Tilvitnun í Jacques Lacan, speking

Jacques Lacan

Thus the erectile organ comes to symbolize the place of jouissance [ecstasy], not in itself, or even in the form of an image, but as a part lacking in the desired image: that is why it is equivalent to the \sqrt{-1} of the signification produced above, of the jouissance that it restores by the coefficient of its statement to the function of lack of signifier (-1).

— Jacques Lacan (via Alan Sokal)

Þetta meikaði örugglega sens í samhengi.

5 Responses to “Tilvitnun í Jacques Lacan, speking”

  1. GJB Says:

    Richard Dawkins, sá yfirlætislegi vindbelgur, skrifaði umsögn um bók Sokals. Í umsögninni vitnar hann m.a. í þennan texta Lacans.

  2. Matti Says:

    Hafið þið lesið bók Sokals? Ég hef lengi verið að spá í kaupa hana.

    Ég mæli með ritgerðum Kristjáns Kristjánssonar um póstmódernisma. Hann skrifaði á sínum tíma greinaröð í Lesbók Morgunblaðsins, en þær er hægt að lesa ásamt fleiri tengdum greinum í bók hans Mannkostir.

    Úr kynningu á bókinni:

    Orrahríðin í kjölfar skrifa minna um póstmódernismann var ákveðinn kapítuli í lífi mínu. Hver var lærdómurinn af honum? Ef til vill helst sá gamalkunni að mönnum er ekki eins uppsigað við neitt og heilbrigða skynsemi þegar hún er ekki á þeirra bandi.

  3. GÞB Says:

    Nei, ég hef hvorki lesið Intellectual ImposturesFashionable Nonsense. Setti þær báðar á óskalistann, en ég veit þó ekki hvort þær eru verðug lesning eða bara svona „haha, hvílíkir bjánar“ egóklapp. Með öðrum orðum, ég er ofurlítið efins um að ég vaxi af lestrinum.

    Það er þó alltaf til nóg af bókum sem kalla þann efa fram af miklu meiri krafti. :)

    Takk fyrir ábendinguna, ég hafði mjög gaman af Þroskakostum; gríp í Mannkosti þegar færi gefst!

  4. Matti Says:

    Ég verð að játa að ég áttaði mig ekki á að um tvær bækur væri að ræða, getur verið að Fashionable Nonsense sé endurútgáfa af Intellectual Impostures? Mér sýnist það af efnisyfirliti FN, en þar kemur fram að FN kom fyrst út í Frakklandi árið 1997 og hét þá Impostures Intellectuelles, held að Intellectual Impostures sé titill bresku útgáfunnar. Væri leiðinlegt að kaupa þær báðar og komast að því að um sömu bók er að ræða :-)

  5. GÞB Says:

    Neinei, ekkert vera að átta þig á því að um tvær bækur sé að ræða. Sjá hér:

    Book first published in French [...] The English edition was published [...] under the title Intellectual Impostures [...] It was published in the US [...] under the title Fashionable Nonsense

    Tek’etta á mig. :)

Leave a Reply

OpenID

Anonymous


Bad Behavior has blocked 34 access attempts in the last 7 days.