálarlegt af Íslendingum að reka upp ramakvein yfir því.

Þarna urðu margir þjóðinni til skammar — ekki bara hvolpsgreyið með innantómu drápshótunina.

Get a grip, people.

Ill meðferð barns flokkuð sem skemmtiefni

Tuesday, April 10th, 2007

Morgunblaðið fjallar, eins og aðrir fjölmiðlar, um einkalíf fræga fólksins, og í dag er fjallað um litlu dóttur þeirra Tom Cruise og Katie Holmes, Suri. Hún fer í klippingu einu sinni í viku, er yfirleitt höfð allsber, og þau banna fólki að tala nálægt henni.

Hárhirða og bann við tali er það minnsta. Þetta barn er í klóm költs, sértrúarsafnaðar sem gengur fyrir heilaþvotti.

Foreldrar hennar virðast hafa áskapað sér firringu sína sjálf með því að ganga í költið á fullorðinsárum. Barnið á hins vegar engan þátt í stöðu sinni; það er þvottekta fórnarlamb.

Hollywoodbörn geta vel lifað nokkuð heilbrigðu lífi þrátt fyrir frægð foreldra þeirra — en þessi vesalings stúlka á varla séns; það er ólíklegt að hún sigrist nokkurn tíma á þeim uppvexti sem hún á í vændum. Scientology er ekkert grín.

Þessar fréttir af dóttur TomKat-parsins fjalla um upphaf hræðilegrar misþyrmingar á barnshuga — og fjölmiðlar flokka þær undir frægafólksléttmeti.

Ef þau hefðu hana inni í krukku allan uppvöxtinn þannig að hún yxi líkamlega afmynduð myndi það lenda í öðrum fréttaflokki, og væntanlega myndi lögreglan skerast í þann „leik“ — en þau eru byrjuð að gera samsvarandi við huga hennar og það telst vera skemmtiefni í slúðurdálkum. „Híhí, sjáið hve sérvitur þau eru.“

Það er öllum hollt að fræðast um sértrúarsöfnuði til að geta hjálpað ættingjum og vinum sem gætu verið í hættu. Hér eru tveir fróðlegir vefir:

  • Operation Clambake fjallar um Scientology sérstaklega.
  • F.A.C.T.net reynir að vinna gegn skaðlegum sértrúarsöfnuðum eins og Amnesty International gegn líkamlegum pyntingum.

Skríður til skarar gegn hryðjuverkum

Saturday, April 7th, 2007

Interrogation room

„Tengist þú einhverjum hryðjuverkasamtökum eða er einhver í fjölskyldu þinni viðriðinn slík samtök?“

Nei, þessi spurning er ekki á spjaldi sem þarf að fylla út til að komast inn í Bandaríkin (þar eru þó svipaðar spurningar), hún er alíslensk, ein þeirra spurninga sem bankar þurfa víst að leggja fyrir nýja viðskiptavini til þess að uppfylla nýtilkomin lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Auðvitað heldur enginn að illskan verði sigruð með því að spyrja átján ára Selfyssing þessarar spurningar. En sumir virðast halda í þá von að hryðjuverkamaðurinn jánki þessu kannski í ógáti.

„Jaá… nei, ég meina nei, hreint ekki! Æi, fari það kolað, þið sneruð á mig!“

Baráttuna fyrir betri og öruggari heimi setur niður við svona vitleysu.

Gengisfelling heilagra kúa

Saturday, April 7th, 2007

Heilög kýr

Að kvöldi föstudagsins langa gerðist eftirfarandi:

  • Uppistandskeppnin „Fyndnasti maður Íslands“ var haldin.
  • Fermingardrengur auglýsti SPRON með því að meta guðshús drýgindalega eins og maður skoðar notaðan bíl.
  • Guðspjallakór auglýsti með hinni alþekktu gospelglaðværð að Húsasmiðjan sé núna opin til kl. 9 á kvöldin.
  • Vantrú braut skýlaust gegn a-lið 2. tölul. 4. gr. laga nr. 32 frá 1997 með því að halda bingó á Austurvelli.
  • Úrslitakvöld X-Factor-keppninnar var sent út beint á Stöð 2.
  • Páll Óskar Hjálmtýsson kom þar fram íklæddur þjóðfánanum.

Þær kýr sem þarna var slátrað voru eflaust heilagar í huga einhvers óþekkts hlutfalls landsmanna. Köllum það hlutfall x.

Hvað þyrfti x að vera til að svona slátrun kæmist ekki í sjónvarpið?

Líklega var x yfir þeim mörkum fyrir nokkrum árum, en er undir þeim núna.

Þeim fækkar þá sem vilja að hlátur og skemmtun víki fyrir helgihaldi kirkju og ættjarðarástar.

Það eru auðvitað váleg tíðindi.

Annars mættu gjarnan fleiri lagagreinar banna bingó sérstaklega. Helgidagalögin eru enn þau einu.

Súkkulaðivefir í molum

Tuesday, April 3rd, 2007

Nú líður að því að velja heimilinu frjósemishátíðaregg. Ég væri ekki ég ef internetið kæmi ekki við sögu í því vali.

Vefir súkkulaðifyrirtækjanna eru almennt í molum. Það er kannski viðeigandi.

Ásýnd Góu-Lindu á vefnum

Ásýnd Góu-Lindu á vefnum

  • Á vef Nóa Síríī er reyndar vörulisti yfir páskaegg, en upplýsingar um hverja tegund eru af skornum skammti og ekki er traustvekjandi að sjá „©2006 Nói Síríus“ í horninu. Vonandi er súkkulaðið nýlegra.
  • Vefur Góu-Lindu er eins og gammétið hræ. Þar gapa eyðurnar við okkur eins og tóftir í hauskúpu. Ókjörin reynast vera sett saman í Microsoft Word; slíkir vefir eru undantekningalítið andvana fæddir.
  • Vefur Mónu svarar ekki einu sinni. Það er kannski vegna þess að Freyja keypti Mónu. En …
  • … vefur Freyju (©2004) virkar en segir ekkert um páskaegg; tengir bara á hinn stjarfaklofa vef Mónu.

Loks er lélegt að þeir tveir vefir sem eru með lífsmarki, hjá erkikeppinautunum Nóa Síríō og Freyju, nota nákvæmlega sama vef-íkonið Freyja eða Nói?. Vefirnir eru nefnilega báðir gerðir af sömu vefstofunni, Design EuropA … sem notar einmitt þetta sama íkon á eigin vef. Aldeilis flott.

Þetta er vefhliðstæða þess að ganga um í Kvosinni með buxurnar á hælunum.

Ég gæti þurft að velja eggið í búð! That’s so 1994.

Makkinn flýgur. Rólega.

Monday, April 2nd, 2007
Ég: Er miðstærðin af MacBook komin í hús?
Apple-búðin: Nei, því miður.
Ég: Hvenær er von á henni?
Apple-búðin: Ja, hún fór af stað fyrir viku.
Ég: Ókei, hún situr þá í skipi einhvers staðar?
Apple-búðin: (hálfmóðguð) Neinei, ekki í skipi. Þær koma með flugi.
[augnabliksþögn]
Ég: Það er skratti rólegt flug.
Apple-búðin: Ja, þær koma nú alla leið frá Kína.

Eins gott að makkinn keyri hraðar en hann flýgur.

Bráðabirgðalög í vændum?

Monday, April 2nd, 2007

Bráðabirgðalög í vændum?

Rétt áðan ók fyrirmennalest inn Kirkjustrætið á móti einstefnu með blikkljós og ábúðarmikla lögreglumenn að skima eftir morðingjum og mótmælendum. Borðalagður maður steig út og gekk inn í Alþingishúsið.

Ætli þetta sé ekki forstjóri Alcan, mættur til að smella bráðabirgðalögum á Hafnarfjörð?

Loksins fæ ég að skúbba eitthvað!

Tilvitnun í Jacques Lacan, speking

Sunday, April 1st, 2007
Jacques Lacan

Thus the erectile organ comes to symbolize the place of jouissance [ecstasy], not in itself, or even in the form of an image, but as a part lacking in the desired image: that is why it is equivalent to the \sqrt{-1} of the signification produced above, of the jouissance that it restores by the coefficient of its statement to the function of lack of signifier (-1).

— Jacques Lacan (via Alan Sokal)

Þetta meikaði örugglega sens í samhengi.

Meissner og Maharishi

Sunday, April 1st, 2007
Maharishi Mahesh Yogi

Maharishi Mahesh Yogi

<háð>

Stofnun háskólans Maharishi University of Management í Iowa í Bandaríkjunum er eitt margra góðverka sem Maharishi Mahesh Yogi hefur unnið mannkyninu til heilla og heilsubótar.

Lýsingar námskeiða í stærðfræðideild þessa skóla gefa fyrirheit um spennandi nýjungar í túlkun stærðfræðinnar. Hér eru nokkur dæmi:

  • Infinity: From the Empty Set to the Boundless Universe of All Sets — Exploring the Full Range of Mathematics and Seeing its Source in Your Self
  • Maharishi Vedic Mathematics: Mathematical Structure and the Transcendental Source of Natural Law
  • Calculus 1: Derivatives as the Mathematics of Transcending, Used to Handle Changing Quantities
  • Calculus 2: Integrals as the Mathematics of Unification, Used to Handle Wholeness
  • Calculus 3: Unified Management of Change in All Possible Directions
  • Calculus 4: Locating Silence within Dynamism

Þessi jákvæði jógi hrinti af stað byltingu í varnarmálum nú í febrúar með vef sínum „Invincible Defence“. Þar lýsir hann hvernig útrýma megi hryðjuverkum fyrir fullt og allt, meðal annars með stóraukinni ástundun jógaflugs. Þetta er auðskýrt: jógaflugmenn eru í ofurleiðslu sem framkallar Maharishi-hrifin, á svipaðan hátt og ofurleiðni framkallar Meissner-hrifin. Rétt eins og ofurleiðandi efni býr yfir „invincible defence“ gegn segulsviði reisa ofurleiðslujógar órjúfanlegan varnarmúr þjóðar gegn hryðjuverkavá.

Vonandi meðtaka allir sannindi jógans með opnum huga, ótruflaðir af hinum alræmdu fordómum vísindanna.

</háð>


Bad Behavior has blocked 44 access attempts in the last 7 days.