Gengisfelling heilagra kúa

Heilög kýr

Að kvöldi föstudagsins langa gerðist eftirfarandi:

  • Uppistandskeppnin „Fyndnasti maður Íslands“ var haldin.
  • Fermingardrengur auglýsti SPRON með því að meta guðshús drýgindalega eins og maður skoðar notaðan bíl.
  • Guðspjallakór auglýsti með hinni alþekktu gospelglaðværð að Húsasmiðjan sé núna opin til kl. 9 á kvöldin.
  • Vantrú braut skýlaust gegn a-lið 2. tölul. 4. gr. laga nr. 32 frá 1997 með því að halda bingó á Austurvelli.
  • Úrslitakvöld X-Factor-keppninnar var sent út beint á Stöð 2.
  • Páll Óskar Hjálmtýsson kom þar fram íklæddur þjóðfánanum.

Þær kýr sem þarna var slátrað voru eflaust heilagar í huga einhvers óþekkts hlutfalls landsmanna. Köllum það hlutfall x.

Hvað þyrfti x að vera til að svona slátrun kæmist ekki í sjónvarpið?

Líklega var x yfir þeim mörkum fyrir nokkrum árum, en er undir þeim núna.

Þeim fækkar þá sem vilja að hlátur og skemmtun víki fyrir helgihaldi kirkju og ættjarðarástar.

Það eru auðvitað váleg tíðindi.

Annars mættu gjarnan fleiri lagagreinar banna bingó sérstaklega. Helgidagalögin eru enn þau einu.

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 50 access attempts in the last 7 days.