Makkinn flýgur. Rólega.
Ég: Er miðstærðin af MacBook komin í hús? Apple-búðin: Nei, því miður. Ég: Hvenær er von á henni? Apple-búðin: Ja, hún fór af stað fyrir viku. Ég: Ókei, hún situr þá í skipi einhvers staðar? Apple-búðin: (hálfmóðguð) Neinei, ekki í skipi. Þær koma með flugi. [augnabliksþögn] Ég: Það er skratti rólegt flug. Apple-búðin: Ja, þær koma nú alla leið frá Kína.
Eins gott að makkinn keyri hraðar en hann flýgur.